Er að spá í að prufa að fá mér skjávarpa í herbergið hjá mér, aðalega hugsað til a horfa þá á þætti og myndir, því minni því betra og vil fá amk sem ræður við full hd gæði. Skoðaði aðeins á amazon og rakst á þessa:
https://www.amazon.com/Projector-CiBest ... NrPXRydWU=
https://www.amazon.com/Projector-ELEPHA ... %3D&sr=8-3
Einhver með reynslu af þessum eða getur bent á svipaða sem hefur reynslu af á svona svipuðu verði?
Skjávarpi fyrir herbergi
Re: Skjávarpi fyrir herbergi
Hvorugur þessara er full hd heldur er native upplausnin 800x480
Ef þú vilt alvöru full hd varpa þarftu að borga amk 100.000kr fyrir slíkan nýjan
Ef þú vilt alvöru full hd varpa þarftu að borga amk 100.000kr fyrir slíkan nýjan
Ryzen 2600x - 24GB 2400MHz DDR4 - Phoenix GTX 1080 GLH 8GB - Gigabyte B450M DS3H
Re: Skjávarpi fyrir herbergi
Myndi gleyma þessum ódýru kínavörpum alveg. Farðu frekar í þekkt merki og varpa sem er native 1080P.dedd10 skrifaði:Er að spá í að prufa að fá mér skjávarpa í herbergið hjá mér, aðalega hugsað til a horfa þá á þætti og myndir, því minni því betra og vil fá amk sem ræður við full hd gæði. Skoðaði aðeins á amazon og rakst á þessa:
https://www.amazon.com/Projector-CiBest ... NrPXRydWU=
https://www.amazon.com/Projector-ELEPHA ... %3D&sr=8-3
Einhver með reynslu af þessum eða getur bent á svipaða sem hefur reynslu af á svona svipuðu verði?
EDIT:
Ég keypti eldri týpu af þessum á Amazon (HD142x minnir mig) fyrir 2-3 árum síðan:
https://www.amazon.com/Optoma-HD146X-Pe ... 270&sr=8-3
Kostaði í kringum 80þús hingað kominn með flutningi og gjöldum. Ég er mjög ánægður með hann. Færð ekki mikið meira "bang for the buck" þegar kemur að "alvöru" skjávörpum.
Last edited by hagur on Fös 18. Jún 2021 08:17, edited 1 time in total.
-
- spjallið.is
- Póstar: 441
- Skráði sig: Sun 05. Sep 2010 17:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skjávarpi fyrir herbergi
- Skjávarpar eru svakalega háværir og gefa frá sér mikinn hita (sem útskýrir hávaðann). Best að skoða reviews og fara í verslanir
- Bakgrunnurinn þarf að vera spegilsléttur. Hægt að kaupa rafmagnstjald til að setja í loftið
- Birtustig skjávarpa m.t.t birtu herbergis. Viltu þurfa draga fyrir í hvert skipti?
- Tengimöguleikar á boxi.
- Líftími peru
Persónulega fengi ég mér The Frame frá Samsung (ef ég týmdi því)

Ég er með 100.000 kr Epson varpa og það er algjör snilld. Var með kínavarpa og það er drasl, svipað og að horfa á vcd rippuðu diskana árið 2002. Ég er bara með hvítmálaðan vegg, ekkert tjald og það dugar mér.
Last edited by einarhro on Fim 17. Jún 2021 20:35, edited 1 time in total.
Re: Skjávarpi fyrir herbergi
á 720p kínavarpa sem ég get gefið þér, hef ekkert við hann að gera eftir að ég fékk mér 4k laser UST varpa
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB