Skipta um bílskurshurð.
Skipta um bílskurshurð.
Nú er komið að því fyrir mig að skipta um bílskúrðshurðina hérna hjá mér, mig langar að taka þessu projectí beinlínis á mig þar sem mér tókst fullkomlega að innrétta eldhúsið hjá mér með aðstoð youtube frá A til Ö, þá ætti þetta ekki að vera vandamál. Mæla stærð gatið, vegg þykktin og hvað mikið milli bíl á milli hurðagat og veggja, siðan koma þessu bara á er það ekki bara?. Hvað kosta svoleiðis hurðir hérna heima? þetta á náttrulega að þola íslenska veðrið.
Edit: Langar svo að koma mótor á þetta, eru þessir mótorar ekki undir 60þúsund?
Edit: Langar svo að koma mótor á þetta, eru þessir mótorar ekki undir 60þúsund?
Last edited by Semboy on Lau 07. Ágú 2021 12:12, edited 2 times in total.
hef ekkert að segja LOL!
Re: Skipta um bílskurshurð.
Fáðu þér öxultengdan mótor, þau kerfi eru eitthvað dýrari, en svo miklu öflugri og vandaðri.
Re: Skipta um bílskurshurð.
Glófaxi og Héðinn hafa verið þeir helstu sem eru að flytja inn hurðar, mæli með að hafa ekki gönguhurð nema þú þurfir þess og ef það þurfa að vera gluggar ættu það að vera gluggar sem koma tilbúnir sem heilir flekar en ekki útskornir.
Vill oft ryðga þar sem skorið er út fyrir gluggunum og eins gönguhurðunum.
Eins mæli ég með að bóna þær fyrir veturinn.
Vill oft ryðga þar sem skorið er út fyrir gluggunum og eins gönguhurðunum.
Eins mæli ég með að bóna þær fyrir veturinn.
Re: Skipta um bílskurshurð.
Viðbót við gluggana, þéttikantarnir dragast örlítið saman með aldrinum sem veldur leka og ryðvandamálum eins og arons4 talaði um.
Hjartanlega sammála honum um að vera með heila gluggafleka ef eiga að vera gluggar yfirleitt.
Hjartanlega sammála honum um að vera með heila gluggafleka ef eiga að vera gluggar yfirleitt.
-
- /dev/null
- Póstar: 1385
- Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skipta um bílskurshurð.
Talaðu við Jóa í Héðins hurðum.
7700K | Maximus IX Hero | 32GB | 1TB 960 Pro m.2 | GTX 1080 Ti | Corsair AX1200i | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Re: Skipta um bílskurshurð.
Telst víst ekki hlutlaus en mæli klárlega með Héðins hurðum. Veit ekki hvernig staðan er í dag en amk fyrir nokkrum árum voru þeir með þykkri fleka en keppinautarnir. Sömuleiðis eiga þeir allt í þetta á lager ef einhvað kemur upp á þóg að heilar hurðir panti þeir frá framleiðanda. Nota sömuleiðis sverari víra en ég hef séð á öðrum hurðum. Verð að vera sammála með öxuldrifinn mótor og þá sérstaklega ef hurðin er í stærri kantinum. Endilega taktu myndir og mældu þetta allt saman upp og kíktu á Jóa.
i9 10900k - asus maximus formula - RTX 3090 asus rog strix oc - TridentZ 32gb ddr4 4000 cl17 - 2tb 970 evo plus - phanteks enthoo 719 - be quiet dp 1200w - Full custom loop 2x360 2x480 2xd5 - Samsung odyssey G7
Re: Skipta um bílskurshurð.
Þakka öllum sem hafa svarað mér, Ætla pottþétt heyra í þetta lið sem þið eruð að nefna.
hef ekkert að segja LOL!
-
- Nörd
- Póstar: 108
- Skráði sig: Mán 15. Des 2014 17:31
- Staða: Ótengdur
Re: Skipta um bílskurshurð.
Ég skipti um 2 hurðir fyrir 2 árum og spurðist mikið fyrir um, allir voru sammála að Héðins hurðir væru málið.
Ég hef verið að gera upp húsið mitt með hjálp youtube og reyni að gera sem mest sjálfur. Það er mikill munur að setja upp eldhúsinnréttingu og bílskúrshurðir og ég er feginn að hafa fengið mann frá Héðni að setja upp mínar. Það kostaði þá jafnmikið og hurðirnar sjálfar.
Ég hef verið að gera upp húsið mitt með hjálp youtube og reyni að gera sem mest sjálfur. Það er mikill munur að setja upp eldhúsinnréttingu og bílskúrshurðir og ég er feginn að hafa fengið mann frá Héðni að setja upp mínar. Það kostaði þá jafnmikið og hurðirnar sjálfar.
Re: Skipta um bílskurshurð.
Úff, ég myndi ekki nenna að setja upp svona hurð sjálfur. Við endurnýjuðum hurðina hjá okkur síðasta sumar og fengum hurð frá Íshurðum. Þeir höfðu svo milligöngu um uppsetninguna, það komu tveir gaurar og rifu gömlu hurðina úr og settu þessa nýju í og settu upp rafmagnsopnarann o.þ.h. Þetta var þvílíkt föndur og tók þá alveg heilan vinnudag og rúmlega það. Ég reyni yfirleitt alltaf að gera allt sjálfur sem ég tel mig ráða við, en ég var feginn að hafa látið þá um þetta - ég hefði verið í viku að þessu
Last edited by hagur on Mið 11. Ágú 2021 07:43, edited 1 time in total.
Re: Skipta um bílskurshurð.
Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?
34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Re: Skipta um bílskurshurð.
Fer náttúrulega mikið eftir stærð hurðarinnar, en hjá mér var þetta svona:Dropi skrifaði:Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?
Ólituð hurð: 168þús
Málun í RAL lit (dökkbrúnn): 25þús
Rafdrifinn opnari: 39þús
Samtals c.a 232þús
Þetta er frá Íshurðum, verð frá því í fyrrasumar.
Ég man ekki alveg hvað ég borgaði svo fyrir uppsetninguna, það var eitthvað í kringum 100k minnir mig.
Re: Skipta um bílskurshurð.
Já, þetta verður áhugavert. Gæti verið ég þarf að fræsa og steypahagur skrifaði:Úff, ég myndi ekki nenna að setja upp svona hurð sjálfur. Við endurnýjuðum hurðina hjá okkur síðasta sumar og fengum hurð frá Íshurðum. Þeir höfðu svo milligöngu um uppsetninguna, það komu tveir gaurar og rifu gömlu hurðina úr og settu þessa nýju í og settu upp rafmagnsopnarann o.þ.h. Þetta var þvílíkt föndur og þá alveg heilan vinnudag og rúmlega það. Ég reyni yfirleitt alltaf að gera allt sjálfur sem ég tel mig ráða við, en ég var feginn að hafa látið þá um þetta - ég hefði verið í viku að þessu
hef ekkert að segja LOL!
Re: Skipta um bílskurshurð.
Takk fyrir, gott að vita!hagur skrifaði:Fer náttúrulega mikið eftir stærð hurðarinnar, en hjá mér var þetta svona:Dropi skrifaði:Ég þarf að gera þetta þegar ég tek bílskúrinn í gegn - hvað kostar sæmileg hurð og opnari almennt?
Ólituð hurð: 168þús
Málun í RAL lit (dökkbrúnn): 25þús
Rafdrifinn opnari: 39þús
Samtals c.a 232þús
Þetta er frá Íshurðum, verð frá því í fyrrasumar.
Ég man ekki alveg hvað ég borgaði svo fyrir uppsetninguna, það var eitthvað í kringum 100k minnir mig.
34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Re: Skipta um bílskurshurð.
Búinn að kynna mér þetta aðeins meira nánar og ég ætla láta fagmenn gera þetta yuck!
hef ekkert að segja LOL!