Hvaða borð er besta/flottasta fyrir AMD 939 og AGP 8x. Mig langar til endurnýja mitt, en er ekki tilbúinn til að blæða út fyrir nýju skjákorti og mögulega minni líka. Er það bara ég eða er gríðarlega lítið úrval hérna á klakanum? Hvernig er MSI K8N NEO2 Platinum borðið?
emmi skrifaði:Einmitt, því miður þá eru þessi nforce4 móðurborð bara með PCI-X en ekki AGP eftir því sem ég veit best.
Nforce3 ekki lakara en en Nforce4 í performance, en að sjálsögðu án SLI og einhverju minniháttar fíneríi. Nforce3 fyrir leiki via fyrir rest held ég. Annars tæki ég bara eitthvað ódýrt móðurborð fyrir 939 socket í þessu millibilsástandi sem er á milli AGP og PCI-E. Nema þú hafir hugsað þér að láta skjákortið endast 2 ár í viðbót.
just my 10 cents.
Ég er einmitt í sömu hugleiðingum. Vantar s939 móðurborð með AGP.
Ég er nýlega búinn að kaupa mér ATI x800 pro og er ekki alveg tilbúinn í að skipta því út strax.
Ég að spá annaðhvort í þessu MSI borði eða Gigabyte GA-K8NSNXP-939. Ég átti 8KNXP fyrir nokkrum mánuðum og það reyndist mér mjög vel. Er að leita að einhverri búð sem selur þetta borð til að sjá hversu mikið það kostar, ef það er miklu dýrara en MSI borðið þá býst ég við að velja MSI frekar.
Ég sendi Start.is fyrirspurn í gær varðandi þetta Gigabyte móðurborð. Þeir sögðust vera að fá stóra sendingu í enda mánaðarins þannig að verðið ætti að vera gott. Einnig benti ég þeim á að skoða nýju kælinguna frá Thermalright (XP-90 og XP-120) og þeir sögðust skoða málið.
Castrate skrifaði:Ég er einmitt í sömu hugleiðingum. Vantar s939 móðurborð með AGP.
Ég er nýlega búinn að kaupa mér ATI x800 pro og er ekki alveg tilbúinn í að skipta því út strax.
Ekki það að ég sé að reyna að eyðileggja þráðinn.. En varstu að mæta fyrst eftir langa bið? man bara eftir þér í "gamla" daga þegar ég var að byrja..

Jamm, Castrate var einn af þeim aktívustu þegar Vaktin var að byrja. Er ennþá að skoða hérna en póstar frekar lítið.