LG 27GL850 er góður og vinsæll kostur ef þú getur fundið hann á lager. Ég er sjálfur með Lenovo Legion Y27Q-20 sem notar sama panel og LG skjárinn og er ánægður með hann.
Hausinn skrifaði:LG 27GL850 er góður og vinsæll kostur ef þú getur fundið hann á lager. Ég er sjálfur með Lenovo Legion Y27Q-20 sem notar sama panel og LG skjárinn og er ánægður með hann.
Mæli eindregið gegn þessum. Átti þennan sama Lenovo skjá en endaði á skila honum því birtuskil (e. contrast) hans eru einhver þau lélegustu sem ég man eftir að hafa séð. Það er þekkt vandamál í IPS skjám en þó er þessi óvenju slæmur. Myndgæðin í honum eru áberandi verri en í 8 ára gamla 25þ króna BenQ skrifstofuskjánum sem ég skipti frá.
Hann er kannski skoðandi ef þú vilt bara bestu svartímana í verðflokknum og þú ert tilbúinn að sætta þig við lélega mynd en fyrir nánast alla teldi ég eitthvað eins og OP stingur upp á mun betri kaup, sé sveigjan þeim þolanleg.
Palit RTX 3080 Gamerock OC, Ryzen 7 3800X, 32 GB Corsair Vengeance LPX 3200MHz, Gigabyte X570 Aorus Pro, Corsair RM750X, 2 TB Samsung 980 Pro + 2 TB Samsung 970 Evo Plus, GameMax Black Hole, Be Quiet! Dark Rock Pro 4 | 65" LG B9 OLED
Svona ef þú ert ekki búinn að verzla nú þegar, þá er 32" stærð ekkert must, 1440 lítur lang best út í 27" skjá (ég á báðar stærðir). Ef skrifborðið hjá þér er 60-70 cm á dýpt mæli ég klárlega með 27" , en ef þú ert með 80 cm skrifborð er þægilegra að vera með 32", myndin á 32" er teigðari en þú sérð nákvæmlega jafn mikið, svo 27" er hinn fullkomni skjár fyrir 1440 upplausn.
fékk þennan https://www.amazon.com/LG-35WN75C-B-Mon ... B08LLCPBQN á 105k kominn heim fyrir 3 vikum (var þá á tilboði) og er að fýla hann, er með power over usb-c sem og 2 usb tengi. virkar vel sem vinnustöð og í þá leiki sem ég spila.
5800x | dr pro 4 | RTX 3080ti |1tb PM981 | Asus Prime X570-P|32gb trident z neo 3600hz ddr4| lg-35wn75c-b