jæja, þreittur á því að mamma sé alltaf að kenna mér um utanlands download, svo að vitiði um eitthvað forrit til þess að monitora og stjórna allveg öllu netkefi á heimilinu?
væri líka gott að geta skrúfað niður hraðan á netinu hjá hinum á meðan ég er í counter strike eða eitthvað slíkt
Ég held nú að það sé ekki til neitt eitt sérstakt forritið til þess að „monitora og stjórna allveg öllu netkefi á heimilinu“, en þú gætir hinsvegar náð nokkuð góðri stjórn á netkerfinu með hinum og þessum forritum.
Annars er ég ekki alveg viss hvað þér finnst felast í því að „monitora og stjórna allveg öllu netkefi á heimilinu“. Gefðu okkur hugmynd um hvað þú vilt geta gert, og þá getum við kannski nefnt forrit sem þú gætir notað.
biggi1 skrifaði:jæja, þreittur á því að mamma sé alltaf að kenna mér um utanlands download, svo að vitiði um eitthvað forrit til þess að monitora og stjórna allveg öllu netkefi á heimilinu?
væri líka gott að geta skrúfað niður hraðan á netinu hjá hinum á meðan ég er í counter strike eða eitthvað slíkt
[/u]
og líka að ég geti séð allt download hjá öllum og helst geta séð á hvaða síðu allir eru á og svo framvegis
Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
gnarr skrifaði:þú getur ekkert séð hvaða síður fólk er að skoða með proxy
Jú ef hann stjórnar proxyinum og allir nota hann
biggi1: ef maður er með linux vél sem router (eða önnur sviðuð kerfi) er hægt að fylgjast með hvaða ip á local laninu er að taka frá utlöndum eða inllendum ip-um.
Proxy er í raun göng sem netið fer í gegnum.
t.d ef þú ert með nettengingu og villt að allir á heimilinu fari í gegnum proxy og þú getur monitorað hvað er verið að skoða þá seturu upp server og proxy server og lætur allar hinar tölvurnar tengjast í proxy serverinn og síðan fetchar proxyinn þinn síðurnar og lætur hina tölvuna fá það sem hún bað um.
Þetta er í raun mjög einfölduð útskýring en þetta er nokkurnveginn hvernig þetta virkar.
Jamm, nokkuð fínt útskýring hjá Pandemic, en ég myndi frekar vilja líkja proxy við hlið, sem að öll gögnin fara í gegnum, frekar heldur en göng af því öll göng liggja eitthvað, en proxy'inn ekki.
MezzUp skrifaði:Jamm, nokkuð fínt útskýring hjá Pandemic, en ég myndi frekar vilja líkja proxy við hlið, sem að öll gögnin fara í gegnum, frekar heldur en göng af því öll göng liggja eitthvað, en proxy'inn ekki.
MezzUp skrifaði:Jamm, nokkuð fínt útskýring hjá Pandemic, en ég myndi frekar vilja líkja proxy við hlið, sem að öll gögnin fara í gegnum, frekar heldur en göng af því öll göng liggja eitthvað, en proxy'inn ekki.
Smámunasemi dauðanns
Jújú, má vel vera. Fannst þetta bara vera réttari myndlíking þótt að hin væri ágæt.
biggi1 skrifaði:og hvernig kemur proxy hjá hinum? bara eins og önnur nettenging eða?
og verður netið eitthvað hægara ?
Proxy kemur hjá hinum (vefþjónninn sem verið er að tengjast) eins og venjulegur notandi. Proxy'inn er vitaskuld örlítið hægari þar sem að boðin þurfa að fara lengri leið, en með ágætri tölvu og sómasamlegri tenginuni ættu menn ekki að finna fyrir því.
Svo er nú reyndar aðalkosturinn við proxy'a að þeir geyma þær síður sem að sóttar eru í gegnum þá, og ef að einhver annar kemur t.d. 4 mín. á eftir öðrum og biður um sömu síðuna, þá lætur proxy'inn viðkomandi fá afritið af síðunni sem proxy'inn var með, og þarf því ekki að bíða eftir hinum netþjóninum sem er með síðuna.
Svo er nú reyndar aðalkosturinn við proxy'a að þeir geyma þær síður sem að sóttar eru í gegnum þá, og ef að einhver annar kemur t.d. 4 mín. á eftir öðrum og biður um sömu síðuna, þá lætur proxy'inn viðkomandi fá afritið af síðunni sem proxy'inn var með, og þarf því ekki að bíða eftir hinum netþjóninum sem er með síðuna.
Getur líka verið ókostur eins og ég hef fengið að kynnast.[/quote]
Jújú, þegar margar síðurnar í dag eru orðnar 'dynamic' eru þær oft mismunandi eftir því hver skoðar þær, og henta því illa eða alls ekki til cache'unar í proxy'um.
Pandemic: Að hvaða leiti var það ókostur fyrir þig?
Það er hægt að bæta við no-cache skipun í HTTP header frá serverinum sem gerir að proxy-inn ætti ekki að cache-a skjalið heldur biðja um nýtt í hvert skipti.
Jamm, það er nú nauðsynlegt svo að síður eins og spjall.vaktin.is geti virkað í gegnum proxy'a. En það eru kannski ekki allir vefsmiðir sem átta sig á því þar sem að þeir prófa síðuna síða e.t.v. aldrei í gegnum proxy.