Að skipta um peru á Corollu
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 56
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Staðsetning: Spánn
- Staða: Ótengdur
Að skipta um peru á Corollu
Sælir félagar
Er það mikið mál að skipta um aðalljósaperu á 2005 Corollu?
Er búinn að fara í tvígang með bílinn til þeirra hjá N1 og þetta er útkoman, lýsir út og suður.
Er það mikið mál að skipta um aðalljósaperu á 2005 Corollu?
Er búinn að fara í tvígang með bílinn til þeirra hjá N1 og þetta er útkoman, lýsir út og suður.
- Viðhengi
-
- 0DC76A20-00D5-4FCA-8422-BD65D6A5D112.jpeg (322.58 KiB) Skoðað 4107 sinnum
Re: Að skipta um peru á Corollu
Er ljóskerið örugglega í lagi? Peran annað hvort lýsir eða ekki.
Re: Að skipta um peru á Corollu
Ef þetta er eitthvað líkt Avensis 2003-2009 þá getur verið bölvað vesen að ná að smella klemmunni sem heldur perunni á sínum stað alveg í. Ef það er ekki gert þá getur peran hreyfst til og lýst upp eða niður og bíllinn verður rangeygður.
Re: Að skipta um peru á Corollu
Hef alveg lennt í ryðguðum tengingum á vírunum sem gerðu það að verkum að önnur peran var dimmari en hin.arnara skrifaði:Er ljóskerið örugglega í lagi? Peran annað hvort lýsir eða ekki.
Prufaðu líka að drepa á bílnum og sjá hvort ljóskúpullinn sjálfur sé orðinn mattur. Það er hægt að þrífa það.
https://www.youtube.com/watch?v=UEJbKLZ7RmM
Re: Að skipta um peru á Corollu
Hef ekki hundsvit á þessu, en stundum hef ég þurft að láta stilla ljósin hjá mér þegar þau lýsa út og suður og standast ekki skoðun. Hef látið gera það í skeifunni við hliðina á skoðunarstöðinni þar á bæ.
Re: Að skipta um peru á Corollu
Einsog bent er á getur smellan skekkt peruna, líka möguleiki að N1 hafa sett hana öfuga í ( ekki einsdæmi)
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 246
- Skráði sig: Fös 02. Des 2011 11:01
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
Hef reynt EINU SINNI og það hafðist á 45 mínútum að skipta um báðum meginn. Er hættur að reyna við þetta sjálfur Hef farið með bílinn í Toyota og þeir græja perurnar. Enda virðist þetta vera fyrir þaulvana að skipta um þessar perur. Þótt toyota sé aðeins dýrari þá er þetta þægilegt. Þeir eru með hraðþjónustu og þarf ekki að panta tíma. hægt að hoppa í Bónus costco eða vínbúðina á meðan.
-
- /dev/null
- Póstar: 1375
- Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
- Staðsetning: Akranes
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
Er einmitt á hverju ári hjá mér hef reynt að stilla sjálfur er með corollu 1993 sem er með vesen á hverju ári í skoðun með ljósinjoekimboe skrifaði:Hef ekki hundsvit á þessu, en stundum hef ég þurft að láta stilla ljósin hjá mér þegar þau lýsa út og suður og standast ekki skoðun. Hef látið gera það í skeifunni við hliðina á skoðunarstöðinni þar á bæ.
Og ef ég fer í reykjavík í skoðun setja þeir út á þetta og ég þarf að láta laga en ef ég fer hér á akranesi stillir kallinn þetta alltaf í skoðunarstöðinni meira segja þegar ég kom með hann í endurskoðun eftir að var sett út á sílsa og fleira sem ég lagaði en gleymdist að laga ljósin og hann stillti þau bara
Re: Að skipta um peru á Corollu
Haha, fyrst það er orðið frítt í göngin, þá kannski fer maður bara að leggja í vana sinn að skutlast út á Akranes með bílinn í skoðunpattzi skrifaði:Er einmitt á hverju ári hjá mér hef reynt að stilla sjálfur er með corollu 1993 sem er með vesen á hverju ári í skoðun með ljósin
Og ef ég fer í reykjavík í skoðun setja þeir út á þetta og ég þarf að láta laga en ef ég fer hér á akranesi stillir kallinn þetta alltaf í skoðunarstöðinni meira segja þegar ég kom með hann í endurskoðun eftir að var sett út á sílsa og fleira sem ég lagaði en gleymdist að laga ljósin og hann stillti þau bara
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Að skipta um peru á Corollu
Hef lent í því oftar en einusinni í eyjum að mæta með bíl í endurskoðun og þá bara spurt hvort ég sé búinn að laga hlutinn og mér réttir miðarnir, ekki einusinni horft í áttina að bílnum.Klemmi skrifaði:Haha, fyrst það er orðið frítt í göngin, þá kannski fer maður bara að leggja í vana sinn að skutlast út á Akranes með bílinn í skoðunpattzi skrifaði:Er einmitt á hverju ári hjá mér hef reynt að stilla sjálfur er með corollu 1993 sem er með vesen á hverju ári í skoðun með ljósin
Og ef ég fer í reykjavík í skoðun setja þeir út á þetta og ég þarf að láta laga en ef ég fer hér á akranesi stillir kallinn þetta alltaf í skoðunarstöðinni meira segja þegar ég kom með hann í endurskoðun eftir að var sett út á sílsa og fleira sem ég lagaði en gleymdist að laga ljósin og hann stillti þau bara
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 56
- Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
- Staðsetning: Spánn
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
Takk fyrir þetta félagar.
Ég ákvað að fara ekki í þriðja skiptið með þetta til N1, heldur skoða þetta sjálfur. Í ljós kem að peran skrölti laus, og þeir hafa að einhverjum ástæðum fjarlægt fjöðrina og sett hana öfugt í aftur þannig að hún gat aldrei haldið við peruna. Niðurstaðan er að N1 er einum kúnna fátækari.

- B8BD664A-3030-4365-91A5-1DF09645A2FD.jpeg (1.68 MiB) Skoðað 3828 sinnum
-
- /dev/null
- Póstar: 1375
- Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
- Staðsetning: Akranes
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
joker skrifaði:Takk fyrir þetta félagar.
Ég ákvað að fara ekki í þriðja skiptið með þetta til N1, heldur skoða þetta sjálfur. Í ljós kem að peran skrölti laus, og þeir hafa að einhverjum ástæðum fjarlægt fjöðrina og sett hana öfugt í aftur þannig að hún gat aldrei haldið við peruna. Niðurstaðan er að N1 er einum kúnna fátækari.
Þetta er frekar algegnt að þetta gerist þó þetta sé svoldið common sense hvernig þetta er gert ...
arons4 skrifaði:Hef lent í því oftar en einusinni í eyjum að mæta með bíl í endurskoðun og þá bara spurt hvort ég sé búinn að laga hlutinn og mér réttir miðarnir, ekki einusinni horft í áttina að bílnum.Klemmi skrifaði:Haha, fyrst það er orðið frítt í göngin, þá kannski fer maður bara að leggja í vana sinn að skutlast út á Akranes með bílinn í skoðunpattzi skrifaði:Er einmitt á hverju ári hjá mér hef reynt að stilla sjálfur er með corollu 1993 sem er með vesen á hverju ári í skoðun með ljósin
Og ef ég fer í reykjavík í skoðun setja þeir út á þetta og ég þarf að láta laga en ef ég fer hér á akranesi stillir kallinn þetta alltaf í skoðunarstöðinni meira segja þegar ég kom með hann í endurskoðun eftir að var sett út á sílsa og fleira sem ég lagaði en gleymdist að laga ljósin og hann stillti þau bara
Það er náttúrlega ekki í lagi og á ekki að eiga sér stað ..
Re: Að skipta um peru á Corollu
Var reyndar bara smotterí, annað skiptið var það pera á númeraljósinu.pattzi skrifaði:
Það er náttúrlega ekki í lagi og á ekki að eiga sér stað ..
-
- /dev/null
- Póstar: 1375
- Skráði sig: Þri 07. Des 2010 00:54
- Staðsetning: Akranes
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
Þá á maður líka að fá skoðun en ekki grænan miða bara merkt í 1 lagfæringarons4 skrifaði:Var reyndar bara smotterí, annað skiptið var það pera á númeraljósinu.pattzi skrifaði:
Það er náttúrlega ekki í lagi og á ekki að eiga sér stað ..
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Að skipta um peru á Corollu
Ótrúlegt að fólk versli við olíufélögin eins og ekkert sé eðlilegra, í ljósi allrar umræðunnar í gegnum árin um verðsamráð, okur og einokun.
Miklu betra að fara á eitthvað vel rekið verkstæði, það eru yfirleitt reynsluboltar sem reka þau sjálfir og bjóða miklu lægri verð og betri þjónustu.
Til gamans má geta að á mörgum bílum þarf að skipta um perur í gegnum hjólskálina, þar sem það er engin leið að komast að perunum í húddinu.
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/cosco-verdkonnun
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/mo ... verdkonnun

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller