Vivaldi - Íslenskur vafri
Vivaldi - Íslenskur vafri
Sæl,
Vivaldi er norsk+íslenskur vafri. Við erum með teymi á Eiðistorgi (https://innovationhouse.is/) og í Osló og einhverja hér og þar um heiminn. Við vorum að sleppa nýrri útgáfu með tracker og ad blocker og Vivaldi er nú á Android líka.
Ég er forvitinn. Hvað eru margir hér sem þekkja og nota Vivaldi?
Það er hægt að ná í vafrann á https://vivaldi.com/is/, ef þið hafið ekki prófað hann.
Jón.

Last edited by JónSvT on Fös 08. Maí 2020 16:05, edited 3 times in total.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Hmm. Skrítið. Það að skrifa Vivaldi.is virkar líka, en breytti þessu.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
5 ára! Vel gert!!
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=588680#p588680
Annars þá fíla ég V'ið í Favicon best

- Viðhengi
-
- vivaldi.JPG (18.39 KiB) Skoðað 7930 sinnum
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
GuðjónR skrifaði:5 ára! Vel gert!!
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=588680#p588680
Annars þá fíla ég V'ið í Favicon best
Þú hefur ekki heimild til að lesa þetta spjallborð.
þetta kemur ef ég klikka á linkinn
Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Takk fyrir það. Það virkar! Og hjá ykkur líka!
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Gaman að sjá þig sjálfan hér inni!
Ég hef nokkrum sinnum notað Opera/Vivaldi í gegnum tíðina, án þess þó að hafa orðið stöðugur notandi, en eftir að hafa lesið mig aðeins til núna væri ég til í að prufukeyra hann aftur.
Hvernig gengur hjá ykkur og hverjar eru notendatölurnar?
Hvernig er Vivaldi fjármagnaður ?

ég ætla að prófa hann takk
TURN :
Gamemax Titan Silent | Ryzen9 5900X @ 4.60 ghz | Corsair Hydro Series H100i RGB Platinum | ASRock X570 Steel Legend | G.Skill 32GB Trident Neo 3600MHz DDR4 | PowerColor Radeon RX 6800 Red Dragon 16GB | Corsair HX1200i | TCL 55" | 2x Samsung 980 Pro NVMe PCIe M.2 1TB. Read 12.000 mb/s Write 10.000 mb/s| Razer Mamba þráðlaus leikjamús | Jbl quantum duo | 53 tb pláss

- Bara að hanga
- Póstar: 1591
- Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
- Staðsetning: Cicada - 3301
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
hef notað þennann vafra inn á milli með fireox fyrir löngu
hefur alltaf fundist vanta eitthvað,
spurnsmál að prófa hann aftur og sjá hvað fimm

Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-3800X @ 4.6 ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080
Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080
Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Takk! Gaman að vera hérna.ABss skrifaði:Gaman að sjá þig sjálfan hér inni!
Ég hef nokkrum sinnum notað Opera/Vivaldi í gegnum tíðina, án þess þó að hafa orðið stöðugur notandi, en eftir að hafa lesið mig aðeins til núna væri ég til í að prufukeyra hann aftur.
Hvernig gengur hjá ykkur og hverjar eru notendatölurnar?
Hvernig er Vivaldi fjármagnaður ?
Vonandi gefur þú okkur meiri tíma. Það er smávegis svona með Vivaldi að við erum með svo mikið af hlutum byggða inn að það getur tekið tíma að finna það allt! Sjálfur nota ég hluti eins og single key keyboard shortcuts, sem auðvitað er eitthvað sem maður verður að kveikja á og læra að nota.
Notandafjöldinn er að aukast. Erum með um eina og hálfa milljón mánaðarlega notendur núna. Ótrúlega gaman að fá út Vivaldi 3.0 með tracker blocker, ad blocker, spatial navigation og klukku! Svo var líka gaman að fá út Android útgáfuna. Gerum þetta smá öðruvísi þar líka. Sýnum tabs og erum auðvitað með sync og notes, og svo framvegis. Svo erum við að vinna með að fá út tölvupóstinn og dagatalið. Mikið í gangi núna!
Ég fjármagna Vivaldi. Allir starfsmenn eiga hlut, en ég kem með peninginn. Við viljum ekki hafa aðra fjárfesta. Við viljum sjá til þess að Vivaldi haldi áfram að vera forrit fyrir notendurna og ekkert annað!
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Flott! Verður gaman að heyra hvað þér finnst!emil40 skrifaði:ég ætla að prófa hann takk
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Gott mál. Væri forvitnilegt að heyra hvað þér vanti, ef eitthvað er. Við erum með mikið meira byggt inn en aðrir vafrar og extensions virka að mestu leiti líka. Það tekur stundum smá tíma að kynnast öllu sem við höfum. Það er svo mikið.jojoharalds skrifaði:hef notað þennann vafra inn á milli með fireox fyrir löngu
hefur alltaf fundist vanta eitthvað,
spurnsmál að prófa hann aftur og sjá hvað fimm
Jón.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Ákvað aðallega að prófa Vivaldi til að athuga hvort íslenska þýðingin væri góð, get sagt að hún er til fyrirmyndar, get ekki sagt að ég hafi verið týndur við að nota vafrann þó svo að ég sé vanur að nota enska viðmótið dags daglega .
Kann ágætlega við viðmótið/útlitið (reyndar þurfti ég að þysja sjálfgefna notendaviðmótið út svo að fontur liti eðlilega út í upphafi úr 100% í 140% samanborið við Firefox) Annars hefði ég þurft að píra augun við lestur.
Flott framtak (er sjálfur ekki á markaðnum eftir nýjum vafra en gott að vita hvað er í boði).

Last edited by Hjaltiatla on Fös 08. Maí 2020 22:41, edited 2 times in total.
Just do IT
√
√
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Við erum auðvitað að reyna að gera okkar besta að byggja íslenskan vafra. Fleiri hafa lagt mikið í það að gera þýðinguna eins góða og hægt er. Gott að heyra að það er að virka!Hjaltiatla skrifaði:Ákvað aðallega að prófa Vivaldi til að athuga hvort íslenska þýðingin væri góð, get sagt að hún er til fyrirmyndar, get ekki sagt að ég hafi verið týndur við að nota vafrann þó svo að ég sé vanur að nota enska viðmótið dags daglega .
Kann ágætlega við viðmótið/útlitið (reyndar þurfti ég að þysja sjálfgefna notendaviðmótið út svo að fontur liti eðlilega út í upphafi úr 100% í 140% samanborið við Firefox) Annars hefði ég þurft að píra augun við lestur.
Flott framtak (er sjálfur ekki á markaðnum eftir nýjum vafra en gott að vita hvað er í boði).
Hmm. Athyglisvert að þetta sé lítið hjá þér. Ætti ekki að vera öðru vísi en aðrir vafrar, en auðvitað gott að það er einfalt að breyta þessu í Vivaldi.
Hvað stoppar þig í að skipta yfir? Væri gott að skilja það. Við hlustum á okkar notendur. Það er ein af ástæðunum fyrir því að það er svo mikið af möguleikum í Vivaldi. Í stað þess að safna gögnum um notendurna, þá hlustum við bara á hvað þeir vilja. Svo byggjum við inn allt af möguleikum. Þannig þurfa margir smá tíma til að finna allt það sem við höfum upp á að bjóða, en þegar það er gert þá virkar vafrinn mjög vel fyrir flesta.
Jón.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Er að nota Ubuntu 20.04 stýrikerfið , veit ekki hvort það skipti einhverju máli (mögulega er ég eitthvað jaðartilfelli) og installaði 64 bita .Deb skránni af Vivaldi.com.JónSvT skrifaði:Við erum auðvitað að reyna að gera okkar besta að byggja íslenskan vafra. Fleiri hafa lagt mikið í það að gera þýðinguna eins góða og hægt er. Gott að heyra að það er að virka!Hjaltiatla skrifaði:Ákvað aðallega að prófa Vivaldi til að athuga hvort íslenska þýðingin væri góð, get sagt að hún er til fyrirmyndar, get ekki sagt að ég hafi verið týndur við að nota vafrann þó svo að ég sé vanur að nota enska viðmótið dags daglega .
Kann ágætlega við viðmótið/útlitið (reyndar þurfti ég að þysja sjálfgefna notendaviðmótið út svo að fontur liti eðlilega út í upphafi úr 100% í 140% samanborið við Firefox) Annars hefði ég þurft að píra augun við lestur.
Flott framtak (er sjálfur ekki á markaðnum eftir nýjum vafra en gott að vita hvað er í boði).
Hmm. Athyglisvert að þetta sé lítið hjá þér. Ætti ekki að vera öðru vísi en aðrir vafrar, en auðvitað gott að það er einfalt að breyta þessu í Vivaldi.
Hvað stoppar þig í að skipta yfir? Væri gott að skilja það. Við hlustum á okkar notendur. Það er ein af ástæðunum fyrir því að það er svo mikið af möguleikum í Vivaldi. Í stað þess að safna gögnum um notendurna, þá hlustum við bara á hvað þeir vilja. Svo byggjum við inn allt af möguleikum. Þannig þurfa margir smá tíma til að finna allt það sem við höfum upp á að bjóða, en þegar það er gert þá virkar vafrinn mjög vel fyrir flesta.
Jón.
Kann mjög vel við Firefox og það er ekki verra að lausnin er Open source ásamt því að ég er mjög hrifinn af privacy Policy-u Mozilla.
Kann mjög vel við þessa fídusa í Firefox
https://addons.mozilla.org/en-US/firefo ... ontainers/
https://monitor.firefox.com/
Ásamt öðrum hlutum eins og tracking protection og svo framvegis.
Just do IT
√
√
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Margir okkar eru að nota Linux. Það er þó líklega eitthvað þarna hvað varðar upplausn á skjerm og stýrikerfi. Það er að minnstað kosti gott að það tókst að gera við það.Hjaltiatla skrifaði:Er að nota Ubuntu 20.04 stýrikerfið , veit ekki hvort það skipti einhverju máli (mögulega er ég eitthvað jaðartilfelli) og installaði 64 bita .Deb skránni af Vivaldi.com.JónSvT skrifaði:Við erum auðvitað að reyna að gera okkar besta að byggja íslenskan vafra. Fleiri hafa lagt mikið í það að gera þýðinguna eins góða og hægt er. Gott að heyra að það er að virka!Hjaltiatla skrifaði:Ákvað aðallega að prófa Vivaldi til að athuga hvort íslenska þýðingin væri góð, get sagt að hún er til fyrirmyndar, get ekki sagt að ég hafi verið týndur við að nota vafrann þó svo að ég sé vanur að nota enska viðmótið dags daglega .
Kann ágætlega við viðmótið/útlitið (reyndar þurfti ég að þysja sjálfgefna notendaviðmótið út svo að fontur liti eðlilega út í upphafi úr 100% í 140% samanborið við Firefox) Annars hefði ég þurft að píra augun við lestur.
Flott framtak (er sjálfur ekki á markaðnum eftir nýjum vafra en gott að vita hvað er í boði).
Hmm. Athyglisvert að þetta sé lítið hjá þér. Ætti ekki að vera öðru vísi en aðrir vafrar, en auðvitað gott að það er einfalt að breyta þessu í Vivaldi.
Hvað stoppar þig í að skipta yfir? Væri gott að skilja það. Við hlustum á okkar notendur. Það er ein af ástæðunum fyrir því að það er svo mikið af möguleikum í Vivaldi. Í stað þess að safna gögnum um notendurna, þá hlustum við bara á hvað þeir vilja. Svo byggjum við inn allt af möguleikum. Þannig þurfa margir smá tíma til að finna allt það sem við höfum upp á að bjóða, en þegar það er gert þá virkar vafrinn mjög vel fyrir flesta.
Jón.
Kann mjög vel við Firefox og það er ekki verra að lausnin er Open source ásamt því að ég er mjög hrifinn af privacy Policy-u Mozilla.
Kann mjög vel við þessa fídusa í Firefox
https://addons.mozilla.org/en-US/firefo ... ontainers/
https://monitor.firefox.com/
Ásamt öðrum hlutum eins og tracking protection og svo framvegis.
Containers er flott. Við höfum verið að spá í álíka dæmi í mörg ár en fórum á endanum í tracker blocker og ad blocker. Held það geri meira fyrir flesta, en við höfum enn containers á listanum.
Kóðinn í Vivaldi er allur læsilegur. Allar breytingar í Chromium birtum við. Restin er HTML/CSS/JS, sem er pakkað saman, en ekki erfitt að lesa. Ég er svo mjög ánægður með okkar privacy. Held við séum hugsanlega einasti vafrinn sem ekki safnar gögnum um notendur.
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Lítur ágætlega út og er hraður.
https://www.dailymail.co.uk/home/index.html
Kemur með meldingu að ad blocker sé í gangi, spurning hvernig hægt sé að blöffa slíkt?
https://www.dailymail.co.uk/home/index.html
Kemur með meldingu að ad blocker sé í gangi, spurning hvernig hægt sé að blöffa slíkt?
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Ég hef notað FireFox nánast eingöngu í mörg mörg ár. Hef prófað fullt af öðrum vöfrum. Ég skipti um daginn í Vivaldi og mér líkar mjög vel við hann. Ég hugsa að þetta verði minn vafri í framtíðinni. Hraður og það besta er að það er hægt að nota viðbætur. Smá sem böggar mig samt, mögulega stillingaratriði?
1. Pláss fyrir ofan tabs. Smá "lína" sem gerir ekkert, þ.e. ef ég ætla að skipta á milli tabs, þá ver ég alveg upp og svo pínu niður til að geta ýtt á viðkomandi tab. T.d. í FireFox þá nær tab-inn alveg upp.
2. Opna tab frá pinned tab. Nýtt tab opnast alveg út á enda til hægri en ekki við hliðina á pinnuðu tabs.
3. Tekur smá tíma að skipta í og frá full screen á Youtube. Lengur en í FireFox finnst mér.
Annars, frábært framtak og náttúrulega geggjað að það sé Íslendingur á bak við þennan vafra. Í raun ættu allir á Íslandi að nota Vivaldi

Vivaldi hefur verið main browserinn minn á Windows síðan V1, sem hefur verið uþb 2015 eða 2016 man ekki alveg. Aðal ástæðan var power user customization og mouse gestures, get ekki lifað án þeirra. Nota hann enn í dag.
Side-barið er líka algjört æði, download listinn er eins og hann gerist bestur. Zoom sliderinn á status barnum er líka frábær, nota hann og reset takkann oft daglega.
Annars er alveg óþolandi hvað ég lendi oft í þvi að ætla að smella með miðju músartakkanum til að loka tab, en hitti rétt aðeins fyrir neðan tabinn á línuna og stækka þá preview gluggann, en þann glugga þoli ég ekki. Sennilega hægt að slökkva á þessu en ég gleymi alltaf að leita af stillingunni. Þetta gerist bara þegar ég ætla að loka mörgum tabs í einu hratt, en venjulega loka ég tab með "L" mouse gesture.

Last edited by Dropi on Sun 10. Maí 2020 23:54, edited 4 times in total.
34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 2600 @4.0 - 32GB DDR4@3000 - ASRock B450M-Pro4 - VEGA56 (64 BIOS)
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Takk fyrir það.Tbot skrifaði:Lítur ágætlega út og er hraður.
https://www.dailymail.co.uk/home/index.html
Kemur með meldingu að ad blocker sé í gangi, spurning hvernig hægt sé að blöffa slíkt?
Hmm. Ég fæ ekki þessa spurningu á Daily Mail. Ertu með einhvern annan blokker í notkun? Við munum halda áfram að þróa auglýsingablokkeringuna. Hún virkar mjög vel í lang flestum tilfellum, en stundum er þetta spurning um hvaða listar eru í notkun. VIð veljum bara easylist til að byrja með, en hægt er að bæta við fleiri listum sem blokkera meira.
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Sæll!BO55 skrifaði:Ég hef notað FireFox nánast eingöngu í mörg mörg ár. Hef prófað fullt af öðrum vöfrum. Ég skipti um daginn í Vivaldi og mér líkar mjög vel við hann. Ég hugsa að þetta verði minn vafri í framtíðinni. Hraður og það besta er að það er hægt að nota viðbætur. Smá sem böggar mig samt, mögulega stillingaratriði?
1. Pláss fyrir ofan tabs. Smá "lína" sem gerir ekkert, þ.e. ef ég ætla að skipta á milli tabs, þá ver ég alveg upp og svo pínu niður til að geta ýtt á viðkomandi tab. T.d. í FireFox þá nær tab-inn alveg upp.
2. Opna tab frá pinned tab. Nýtt tab opnast alveg út á enda til hægri en ekki við hliðina á pinnuðu tabs.
3. Tekur smá tíma að skipta í og frá full screen á Youtube. Lengur en í FireFox finnst mér.
Annars, frábært framtak og náttúrulega geggjað að það sé Íslendingur á bak við þennan vafra. Í raun ættu allir á Íslandi að nota Vivaldi
Velkominn yfir til Vivaldi!
1. Þetta er stillingaratriði. Á ensku er þetta "Remove Tab Spacing in Maximized Windows".
2. Það eru stillingar fyrir það hvar tabs opna líka.
3. Hef ekki séð þetta, en auðvitað munum við halda áfram að vinna við að gera hlutina hraðari.
Takk fyrir falleg orð. Vona auðvitað að fleiri Íslendingar koma yfir til okkar. Við erum með stórt teymi á Íslandi líka og Vivaldi er líka hýstur hjá Hringdu!
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Gaman að þú ert með okkur.Dropi skrifaði:Vivaldi hefur verið main browserinn minn á Windows síðan V1, sem hefur verið uþb 2015 eða 2016 man ekki alveg. Aðal ástæðan var power user customization og mouse gestures, get ekki lifað án þeirra. Nota hann enn í dag.
Side-barið er líka algjört æði, download listinn er eins og hann gerist bestur. Zoom sliderinn á status barnum er líka frábær, nota hann og reset takkann oft daglega.
Annars er alveg óþolandi hvað ég lendi oft í þvi að ætla að smella með miðju músartakkanum til að loka tab, en hitti rétt aðeins fyrir neðan tabinn á línuna og stækka þá preview gluggann, en þann glugga þoli ég ekki. Sennilega hægt að slökkva á þessu en ég gleymi alltaf að leita af stillingunni. Þetta gerist bara þegar ég ætla að loka mörgum tabs í einu hratt, en venjulega loka ég tab með "L" mouse gesture.
Þú getur slökkt á þessu með að slökkva á "Show Tab Thumbnails". Það finnast innstillingar fyrir flest í Vialdi.
Jón.
-
- Geek
- Póstar: 835
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Sæll Nafni! Ég hef verið að nota Vivaldi í smástund núna á Mac á vinnutölvunni og hann virkar virkiega vel.
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Sæll Nafni!Jón Ragnar skrifaði:Sæll Nafni! Ég hef verið að nota Vivaldi í smástund núna á Mac á vinnutölvunni og hann virkar virkiega vel.
Það er gott að heyra!
Jón.
Re: Vivaldi - Íslenskur vafri
Ég er búinn að vera nota Vivaldi í allavega ár held ég. Alveg eitt það besta sem hefur gerst fyrir vafraheiminn fyrr eða síðar. Af hverju var enginn annar kominn með þessar breytingar, eins og að geta fært address bar og tab bar til hliðar eða niður t.d., alveg ótrúlegt.
Allir þessir customisable möguleikar, aldrei taka þá til baka! Þetta er eins og þetta á að vera í vöfrum. Vafri er fagurfræðilegt tól líka og vinnutól og skemmtitól og það skiptir máli að geta stillt allt eins og maður vill svipað og maður hannar íbúð eins og maður vill þegar maður flytur inn í hana allavega með því að raða húsgögnum. Þetta er málið og þið eruð snillingar.
Þið komuð með svo marga nýja fídusa að það var svo gott að maður trúði því varla. En hann er stöðugur, kröftugur og flottur! Þið komumst á undan stórbáknunum Google og Microsfot á met tíma, varðandi sumt og svo langt á undan á svo stuttum tíma. Alveg magnað. 10/10 guys.

Last edited by netkaffi on Mið 13. Maí 2020 17:08, edited 2 times in total.