Jæja var að pæla fá mér fyrrgreind headphone Zalman ZM-RS6F Surround
Sound Headphones. Var bara að pæla hvort einhver hér hefði einhverja
reynslu af þeim. Væri gaman að heira smá feedback. Eru þau peningana
virði og þanni háttar.
Strákur sem ég þekki átti svona, þá var ég með mín Sennheiser HD-595 og ég get sagt þér það að hljóðmunurinn var hlægilegur.
Við vorum báðir með innbyggt hljóðkort þannig að það var ekki málið.. sándið var gjörsamlega dautt í Zalman heyrnatólunum m.v. Sennheiserinn.
Mæli aldrei með neinu öðru en Sennheiser varðandi heyrnatól, t.d. eru att, pfaff og computer.is með þannig græjur.
Annars er Sennheiser HD-650 toppur tilverunar, kosta reyndar 42k en ég hef aldrei átt betri heyrnatól :>
Zedro skrifaði:Jæja var að pæla fá mér fyrrgreind headphone Zalman ZM-RS6F Surround
Sound Headphones. Var bara að pæla hvort einhver hér hefði einhverja
reynslu af þeim. Væri gaman að heira smá feedback. Eru þau peningana
virði og þanni háttar.
Zedro skrifaði:Jæja var að pæla fá mér fyrrgreind headphone Zalman ZM-RS6F Surround
Sound Headphones. Var bara að pæla hvort einhver hér hefði einhverja
reynslu af þeim. Væri gaman að heira smá feedback. Eru þau peningana
virði og þanni háttar.
halldor skrifaði:Opin eru víst betri í skotleiki eða á stöðum sem þú þarft að staðsetja hljóð (sándspotta eins og það er kallað), þetta sagði sölumaður í pfaff mér.
Annars, getur einhver sagt mér basic muninn á opnum/lokuðum heyrnartólum (þá á ég við hvort er betra hvenær).
Ég held að munurinn sé basicly að það er ýktari bassi í lokuðu heyrnartólunum og á móti sé verri discant, opnu heyrnatólin finnst mér gefa miklu tærari og betri tón, þau gefa að mínu mati bæði nákvæmari discant og bassa en hin. Enda sérðu að öll high end heyrnatólin frá þeim eru opin. http://www.sennheiser.com/sennheiser/ic ... s_high-end
Sennheiser verða betri eftir því sem þau verða dýrari, svipað og bara allt annað. Þú verður hins vegar alltaf að meta hvort þú viljir eyða x miklum pening í y mikla bætingu.
Hilmar hefur þetta alveg rétt.
Þó er 595 nú peningarsóun miðað við verðið á allri 500 seríunni.
lokuð headphone eru mun ónákvæmari. alveg miiiklu ónákvæmari. Til að geta gert nákvæmar bylgjur þurfa þær að hafa "opið" svæði. Þessvegna eru hljóð stúdíó byggð með fullt af fölskum veggjum, til að hljóðbylgjurnar hafi nægt svæði til að myndast.
Hinsvegar eru lokuð headphone náttúrulega miklu sniðugri þegar það má ekki smitast hávaði. Eins og þegar maður er að taka upp söng eða trommur í stúdíói, eða þegar ég er að hlusta á pig destroyer í vinnunni hliðiná bylgju englabörnunum..
Hættið að blanda því inn í allar umræður hvað er Pro og að lokuð headphones séu það versta í heimi, það hefur ekkert með það að gera hvað hentar meðal Jóni.
Þessi maður er AUGLJÓSLEGA ekki að fara að nota þetta í pro vinnslu enda eru þetta 5.1 og hann er augljóslega að sækjast eftir ENTERTAINMENT.
Flestir eru með gífurlega mikin hávaða t.d. í viftum sem lokuð headphones hjálpa að kæfa það.
Lokuð headphones gefa frá sér minna hljóð út á við svo þú getur auðveldlega hlustað á nokkuð hátt þó það sé einhver sofandi rétt hjá þér en opin hleypa hljóðinu út óhindrað.
Margir elska bassa og er frekar sama um skæru tónana....
Varðandi þessi Zalman heyrnatól þá á ég ein og þótt þau séu lokuð er bassin gjörsamlega geldur og hljóðið gæti varla verið hrárra. Ég gef þeim 3 af 10 í hljóði, já ég á líka við í bíómyndum og tölvuleikjum.
ICM: að er akkúrat það sem ég var að segja. Bassinn hefur ekkert svæði til að verða til, þessvegna vantar oft mjög mikla lágtíðni í lokuð headphone, sem er reint að "fixa" með því að boosta kringum 120Hz, en það náttúrulega gefur bara boost í 120Hz, en ekkert dýpri hljóm.
Þetta er hlutur sem margir falla fyrir og halda þessvegna að bassinn sé "betri" í lokuðum, bara vegna þess að hann er hærri. En það er akkúrat öfugt, bassinn er mun betri í opnum headphoneum, og sama með allar aðrar tíðnir.
En eins og ég sagði: "Hinsvegar eru lokuð headphone náttúrulega miklu sniðugri ... þegar ég er að hlusta á pig destroyer í vinnunni hliðiná bylgju englabörnunum.."
Mæli bara með Sennheiser frábært merki og hverra krónu virði.
Skipti líka út heirnatólunum sem fylgdi IPot nano yfir í Sennheiser tappa sem er stungið í eirun og þetta breitti nano spilaranum úr mp3 spilara í tónleikahöll bókstaflega.
**Intel E8400 3.0GHz**Gigabyte EP45-UD3L**GeIL Ultra Plus 4GB 2x2GB**Inno3D iChill GTX275**SAMSUNG SyncMaster 2693HM**1x1.5Tb**1x1Tb**1x750GB**1x500GB**Antec 1000W PSU** Með LFC kveðju Gerrard
gnarr venjulegi fólki er alveg sama um það enda flestir búnnir að eyðileggja í sér eyrun hvort sem er, sérstaklega hæfileika þeirra til að nema skærú tónana.
En fólki er alveg sama um að þetta sé ekki raunverulegur bassi, þetta myndar meira feedback en flest opin headphones og það er það sem fólk sækist eftir. Þegar fólk fær sér subwoofer í stofuna þá ætlast það til að hlutirnir skjálfi en ekki bara að þeir hljómi vel.
Hvað segiru um $500 lokuð earphones eru þeir drasl? Mér finnst mun betra hljóð í góðum earphones heldur en flestum headphones og earphones eru lokuð.
IceCaveman skrifaði:Varðandi þessi Zalman heyrnatól þá á ég ein og þótt þau séu lokuð er bassin gjörsamlega geldur og hljóðið gæti varla verið hrárra. Ég gef þeim 3 af 10 í hljóði, já ég á líka við í bíómyndum og tölvuleikjum.
Ég myndi ekki gefa þeim alveg jafn slæma dóma, en vil skrifa undir því hljóðið í þeim er vægast sagt slakt. Góð stereó heyrnartól með góðum HRTF eru miklu betri en Zalman í gegnum 5.1 output. Það borgar sig miklu frekar að fá sér X-Fi og góð Sennheiser en að nota t.d. M-Audio Revo við Zalman.
Reyndar get ég gefið þeim það að hljómurinn veltur líka á hljóðkortinu. Drifin í gegnum 5.1 á Audigy korti hljóma þau hrikalega, en mun betur í gamla Aureal Vortex2 kortinu mínu (stillt á headphone) sem ég henti í aðra tölvu. Og það er í gegnum aftari hátalarana á þeim, því ég skipti einmitt í Sennheiser af því að sambandið fór í miðju hátölurunum. Samt hljóma þau betur núna en þau gerðu ný í Audigy.
Þakkir til allra sem hafa gefið sér tíma til að svara.
Eftir að hafa lesið öll bréfin er ég farinn að hallast að essum Sennheiser
(að vísu ekki þeim sem eru á 40k). Núner bara fara skoða úrvalið.
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA Kísildalur.is þar sem nördin versla