Takk kærlega fyrir svarið! Ég er með gamlan turn inni í eldhússkáp hjá mér (ehemm) og ætla því líka að kaupa mér auka kassaviftu sem ég ætla að setja á hurðina, til að lofta betur. En annars er ég með tvo harða diska (gamla, annar 20GB hinn 100GB, bara ATA) og er með AMD XP2200+ á 1,67 GHz.
Þar sem tölvan er inni í eldhúsi hjá mér (snúra í gegnum vegginn inn í stofu) er ekki krítískt að hún sé algjörlega hljóðlaus, bara skemmtilegra að það bergmáli ekki í viftunni um alla íbúð. Auk þess er þetta ekki mjög traustvekjandi svona.
Takk fyrir ábendinguna, ég er reyndar þegar búinn að panta þetta PSU:
http://computer.is/vorur/2526, þannig að nema að þið ráðleggið að kaupa frekar hið dýrara hjá att.is, þá ætla ég að halda mér við það. Það er ekkert krítískt fyrir mig að fá SATA tengi.