Þannig er mál með vexti að ég keypt mér móðurborð, örgjörva og minni í dag. Það er nú kannski ekki merkilegt en þegar ég ætla að fara sitja inn Windows og er með diskinn í geisladrifinn kemur bara "Booting From CD" og ekkert gerist.
Ég er búinn að láta CD Rom sem boot device 1,2 og 3. Hef einnnig prufað að boota með Boot floppy en þá kemur bara einhver feill.
Já ég veit ekkert hvað ég á að gera.. Þannig að þið verðið að hjálpa mér
Þetta klassíska:
1. Settiru ekki örugglega kælikrem á örrann?
2. Passaðu að allir kaplar séu á réttum stað og örugglega í.
3. Taktu annað minnið úr og prófaðu, prófaðu síðan aftur með hinu.
4. Prófaðu annan IDE kapal
ef að þetta er diskur sem að IceCaveman vill ekki sjá.. prófaðu þá að skrifa annað eintak af disknum eða að nota annann win disk til að installa fyrst.
gnarr skrifaði:ef að þetta er diskur sem að IceCaveman vill ekki sjá.. prófaðu þá að skrifa annað eintak af disknum eða að nota annann win disk til að installa fyrst.
Ég er búinn að prufa 2 Windows diska, hvorugur virkaði
Ég notaði líka annan disk sama kvöld til að setja Windows upp..
1. er harður diskur í vélinni til að loada upp cache fyrir installið,
2. virkar innraminnið alveg örgulega, líka fyrir cache....
3. testaðu annað stýrikerfi, eins og Linux eða BSD og sjáðu hvaða villuboð koma, þau eru yfirleitt skiljanlegri en þau sem windows koma og koma ekki með. :>
Líklegast er eins og ég segi að innraminni eða HD sé bilað/vanti/of lítið, því að installið þarf að loada sig inná eithvað preferably innraminnið...
Mjög gott er að taka öll óþarfa kort eða drif úr sambandi þegar maður er að reyna að komast að hvað er í gangi... s.s. netkort, hljóðkort o.s.frv. og reyna að installa windows með sem minnst af drasli í gangi