Sælir ég veit að þetta er kanski "long-shot" en undanfarið hef ég tekið eftir því að það heyrist mjöööög lágt "ískur" hljóð einhverstaðar í tölvukassanum hjá mér... það er eins og að einhvað sem snýst sé riðgað or some... veit að það hljómar asnalega en þannig er hljóðið.... það heyrist alls ekki alltaf... bara stundum og þá er það í minnst 1mín af og til og svo hættir það alveg og byrjar aftur eftir nokkra tíma.
Það er nokkuð erfitt að finna nákvæmlega hvaðan það kemur því að það heyrist svo lágt að venjulega viftuhljóðið er hærra. Hef ekki tekið eftir neinu varðandi performance í tölvunni samt... veit einhver hvað gæti hugsanlega verið að eða ?
hef heyrt svipað hljóð úr minni tölvu þegar hun fer í eitthverja keyrslu. reyndar bara í einum leik. (gta IV) og mig grunar að þetta lágværa suð sé í aflgjafanum hjá mér. ekkert til að hafa áhyggjur hjá mér allavega. taktu bara eina hliðina af turninum og bíddu þangað til að þetta suð kemur og þegar það kemur hafðu bara eyrað alveg við tölvuna og reyndu að finna út hvaðan það kemur
Já það gæti verið suð frá aflgjafa, gæti líka verið hljóð frá þéttum á skjákorti , eða vifta að gefa sig.
Sennilega ekki HDD, því þá væri hljóðið alltaf.
Þú verður að opna kassann og hlusta hvaðan hljóðið kemur.