Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Svara

Höfundur
Ranimosk
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 02. Sep 2013 19:33
Staða: Ótengdur

Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Ranimosk »

Mig er farið að langa í Switch, en var að spá hvort það væri viturlegt að bíða og sjá hvort verðið verði e-ð lækkað í jólaösinni. Er einhver hér vitur um verðlagningar á Nintendo á Islandi?
Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1197
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af kiddi »

Er ekki reglan á Íslandi að það hækkar allt í verði rétt fyrir jól? :-k

Viggi
Tölvutryllir
Póstar: 638
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Viggi »

Leyfi mèr að efast um það þar sem nintendo eru þektir að lækka verð á vörum sínum seint og illa. Svo ekki sé talað um að hún er að rokseljast núna.
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.

Höfundur
Ranimosk
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 02. Sep 2013 19:33
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Ranimosk »

kiddi skrifaði:Er ekki reglan á Íslandi að það hækkar allt í verði rétt fyrir jól? :-k
Heh, það er reyndar rétt að ansi oft hækkar verðið svona rétt áður en varan fer á fínan afslátt, og endar svo á nákvæmlega sama verði og hún var fyrir hækkun ](*,)
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af worghal »

Ormsson? Að setja nintendo á útsölu? Líklegast ekki þar sem það er talið vera of nálægt því að gera vel við viðskiptavininn, tala svo ekki um það að þetta gæti óvart talist "að sinna vörunni" en ormsson gera ekki slíkt.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL

Vaktari
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Vaktari »

Ég verslaði switch í póllandi bara í siðustu viku á 43 k
mario party og joy con par + pro charger á örugglega sömu heildarupphæð og bara tölvan kostar í ormsson

En ég er ekki frá því að ég hafi séð switch auglýsta á 43 k i toys r us um daginn ef mér skjátlast ekki

Andriante
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Lau 04. Jún 2005 22:39
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Andriante »

Verð lækka ekki á jólunum.

Höfundur
Ranimosk
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 02. Sep 2013 19:33
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Ranimosk »

Jæja, ég kaupi þetta þá bara á næstunni, og reyni að versla við aðra en Ormsson :megasmile
Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3082
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af lukkuláki »

Ranimosk skrifaði:Jæja, ég kaupi þetta þá bara á næstunni, og reyni að versla við aðra en Ormsson :megasmile
Black Friday er núna í nóvember þannig að það er alls ekki útilokað að það verði tilboð á þessum vörum
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Skjámynd

Baldurmar
Tölvutryllir
Póstar: 680
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Baldurmar »

Hvar er best að kaupa sér Switch núna ?
Geimstöðin, Macland og Ormsson eru þau fyrirtæki sem ég hef séð tölvuna hjá, eru einhver fleiri ?
Hver er með bestu þjónustuna ?
Asrock Gaming K4 - Ryzen 1600 @ 3.7ghz - 16GB Ripjaws 3200mhz - GTX 1070 8gb

Höfundur
Ranimosk
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 02. Sep 2013 19:33
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Ranimosk »

Ég endaði á að kaupa frá ToysR us, en það voru bara 3 tölvur eftir þegar ég keypti þar. Kostaði bara 43.000 kr. miðað við um 56.000 kr. á öðrum stöðum.

Höfundur
Ranimosk
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 02. Sep 2013 19:33
Staða: Ótengdur

Re: Er líklegt að Nintendo switch fari á tilboð fyrir jól?

Póstur af Ranimosk »

Já, og Tölvutek selur líka Switch-inn.
Svara