Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 60
- Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
- Staðsetning: Siglufjörður.
- Staða: Ótengdur
Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Sælir netverjar. Veit einhver hvernig bílaleigurnar þjónusta bílana sína. Keypti bíl um daginn af bílasölu í Reykjanesbæ sem var áður í eigu Blue carrental. Í smurbók er samviskusamlega fyllt inn smurþjónusta en ekkert annað. Hvergi skrifað hvað var gert og hvernig þjónustu bíllinn fékk. Veit td ekki hvort bíllinn fékk olíu á gírkassa sem skv umboði á að fara fram í 90000 km, ? með bremsuvökva, kælivökva, hugbúnaðaruppfærslur omf. Bíllinn sem um ræðir keyrður 104000 km. Heyrði að sumar leigur væru með samning við umboðin en mættu ekki skrá í bók það sem gert er. Eitthvað til í þessu ?
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Ertu búinn að hafa samband við bílaleiguna?
Hvernig á fólk út í bæ að vita hvað þeir gera?
Hvernig á fólk út í bæ að vita hvað þeir gera?
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
fékk mér bíl frá blue einmitt líka og spurði um þetta allt saman, allt er gert og viðurkent og heldur ábyrð, bílasalinn og bílageirinn staðfestu það
Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Þú getur grafið upp með hjálp bílasalans hvar bíllinn hefur verið þjónustaður og haft samband við verkstæðin beint. Verkstæði sem heldur ekki skráningu yfir verk framkvæmd ætti ekki að vera í rekstri.steinihjukki skrifaði:Sælir netverjar. Veit einhver hvernig bílaleigurnar þjónusta bílana sína. Keypti bíl um daginn af bílasölu í Reykjanesbæ sem var áður í eigu Blue carrental. Í smurbók er samviskusamlega fyllt inn smurþjónusta en ekkert annað. Hvergi skrifað hvað var gert og hvernig þjónustu bíllinn fékk. Veit td ekki hvort bíllinn fékk olíu á gírkassa sem skv umboði á að fara fram í 90000 km, ? með bremsuvökva, kælivökva, hugbúnaðaruppfærslur omf. Bíllinn sem um ræðir keyrður 104000 km. Heyrði að sumar leigur væru með samning við umboðin en mættu ekki skrá í bók það sem gert er. Eitthvað til í þessu ?
Sumar tegundir, Mazda t.d., koma ekki með smurbók því allt er skráð rafrænt í miðlægt kerfi Mözdu í útlöndum.
Veit ekki hvort fleiri framleiðendur séu eins.
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 60
- Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
- Staðsetning: Siglufjörður.
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Takk fyrir svörin. Hef ekki hringt beint í Blue en sent þeim fyrirspurnir á netfangið sem þeir gefa upp en ekki fengið nein svör. Allar smurningar eru stimplaðar af Blue Carrental en hvergi vísbending um hvaða verkstæði um ræðir. Voða spúkí finnst mér. En væri gott að fá upplýsingar um td gírolíu, bemsuvökva oþh áður en ég fer út í að panta rándýra þjónustuskoðun Ef "nonesenze" hefur upplýsingar um hvernig best er að hafa samband við Blue væri snilld að fá þær
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 60
- Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
- Staðsetning: Siglufjörður.
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Skv bílasalanum er Blue með sitt eigið verkstæði, veit einhver hvar eða hvernig ég finn það ef þetta er rétt ?
-
- 1+1=10
- Póstar: 1165
- Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
- Staðsetning: 192.168.1.254
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Get staðfest það að Blue þjónusta bílana sína vel, ég tengist þeim ekkert en hef áreiðanlegar heimildir
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 60
- Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
- Staðsetning: Siglufjörður.
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Takk fyrir demaNtur, líður betur að heyra þetta.
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Get staðfest að Blue er með sitt eigið verkstæði, ég veit að þeir leggja mikið uppúr að halda bílunum sínum vel við
Ég þekki aðeins til, ég myndi allan daginn kaupa bíl af Blue
Ég þekki aðeins til, ég myndi allan daginn kaupa bíl af Blue
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 60
- Skráði sig: Fös 19. Des 2014 09:34
- Staðsetning: Siglufjörður.
- Staða: Ótengdur
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Svona til að ljúka þessum þræði þá er staðan svona: Umrædd bílaleiga hefur skv smurbók framkvæmt olíuskipti á 15 þús km fresti. Þeir geta hins vegar ekki séð (vegna takmarkana í tölvukerfinu) hvort bíllinn fékk smur á drif og gírkassa sem á að gerast á 45 þús km fresti. Ekkert um hvort skipt var um kælivökva, bremsuvökva eða viftureim. Bíllinn er slæmur af yfirborðsryði á undirgrind og byrjað að falla á stýrisstöng og lið og líka á plötu við pedala. Hugsanlega hefur þessi bíll lent í einhverju ss að vera keyrt í á eða lent í miklum raka? En frábær í keyrslu og þægilegur. Rúsínan í pylsuendanum er svo sú að Toyota Reykjanesi fékk bílinn einhverntíma í vetur/vor og þar hefur líklega ekkert verið tékkað á bílnum, var enn í verksmiðjuábyrgð meðan þeir áttu hann.
Takk fyrir svörin sem sendu.
Takk fyrir svörin sem sendu.
Re: Bílaleigur og þjónustuskoðanir.
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þessu er háttað hjá bílaleigunum, en svona mín persónulega regla ef fólk segir að eitthvað hafi verið gert (eða fyrirtæki) tek ég því þannig að það hafi EKKI verið gert, nema með fylgi reikningur eða annarskonar staðfesting á vinnunni (svosem augljóslega nýlegur íhlutur)
Það kæmi ekki á óvart að bíllinn hafi ekið í gegnum grjótbarinn veg, eða eitthvað lent í botninum, þar sem túristar fara oft töluvert lengra en lágir bílar ráða við, spurning hvort það sleppi ekki að gera við þetta (veit ekki með ábyrgð, mjög erfitt að sanna svona lagað), en myndi annars fara með bílinn á áreiðanlegt verkstæði (sem helst þekkir tegund/týpuna) og sjá hvað þeir segja um þetta.
Það kæmi ekki á óvart að bíllinn hafi ekið í gegnum grjótbarinn veg, eða eitthvað lent í botninum, þar sem túristar fara oft töluvert lengra en lágir bílar ráða við, spurning hvort það sleppi ekki að gera við þetta (veit ekki með ábyrgð, mjög erfitt að sanna svona lagað), en myndi annars fara með bílinn á áreiðanlegt verkstæði (sem helst þekkir tegund/týpuna) og sjá hvað þeir segja um þetta.
Hlynur