Viftu Stýringar

Svara
Skjámynd

Höfundur
Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Viftu Stýringar

Póstur af Atlinn »

Ég var að spá hvort að einhhver væri með eitthvað svona til að kveikja og slökkva á viftonum í tölvunni sinni, eitthvað eins og þetta
á Start.is ... eða ... líka á start.is bara svart svo er líka á www.nytt.is, var að lesa nokkur review um þessi tvo og það hefur verið fjallað betur um þetta sem á start.is, veit einhver um eitthvað annað hérna á klakanum, þá í einhverjum búðum? Hefur einhver einhverja reynslu af öðruhvoru af þessum ér fyrir ofan?
Hefur einhver búið svona til, með tökkum til að lækka hraðann á viftunum eða bara til að slökkva á þeim?
Ég bjó mér til svoldið til að slokkva á viftunum (öllum í einu) en það bilaði um helgina á lani og sem betur fer sá ég það og gat lagað það, því hitinn fór mjög hratt upp, vill ekki að það gerist aftur
hah, Davíð í herinn og herinn burt
Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1197
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kiddi »

Ég pantaði mér svona svarta Vantech viftustýringu frá start.is (þetta kom með póstsendli nákvæmlega 2 sólarhringum eftir að ég pantaði, mjög gott!) - og hún *svínvirkar* - En hún slekkur ekki alveg á viftunum, hún minnkar hraðann í þeim um 50% (nóg til að þagga algjörlega í þeim) - þú getur annarsvegar tengt 4 stykki kassaviftur sem eru með svona lítil 3pinna tengi beint í apparatið, eða notað framlengingasnúrurnar sem fylgja sem styðja 2stk 3lítil-pinnatengi og 2stk svona powersupply-rafmagnstengi... þetta er allavega klassa-vara! þú getur samt ekki fylgst með snúningshraðanum á viftunum, því þetta unit er alveg sjálfstætt og notar bara power frá powersupplyinu sjálfu =)
Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Staða: Ótengdur

Póstur af MezzUp »

Jú, það er alltaf hægt að fylgjast með viftuhraðanum á þessu(hef ekki skoðað þetta en þessi aðferð ætti að virka á allt)
Það er hægt að fá Y spiltter á viftukapalainn sem að skiptir honum í tvö 3 gata tengi. Annað með straum snúrunum og hinn með rpm snúrinni(gul). Þá er hægt að tengja power endann í viftuhraðastjórnunarjúnitið og gula endann í móðurborðið til þess að geta skoðað rpm eins og með venjulega tengdri viftu

Kull
Nörd
Póstar: 114
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 19:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Kull »

Ég pantaði líka Vantec stýringu frá Start.is á miðvikudegi og fékk hana á mánudagskvöldi. Mjög gott stykki, virkar vel og er líka mjög flott. Hefði samt mátt fá staðfestingarpóst frá start.is um að pöntun væri móttekin, maður var aðeins farinn að ókyrrast á mánudeginum.
Svara