Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1802
- Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
- Staða: Ótengdur

Núna er ég með að verða 6 ára Philips sjónvarp, það er löngu hætt að uppfærast, Youtube og Spotify virka ekki lengur, Netflix appið orðið frekar úrelt og Hulu appið hefur aldrei verið í boði..
En sjónvarpið er mjög fínt ennþá og ég ætla að þrjóskast og nota það áfram. Hvaða kubb mælið þið með til að snjallvæða heimska sjónvarpið á ný ? er þá að hugsa út í Fire Stick og álíka, ég hef enga reynslu af neinu af þessu og veit í sjálfu sér ekkert um þetta. Einu kröfurnar eru að geta horft á helstu veiturnar(Netflix, Hulu, Youtube).

- Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Android Shield TV eða Apple TV eru bestu leiðirnar. Ymsir aðrir möguleikar en þetta eru bestu boxin sem eru í boði. Er sjálfur með Shield og get ekki verið sáttari.
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Mi Box frá Xiaomi er flott lausn. Það keyrir Android TV OS og er certified fyrir t.d 4K Netflix. Fæst hjá Nova.is, amk síðast þegar ég vissi.
Ódýrari kostur en Shield TV og ATV.
Ódýrari kostur en Shield TV og ATV.
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Chromecast with Google TV virðist koma vel út. Töluvert ódýrara en Nvidia Shield.
https://elko.is/chromecast-me-google-tv-ccgoogletv

Have spacesuit. Will travel.
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
er akkúrat að skoða Nvidia Shield 4K til að geta notað: Us netflix, hulu, disney+ og viaplay, myndi ég geta það með Nvidia Shield?
-
- Gúrú
- Póstar: 561
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Staða: Ótengdur
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Xbox One S / X og Series S eru aðaltækin í afþreyingu á mínu heimili. Notkunin er eftirfarandi:
- Netflix
- Hulu
- Microsoft, leiga á myndum og kaup á þáttum.
- Disney+
- Primevideo
- Google Play afspilun á myndum sem hafa verið leigðar/keyptar í gegnum Youtube appið.
Þegar ég keypti fyrstu One S vélina var hún um c.a. 20-22 þúsund krónur á tilboði. Nýja Series S var um 47 þúsund ef ég man rétt, hún er algerlega hljóðlaus og mun minni en eldri vélar (er þó ekki með Blu Ray drifi).
Keypti þó nýtt Chromecast með GoogleTV fyrir jól til prufu, þetta kemur skemmtilega á óvart. Er þó ekki með Hulu uppsett ennþá. Er með eftirfarandi þjónustur uppsettar:
- Netflix
- Disney+
- Primevideo
- Google þjónustur
Eftir að hafa fengið Chromecast með fjarstýringu þá hef ég ekki notað "casting" möguleikann einu sinni. En ég er mjög ánægður með gripinn. Ef þú myndir nota eitthvað af þessum auka möguleikum sem Shield hefur upp á að bjóða myndi ég kaupa það en ég get ekki kvartað yfir nýja Chromecastinu því mér dugir þetta með Xbox vélunum. Ég sé fram á að uppfæra einhver 4-5 gömul Chromecast tæki í þetta nýja á árinu.
Ég lenti í einum bögg yfir jólin það var að geta ekki tengst yfir WiFi, ég tók gripinn úr sambandi í svolítinn tíma og þá gat ég tengst aftur, þetta hefur ekki komið upp síðan þa´.

Er ég að skilja lýsinguna rétt samt? Þarf ég alltaf að spila efnið úr annari tölvu/tæki og varpa því í þchromecast?audiophile skrifaði:Chromecast with Google TV virðist koma vel út. Töluvert ódýrara en Nvidia Shield.
https://elko.is/chromecast-me-google-tv-ccgoogletv
edit*
Televisionary var að svara þessu
Nvidia Shield er ábyggilega mjög flott, en ég held það sé overkill til að horfa annað slagið á Netflix/Hulu..
Eru einhverjir með reynslu af Amazon New Fire TV
Last edited by Snorrmund on Mán 04. Jan 2021 09:56, edited 1 time in total.
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Apple tv er eina sem er notað hér
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
skrítið hvað google tv er dýrt hérlendis miðað við að það kostar 50USD í USA.
Dæmi Apple tv 4k 32gb kostar 179USD og selst á íslandi á 35þ
chromecast with google tv kostar 50USD og selst á Íslandi á 17þ
ég er annars mjög sáttur með apple tv 4k sem smart lausn á mitt sjónvarp. Virkar mjög vel í allt sem þarf. Eina sem ég hef séð sem kost við android tv er að þar eru meiri möguleikar á VPN lausnum
Dæmi Apple tv 4k 32gb kostar 179USD og selst á íslandi á 35þ
chromecast with google tv kostar 50USD og selst á Íslandi á 17þ
ég er annars mjög sáttur með apple tv 4k sem smart lausn á mitt sjónvarp. Virkar mjög vel í allt sem þarf. Eina sem ég hef séð sem kost við android tv er að þar eru meiri möguleikar á VPN lausnum
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Chromecast með google tv er bara android box og þú þarft ekki að varpa úr tölvu til að nota það.
Fjarstýring og alles.
Allar helstu streymisveitur virka í því og RÚV og væntanlega NovaTV (hef ekki prófað það).

Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1802
- Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
- Staða: Ótengdur
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Ég þakka öll svörin Ég fór og keypti Chromecast og það kemur vel út enn sem komið er! Er einhver sem veit hvað þarf að gera til að fá Hulu til að virka í þessu ? Ég get horft í tölvu og castað i chromecastið, en ég get bara ekki sótt hulu appið í chromecast út af staðsetningu? Er þetta kannski eitthvað sem maður lifir bara með ?
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Getur sótt apk fyrir Hulu hér og sideloadað því:
https://www.apkmirror.com/apk/hulu/hulu-android-tv/
https://www.gadgethacks.com/how-to/side ... n-0342732/
https://www.apkmirror.com/apk/hulu/hulu-android-tv/
https://www.gadgethacks.com/how-to/side ... n-0342732/
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Er þetta ekki bara fyrirmyndarafsökun fyrir því að fjárfesta í PS5 þegar hún loksins kemur aftur á klakann? Er hún ekki með þessar helstu streymisveitur?
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1802
- Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
- Staða: Ótengdur
Re: Horfa á streymiveitur í úreltu snjallsjónvarpi.
Þetta að sjálfsögðu svínvirkaði! Takk kærlega fyrir þetta!zurien skrifaði:Getur sótt apk fyrir Hulu hér og sideloadað því:
https://www.apkmirror.com/apk/hulu/hulu-android-tv/
https://www.gadgethacks.com/how-to/side ... n-0342732/
Það væri náttúrulega algjör snilld, og ég hugsaði alveg út í það. En fannst það ekki réttlætanlegt að afsaka verðmuninn til að kaupa mér leikjatölvu sem ég myndi ábyggilega nota alltof sjaldan í að spila tölvuleiki.B0b4F3tt skrifaði:Er þetta ekki bara fyrirmyndarafsökun fyrir því að fjárfesta í PS5 þegar hún loksins kemur aftur á klakann? Er hún ekki með þessar helstu streymisveitur?