Router fyrir aftan Hive routerinn
Router fyrir aftan Hive routerinn
Jæja er búinn að fá nóg af að geta ekki stjórnað mínu eigin neti. Er búinn að fjárfesta í Linksys wireless router WRT54G v2.0 (Fékk hann á góðu verði)
Þar sem ég er alger byrjandi í að setja svona dót upp, er maður ekki alveg með á hreinu hvernig þetta er gert, þeir hjá Hive sögðu mér bara að velja IP tölu frá 192.168.1.2 til 50 en það er sama hvar ég set þessa fj...... IP tölu í router setupinu, ekkert gerist!! Var bara að velta fyrir mér hvort hér leyndust einhverjir snillingar, með lausnir á færibandi. Eða hvort einhver hafi gert þetta.

-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Nú velti ég fyrir mér, þú segist vera alger nýliði í uppsetningu á netkerfum, afhverju viltu þá hafa þinn eigin router MEÐ Hive routerinum?
Annars skil ég ekki spurninguna þína alveg. Hvar viltu setja ip tölu og á hvaða tæki er þessi ip tala? Finnur þinn router ekki Hive routerinn? Finnur tölvan þín ekki Linksys routerinn?
Annars skil ég ekki spurninguna þína alveg. Hvar viltu setja ip tölu og á hvaða tæki er þessi ip tala? Finnur þinn router ekki Hive routerinn? Finnur tölvan þín ekki Linksys routerinn?
Ég vil ráða hvaða port eru opin, og hvenær sumar tölvur fá aðgang. Tölva unglingsinns fær T.D ekki aðgang nema part úr degi, ekkert mál að stilla það í Linksys routernum. Meðan að lappinn minn er aftur á móti með fullan aðgang o.s.f.
Linksys Routerinn finnur ekki Hive routerinn.
Ég ættla prufa þetta Gnarr, takk fyrir.
Linksys Routerinn finnur ekki Hive routerinn.
Ég ættla prufa þetta Gnarr, takk fyrir.
Pandemic skrifaði:mbh skrifaði:Ég vil ráða hvaða port eru opin, og hvenær sumar tölvur fá aðgang. Tölva unglingsinns fær T.D ekki aðgang nema part úr degi
Ef ég mætti nú spyrja af hverju?
fjölskyldumál... þarf maður nokkuð að blanda sér í þau?
5600x | DH-15 | ASUS GTX 1060 6GB | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 687
- Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Maður er bara aðeins að takmarka tímann á netinu, sem er kannski betur varið í lærdóm. Engin ofverndun í gangi, unglingurinn fær svo sannarlega nægan tíma til að hanga á netinu, en ég dreg línurnar við miðnætti, eftir það er algert netbann í gangi, nema kannski um helgar. Það er bara svolítið grátlegt að sjá suma unglinga (minn T.D) í dag sem nota tölvurnar engöngu í MSN chat, ekki það að MSN sé eitthvað slæmt. Bara hægt að nota netið í svo margt annað.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Ég ætla ekki að fara að skipta mér að uppeldinu hjá þér (ég er ekki að gagnrýna þig, bara hef ekkert vit á uppeldi) en ég alveg sammála þér að það er sorglegt hvað margir sem nota tölvur nokkið mikið kunna lítið á þær. En er það nokkuð skrítið? Í skólunum er maður í tölvum þar sem er lokað fyrir allt. Maður getur varla skemmt neitt og ef maður gerir það lagar kennarinn það. Hvar á "venjulegt" fólk að læra þetta?
Afhverju er ekki hægt að kenna krökkum á grunnhluti tölvunnar, td. að tengja hana, setja upp forrit, halda við vírusvörn o.s.frv. Það eina sem var kennt þegar ég var í grunnskóla var fingrasetningin (svo tók ég Ritvinnslu, fjölmiðlun og forritun í val og lærði ekkert). Þetta er alltof lítið.
Afhverju er ekki hægt að kenna krökkum á grunnhluti tölvunnar, td. að tengja hana, setja upp forrit, halda við vírusvörn o.s.frv. Það eina sem var kennt þegar ég var í grunnskóla var fingrasetningin (svo tók ég Ritvinnslu, fjölmiðlun og forritun í val og lærði ekkert). Þetta er alltof lítið.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 687
- Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Gaman að fara off topic.
Mín skoðun er sú að kunnáttan á vélbúnað tölvunar (taka hana sundur og saman s.s.) hafa voðalega lítið með það að gera hversu vel maður getur nýtt sér tölvuna sjálfa. Kennslan á tölvur mætti aftur á móti líklega vera betri, kynna börnum og unglingum þá möguleika sem tölvan býður uppá og þá ekki bara til ritvinnslu.
Það að kunna að laga tölvur og stýrikerfi er ekki það sama og að kunna á tölvur, en eins og er þá virðist þetta allt of oft eiga samleið. Hér má kenna um stýrikerfi vélarinnar sem hamlar þér við þína "framleiðni" en hjálpar þér ekki.
Eitthvað sem ég gæti séð fyrir mér í framtíðinni sem myndi bæta ástandið væru t.d. það að harðir diskar (eða eitthvað þannig) kæmu með uppsettum stýrkerfum og einhverskonar "notendapakka". Stýrikerfi sem sæi þá alfarið um samskiptin við vélbúnaðinn svo þú gætir einbeitt þér að því sem þú ætlar að nota tölvuna í. Auðvitað er gaman að grúska í tölvum, en það má samt ekki hamla hinum almenna notanda við að geta nýtt sér tölvuna og kosti hennar.
Afsakið þetta bull, hefði kannski bara átt að vera sér topic?

Hjá okkur kenndi kennarinn okkur einusinni að tengja svona.. kenndi mér og nokkrum öðrum á norton ghost.. kenndi mér að overclocka "the old way"(með switchum á móðurborði ) Svo renndi hann yfir helstu stýrikerfi og kosti og galla og margt margt fleira.. við lærðum MJÖG mikið semsagt "notlegt" en miklu meira af "ónotlegu" eða tilgangslausugumol skrifaði:Ég ætla ekki að fara að skipta mér að uppeldinu hjá þér (ég er ekki að gagnrýna þig, bara hef ekkert vit á uppeldi) en ég alveg sammála þér að það er sorglegt hvað margir sem nota tölvur nokkið mikið kunna lítið á þær. En er það nokkuð skrítið? Í skólunum er maður í tölvum þar sem er lokað fyrir allt. Maður getur varla skemmt neitt og ef maður gerir það lagar kennarinn það. Hvar á "venjulegt" fólk að læra þetta?
Afhverju er ekki hægt að kenna krökkum á grunnhluti tölvunnar, td. að tengja hana, setja upp forrit, halda við vírusvörn o.s.frv. Það eina sem var kennt þegar ég var í grunnskóla var fingrasetningin (svo tók ég Ritvinnslu, fjölmiðlun og forritun í val og lærði ekkert). Þetta er alltof lítið.
ég er nú með karlkennara sem er líka kerfistjórinn(hinn kennarinn var fyrrverandi kerfistjóri) hjá skólanum og ég kann MIKIÐ meira en hann á tölvur.. en það er eitt svið sem að hann kann allt meira en ég og það er allt sem tengist neti.. hann er algjör netsnillingur..Pandemic skrifaði:Ég var einu sinni með kvennkennara og ég var byrjaður að kenna henni :S
Annars er ég kominn með nýjan sem kenndi hvernig gif,jpg,bmp og compression virkar og hann var einu sinni með kennslu í hvernig ætti að setja örgjörva,kort í tölvur.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3929
- Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Það getur alveg verið að þér finnist það en það er ekki þannig og mun ekki verða þannig. (ok, aldrei segja aldrei en ég sé það amk. ekki gerast í nánustu framtíð)
Það er sama hvaða tæki við erum að tala um, það er alltaf eitthvað viðhald. Tölva er mjög mjög flókið tæki og þessvegna kemur það ekkert svakalega á óvart að það er flókið að halda henni við. Það geta ekki allir lært það bara með því að fikta eins og flestir okkar.
Alveg eins með bíla, þú verður að kunna helling til að halda bílnum þínum við, það ætti ekki að vera þannig en það er þannig. Í ökuskólanum er manni kennt í meginatriðum það sem maður verður að gera eða sjá til að sé gert og það ætti að vera þannig í tölvum líka (í grunnskólum og framhaldsskólum)