Einn hlaupahjólaþráðurinn enn, er núna að spá í að kaupa hjól sem krakkarnir geta notað saman en þyngd þeirra er frá 35kg til 55kg þannig að Xiaomi Pro ætti að vera sweetspot.
Er að skoða útsölustaði, doldið súrealískt að fjarskiptafyrirtækin séu að selja þessi hjól en hjólabúðirnar ekki.
Það virðast allir vera með sama verð 80k nema NOVA en þeir eru 5k undir, gallinn er bara sá að þeir eiga ekkert á lager.
Veit einhver hvort og þá hvar þessi hjól eru til á lager?
Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Fyrir stutta kommentar þú Já.is svo það ætti að vera þinn go to staður! Hægt að leita að vörum þar, finna vissulega ekki alla sölustaði en nokkuð marga;
https://ja.is/vorur/?q=m365%20pro
https://ja.is/vorur/?q=xiaomi%20pro&category=400
Síminn með til á 80k bæði í vefverslun og ármúla skv heimasíðu.
Edit; annars ef þú vilt spara þér 20-30þ detta þessi hjól reglulega á sölu á t.d. brask&brall og fleiri slíkum hópum á facebook, oftar en ekki lítið notuð.
https://ja.is/vorur/?q=m365%20pro
https://ja.is/vorur/?q=xiaomi%20pro&category=400
Síminn með til á 80k bæði í vefverslun og ármúla skv heimasíðu.
Edit; annars ef þú vilt spara þér 20-30þ detta þessi hjól reglulega á sölu á t.d. brask&brall og fleiri slíkum hópum á facebook, oftar en ekki lítið notuð.
Last edited by Lexxinn on Fim 18. Jún 2020 00:40, edited 1 time in total.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Þetta er kallað ýmsum nöfnum, hér eru fleiri: https://ja.is/vorur/?q=rafmagnshlaupahj%C3%B3l%20proLexxinn skrifaði:Fyrir stutta kommentar þú Já.is svo það ætti að vera þinn go to staður! Hægt að leita að vörum þar, finna vissulega ekki alla sölustaði en nokkuð marga;
https://ja.is/vorur/?q=m365%20pro
https://ja.is/vorur/?q=xiaomi%20pro&category=400
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Keypti eitt @siminn, litli 11 ára er búinn að keyra það hátt í 100km síðan í gær
- Viðhengi
-
- C5680F6F-73B6-4846-A6ED-EFE80BCA9129.jpeg (141.92 KiB) Skoðað 738 sinnum
-
- 450FF38C-A3EB-421A-8614-7BE4FF9D6A85.jpeg (536.3 KiB) Skoðað 738 sinnum
-
- FanBoy
- Póstar: 793
- Skráði sig: Þri 18. Apr 2006 01:26
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
11 ára á græju sem kemst í 25 km/h, ertu með honum eða leyfir þú honum að fara einn á "rúntinn"?
Lenovo Legion 5 - 2020 | Zyxel NAS 16TB | LG B8 OLED | PS5 | Klipsch 5.0 | Yamaha |
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 320
- Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Minn 8 ára hjólar á reiðhjólinu sínu á meira en 25kmh, samt fær hann að fara sjálfur út að hjóla með vinum sínum :'peturthorra skrifaði:11 ára á græju sem kemst í 25 km/h, ertu með honum eða leyfir þú honum að fara einn á "rúntinn"?
Ryzen 5950x, Arctic Liquid freezer II 240, Palit 3070, 64 gb 3200mhz G.skill, 1tb gen4 m.2, 512 gb nvme, 2x 250 gb samsung ssd, Asrock PG Velocita X570, 850w psu, Be Quiet! Kassi.
-
- FanBoy
- Póstar: 793
- Skráði sig: Þri 18. Apr 2006 01:26
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Já, minn líka. En ég hef leyft mínum að prófa mitt m365 á meðan ég var einnig með honum á öðru m365 og þessar græjur eru 0.1 í 25 km/h, þegar guttarnir eru litlir og léttir. Mér finnst ekki hægt að bera saman rafmagnshlaupahjól við reiðhjól, vegna inngjafar. Ég allavega tók þá ákvörðun að leyfa honum ekki að fara á rúntinn einn á svona tæki, því ég er hræddur um slysahættuna. Viðbrögð eru misjöfn, sumir gefa jafnvel í þegar það á að bremsa (ef hætta kemur upp). Ber að nefna strákinn sem keyrði niður 10 ára stelpu í Reykjanes.Dóri S. skrifaði:Minn 8 ára hjólar á reiðhjólinu sínu á meira en 25kmh, samt fær hann að fara sjálfur út að hjóla með vinum sínum :'peturthorra skrifaði:11 ára á græju sem kemst í 25 km/h, ertu með honum eða leyfir þú honum að fara einn á "rúntinn"?
Lenovo Legion 5 - 2020 | Zyxel NAS 16TB | LG B8 OLED | PS5 | Klipsch 5.0 | Yamaha |
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Jú ég leyfi honum að fara einum á „rúntinn“, veit það er alltaf ákveðin áhætta og hefði eflaust ekki leyft fyrstu börnunum það en maður sjóast og minnkar bómullinn eftir því sem börnin verða fleiri. Þorpið hérna á Kjalarnesi er líka rólegt og barnvænt. Fór í góðan göngutúr í Garðabænum í gær, tók hjólið með og hann hjólaði fram og aftur á stígunum meðan við foreldrarnir löbbuðum. Varðandi stelpuna sem keyrð var niður í Reykjanesbæ þá er hún dóttir bróður míns, það breytir þó ekki afstöðu minni því ég þekki litla kallinn minn vel og treysti honum.peturthorra skrifaði:Já, minn líka. En ég hef leyft mínum að prófa mitt m365 á meðan ég var einnig með honum á öðru m365 og þessar græjur eru 0.1 í 25 km/h, þegar guttarnir eru litlir og léttir. Mér finnst ekki hægt að bera saman rafmagnshlaupahjól við reiðhjól, vegna inngjafar. Ég allavega tók þá ákvörðun að leyfa honum ekki að fara á rúntinn einn á svona tæki, því ég er hræddur um slysahættuna. Viðbrögð eru misjöfn, sumir gefa jafnvel í þegar það á að bremsa (ef hætta kemur upp). Ber að nefna strákinn sem keyrði niður 10 ára stelpu í Reykjanes.Dóri S. skrifaði:Minn 8 ára hjólar á reiðhjólinu sínu á meira en 25kmh, samt fær hann að fara sjálfur út að hjóla með vinum sínum :'peturthorra skrifaði:11 ára á græju sem kemst í 25 km/h, ertu með honum eða leyfir þú honum að fara einn á "rúntinn"?
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 320
- Skráði sig: Þri 27. Mar 2007 10:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Xiaomi 365 Pro sölustaðir?
Svo er líka bara hægt að setja þetta firmware upp á hjólunum, stilla hröðunina og hámarkshraðann. Það er eiginlega fáránlegt að þetta sé ekki innbyggt í standard prógrammið á þessum hjólum, eitthvað svona parent mode. https://m365pro.scooterhacking.org/
Ryzen 5950x, Arctic Liquid freezer II 240, Palit 3070, 64 gb 3200mhz G.skill, 1tb gen4 m.2, 512 gb nvme, 2x 250 gb samsung ssd, Asrock PG Velocita X570, 850w psu, Be Quiet! Kassi.