Sælir/Sælar, ég er hérna hjá vini minum og ég er að reyna redda vélinni. Málið er það að tölvan frýs þegar hann fer í leiki og eftir smá stund í vinnslu.
Spuringin mín er.. er ekki þessi hiti sem er meðfylgjandi frekar hár? Hann er um 57-62° í Bios Speed fan segir samt 50-53°
Er vifta sem blæs út? Frýs tölvan þótt hún sé idle? Er hann að yfirklukka og/eða búinn fikta eitthvað í voltunum? Er tölvan inn í skáp, full af rykið eða eitthvað sem heftir loftstreymið fram hjá örgjörvanum? Búnir að útiloka aðra möguleika eins og gallaða/bilaða drivera?
Málið er þannig að við vorum að formatta og vélin bara frýs eftir smátíma í vinnslu( eins og í Cs og stuff) :s. Það kemur smá píp hljóð svo er bara allt frosið.
Held það gæti verið skjákortið, ætla prófa að setja nýtt skjákort, minni og henda annari viftu í. Tölvan er ekki inni skáp, búinn að rykhreinsa hana og er hún undir borði.