Vantar nýjan aflgjafa með hverju mælið þið
Er sjálfur svolítið hrifin af OCZ en veit svo sem ekkert um hann og ég get ekki fundin hvað það er mikill hávaði í honum
ég var með OCZ 520W í gömlu vélinni minni og ég heyrði nákvæmlega engann hávaða í því nema að ég væri með eyrað alveg uppað viftunni.. annars eru þetta bara mjög þægileg psu og auðvellt að setja þau upp (þar að segja snúrur og fleira).
Já ég hef góða reynslu af þessum aflgjafa er búinn að vera OCZ Modstream 520 W síðan ég fékk tölvuna mína, ekki neitt vesen ekkert mikill hávaði frá honum (heyrist auðvitað eitthvað frá viftunni)
Af þessum þá er OCZ bestur, ég vil nú samt benda á Aspire aflgjafana sem ég er að selja, 520W Aspire PSU hefur 12V1:16A, 12V2:18A, 5V:29A og 3,3V:30A eru með þrem LED viftum og viftustýringu fyrir þær. Þar fyrir utan eru þeir freaking glæsilegir:
wICE_man skrifaði:Af þessum þá er OCZ bestur, ég vil nú samt benda á Aspire aflgjafana sem ég er að selja, 520W Aspire PSU hefur 12V1:16A, 12V2:18A, 5V:29A og 3,3V:30A eru með þrem LED viftum og viftustýringu fyrir þær. Þar fyrir utan eru þeir freaking glæsilegir:
Og svo er það besti parturinn, þeir eru ódýrari en hinir: 7.800kr.
Af því sem ég hef lesið mér til eru þeir stabílir og öruggir á við þá bestu, ég allavega ábyrgist þá.
Veist þú hvað hávaðin er í aspire 520W min/max.
Ég er með 450 MadDog PSU sem að ég fékk í USA líkar mjög vél við hann og sérstaklega verðið sem er ekki mikið miðað við OCZ.
En hann er með viftustýringu og það heyrist frá nánast engu uppí að vera þónokkuð mikill, hann er með 3 viftum 1x120 2x80.
**Intel E8400 3.0GHz**Gigabyte EP45-UD3L**GeIL Ultra Plus 4GB 2x2GB**Inno3D iChill GTX275**SAMSUNG SyncMaster 2693HM**1x1.5Tb**1x1Tb**1x750GB**1x500GB**Antec 1000W PSU** Með LFC kveðju Gerrard
Þetta er ekki spurning um hljóð þetta er spurning um áræðanleika og afl
Tölvan mín er eins og sumir myndu kalla hvirfibyl en mér er alveg sama þar sem ég hlusta hvorsumer alltaf á tónlist á meðan ég er í tölvunni.
Þess vegna er gott að hafa viftustýringu, þá getur maður stillt það þannig að það heyrist nánast ekkert í lægstu stillingu og ég kalla það nú ekki heldur hvirfilbil í hæðstu stillingu.
Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal
ÓmarSmith skrifaði:En á fyrri bréfi frá þér tel ég þig ekki vera "chelsari" og vona að þú sérst ekki "Arsenalari" því að þá gæti samband okkar verið í hættu
þú meinar kannski "Nallari",, við erum kallaðir það