Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Sæl veriði,
síðustu vikur hef ég verið að þróa í frítímanum nýja leitarvél (líkt og Laptop.is) nema í þetta skiptið fyrir sólarlandaferðir í gegnum íslenskar ferðaskrifstofur (Sumarferðir, Heimsferðir, Úrval-Útsýn, Plúsferðir og VITA-ferðir).
www.ferdaleit.is
Ég er ekkert byrjaður að auglýsa þetta neitt, á eftir að skoða útlitið aðeins betur, setja upp Facebook síðu o.s.frv., en mér þætti vænt um ef einhverjir gæfu sér tíma til að kíkja inn á síðuna og gefa mér feedback, hvort það séu einhverjir fítusar sem þið teljið gagnlega sem eru ekki til staðar, eða ef þið lendið í einhverjum buggum
Hugmyndin er einföld, þú velur fjölda fullorðinna og barna, en að öðru leyti ræðurðu hvað þú skorðar ferðirnar við. Hvort sem það er lengd ferðar, áfangastaður, stjörnur á hóteli, verð, ferðatímabil o.s.frv.
Bestu kveðjur,
Klemmi

www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Mjög kúl concept. Eitt sem ég tek eftir (þegar ég leitaði með "allir áfangastaðir") þá er rosalega mikið dót og infinite scroll er leiðinlegt með ef þú vilt hoppa langt. Þú þarft alltaf að bíða eftir að hver biti sé tilbúinn áður en þú getur scrollað áfram. Kannski engin góð lausn við því annað en að hafa bara vit á því að nota betri leitarskilyrði. Svo veit ég ekkert hvað þessar herbergistegundir þýða en það er bara mitt persónulega vandamál.
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Takk fyrir og mjög góður punkturdori skrifaði: Mjög kúl concept. Eitt sem ég tek eftir (þegar ég leitaði með "allir áfangastaðir") þá er rosalega mikið dót og infinite scroll er leiðinlegt með ef þú vilt hoppa langt. Þú þarft alltaf að bíða eftir að hver biti sé tilbúinn áður en þú getur scrollað áfram. Kannski engin góð lausn við því annað en að hafa bara vit á því að nota betri leitarskilyrði.
Ég prófaði fyrst að nota blaðsíður en kippti því aðallega út því það er plássfrekt og ljótt, auk þess sem mér fannst það ekki raunverulega færa þér neitt. Það eru viss þægindi við blaðsíðuskiptinguna að geta hoppað langt áfram í leitarniðurstöðum, en þá ertu í raun bara að fletta eftir verði og betri leið, einmitt ef fólk fattar það, að hækka lágmarksverðið.
Þegar þú nefnir þetta, þá er þó kannski ekki vitlaust að bjóða upp á aðra röðun en eftir verði, t.d. ef þú ert búinn að setja inn skorður á verð, og vilt í fljótu bragði raða eftir hótel-stjörnunum eða áfangastað, en þá kemur það aftur fram... þú gætir þurft að scrolla mjög langt til að komast á næsta áfangastað... ég þarf að hugsa þetta betur!
Nei, þetta er bara það sem uppgefið er hjá ferðaskrifstofunum og erfitt að fá betri lýsingu. Fólk neyðist því líklega til að kíkja áfram á ferðina (með því að smella á stækkunarglerið lengst til hægri) og skoða herbergið sérstaklega.dori skrifaði:Svo veit ég ekkert hvað þessar herbergistegundir þýða en það er bara mitt persónulega vandamál.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Þetta er á góðri leið.
En:
7 reasons why Infinite Scrolling is probably a bad idea
How infinite scrolling breaks UX
En:
7 reasons why Infinite Scrolling is probably a bad idea
How infinite scrolling breaks UX
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Já, það gæti verið góð lausn að leyfa þér að raða öðrum hlutum. T.d. verð hver nótt eða eitthvað. Og mögulega ef það er hægt að hafa einhvern indicator um hvert þú ert kominn í listanum (s.s. hvað þú ert búinn að sjá m.v. hversu margar niðurstöður voru).Klemmi skrifaði:Þegar þú nefnir þetta, þá er þó kannski ekki vitlaust að bjóða upp á aðra röðun en eftir verði, t.d. ef þú ert búinn að setja inn skorður á verð, og vilt í fljótu bragði raða eftir hótel-stjörnunum eða áfangastað, en þá kemur það aftur fram... þú gætir þurft að scrolla mjög langt til að komast á næsta áfangastað... ég þarf að hugsa þetta betur!
Eitt sem mér dettur í hug væri ef þú gætir sýnt einhvernvegin (mögulega í hliðardálk) hversu margir möguleikar í ferðalengd voru (s.s. 7, 10, 14, 21 nætur) og hversu margar niðurstöður voru fyrir hvert, sama með stjörnur og mögulega verðbil. Og hafa svo möguleikann á því að geta smellt á það til að þrengja niðurstöðurnar. Svipað og Splunk leyfir þér að gera ef þú hefur notað það tól.
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Eitthvað á bilinu 5-13sxf skrifaði:
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Stærsti kosturinn sem að ég sæi fram á að myndi breyta einhverju fyrir mig væri að geta útilokað einhverjar ferðaskrifstofur eða flugfélög.
Ég flýg t.d. ekki með Ryan Air eða Primera Air
En ekki það, ég er ekkert að fara að nota þetta svo sem, raða mínum ferðum alfarið saman sjálfur.
Ég flýg t.d. ekki með Ryan Air eða Primera Air
En ekki það, ég er ekkert að fara að nota þetta svo sem, raða mínum ferðum alfarið saman sjálfur.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinudori skrifaði:Eitthvað á bilinu 5-13sxf skrifaði:
Ég skil þennan fítus ekki alveg. Hvort er ég að velja 5 eða 13 nætur? Svo þegar ég leita þá fæ ég upp 7 nætur.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ég skil ekki?Sallarólegur skrifaði:Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinu
Held að fólk vilji geta valið ferðir frá x til y daga
T.d. ef ég vil minnst fara út í 10 daga en mest fara út í 14 daga
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ah, skil þig.Klemmi skrifaði:Ég skil ekki?Sallarólegur skrifaði:Ætti bara að vera að hægt að "skruna" hægra hjólinu
Held að fólk vilji geta valið ferðir frá x til y daga
T.d. ef ég vil minnst fara út í 10 daga en mest fara út í 14 daga
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Hver er eiginlega að borga Klemma fyrir allar þessar vefsíður? Meikaru að henda í eina sem leitar að Íslensku klámi á internetinu? Er ekki að finna neitt með google...
Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?
Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Þetta leitar í pakkaferðum, dohop leitar í flugum. Hérna ertu kannski með samtals 150 þúsund möguleika yfir heilt ár á meðan það sem dohop er að vinna með er miklu stærra gagnasafn þar sem þú ert líka að setja saman mismunandi möguleika og eitthvað.HalistaX skrifaði:Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Conceptið er vissulega það sama, munurinn liggur í að hjá mér ertu með flug + gistingu + fararstjórnHalistaX skrifaði:Er Dohop samt ekki með sama concept eða? Eða er það bara í gegnum þá ferðaskrifstofu?
Markhópurinn fyrir svona ferðaskrifstofuferðir er held ég helst fólk með börn og svo eldra fólk.
Eldra fólk því það er vanara þessu en að bóka sjálft, fólk með börn því að það er öryggi í að hafa fararstjórn, neyðarnúmer sem þú getur hringt í ef eitthvað kemur upp á, auk þess sem að þú getur spurt betur út í ferðirnar, hvernig sé með afþreyingu fyrir börnin á hótelinu o.s.frv.
Það sem kannski kom mér mest á óvart er hvað ferðirnar geta verið hagstæðar, þ.e. á réttu dagsetningunum og til réttu áfangastaðanna þá þarf þetta ekki að vera dýrara heldur en að bóka sjálfur flug og gistingu, sbr. að ódýrasta ferðin fyrir 2 er á innan við 50þús kall á haus með flugi og gistingu í viku
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
væri fín viðbót að geta hakað í hálft fæði fullt fæði eða ekkert
Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p
-
- Vaktari
- Póstar: 2324
- Skráði sig: Fim 02. Apr 2009 13:16
- Staðsetning: South side
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Snilld og ég er alveg að fara panta eina late sólarferð
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Get því miður ekki boðið upp á að haka við, þar sem að þetta kemur í alls kyns formatti frá ferðaskrifstofunumnonesenze skrifaði:væri fín viðbót að geta hakað í hálft fæði fullt fæði eða ekkert
Hins vegar er þessi reitur hugsaður fyrir það, getur þá skrifað "hálft fæði" eða "fullt fæði", eða "allt innifalið"/"all inclusive"... eða bara hvað sem þú vilt
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Held þetta sé eitthvað gallað, ég fæ allavegana ekkert þegar ég leita að því sem ég vil hafa í herberginu mínu....
All joking aside samt, þá er þetta topp síða og frábært framtak! Go Klemmi! Hann ætti augljóslega að vera að fá annað hvort borgað eða borgað meira fyrir það sem hann gerir!
All joking aside samt, þá er þetta topp síða og frábært framtak! Go Klemmi! Hann ætti augljóslega að vera að fá annað hvort borgað eða borgað meira fyrir það sem hann gerir!
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1558
- Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
- Staðsetning: Hveragerði
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Klemmi bara orðinn frægur!
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... kkaferdir/
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... kkaferdir/
Starfsmaður @ IOD
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Algjörlega frábært framtak en hvar er Icelandair?
Þeir eru líka með pakkaferðir.
Þeir eru líka með pakkaferðir.
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Takk fyrir!lukkuláki skrifaði:Algjörlega frábært framtak en hvar er Icelandair?
Þeir eru líka með pakkaferðir.
Ég hafði ekki einu sinni skoðað þá, þar sem ég hélt að VITA (sem er dótturfyrirtæki þeirra og með eins bókunarvél) byði upp á sömu ferðir og þeir.
Sólarferðirnar sem eru í boði núna með IcelandAir eru sýnist mér eingöngu til Florida, og mjög erfitt að finna nokkuð
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?
Annars mjög flott síða.
Annars mjög flott síða.
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Mjög góður punktur, án þess að þora að fullyrða um það, þá virðist það aldrei koma fram í textalýsingu á herbergi hjá ferðaskrifstofunum að um herbergi með hjólastólaaðgengi sé að ræða, sbr. að jafn vel leit að "hjól" eða "aðg" skilar engu, en leitin leitar s.s. jafn vel að broti úr orði, hvar sem er í textalýsingu herbergisins.ZiRiuS skrifaði:Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?
Annars mjög flott síða.
Hins vegar þá kemur fram á Booking.com hvort að hótelið sé með "Facilities for disabled guests". Ég gæti auðveldlega bætt því við hjá mér að hægt sé að sía út og sjá einungis þau hótel, en ég ætla fyrst að heyra í ferðaskrifstofunum og sjá hvort að það að hótel sé merkt á þennan máta á Booking.com sé jafngilt því að einstaklingur í hjólastól geti bókað sér ferð og gert ráð fyrir að lenda hvorki í vandræðum í flugi eða á hóteli
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Geggjað, hlakka til að sjá hvað þau segja.Klemmi skrifaði:Mjög góður punktur, án þess að þora að fullyrða um það, þá virðist það aldrei koma fram í textalýsingu á herbergi hjá ferðaskrifstofunum að um herbergi með hjólastólaaðgengi sé að ræða, sbr. að jafn vel leit að "hjól" eða "aðg" skilar engu, en leitin leitar s.s. jafn vel að broti úr orði, hvar sem er í textalýsingu herbergisins.ZiRiuS skrifaði:Ef ég skrifa "hjólastólaaðgengi" eða "aðgengi" eða eitthvað þannig í herbergi flipann fæ ég ekkert upp. Eru engar þannig upplýsingar frá ferðaskrifstofunum?
Annars mjög flott síða.
Hins vegar þá kemur fram á Booking.com hvort að hótelið sé með "Facilities for disabled guests". Ég gæti auðveldlega bætt því við hjá mér að hægt sé að sía út og sjá einungis þau hótel, en ég ætla fyrst að heyra í ferðaskrifstofunum og sjá hvort að það að hótel sé merkt á þennan máta á Booking.com sé jafngilt því að einstaklingur í hjólastól geti bókað sér ferð og gert ráð fyrir að lenda hvorki í vandræðum í flugi eða á hóteli
hotel.png
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Ferðaleit.is - Leitarvél fyrir sólarlandaferðir
Manni bregður smá að sjá ferðaskrifstofurnar nota sömu hótelin og birta sömu verðin...