Islensk farsimanotkun i evropu?

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
Aimar
ÜberAdmin
Póstar: 1311
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Islensk farsimanotkun i evropu?

Póstur af Aimar »

Sælir
Er hja 365
Er að fara til hollands i nokkra daga.
Var ekki komin einhver breyting a kostnaði við að nota simann sinn i evropu? Net og hringingar??
GPU: Asus Turbo 2080 ti - GA z590 gaming X - Intel Core i7 11700k - Corsair Rm750x - Noctua-U12S - iCUE 465X RGB Mid-Tower- AORUS RGB Memory DDR4 16GB x4 3733MHz - Samsung 970 EVO 1TB M.2 2280 SSD - Win 10 Pro 64bit - ASUS ROG Swift Curved PG348Q @ 100mhz

davidsb
Nörd
Póstar: 143
Skráði sig: Fim 28. Feb 2008 22:44
Staða: Ótengdur

Re: Islensk farsimanotkun i evropu?

Póstur af davidsb »

Frá og með deginum í dag geta viðskiptavinir 365 miðla reikað um á EES svæðinu en Evrópusambandið hefur unnið að „Roame like at home“ regluverki í nokkurn tíma sem skilar sér í nýju viðmóti gagnvart neytendum.

Reiki þýðir að viðskiptavinur 365 miðla notar farsímaáskrift sína rétt eins og hann gerir hér heima. Ekkert aukagjald er á mínútur, SMS eða gagnamagn umfram þá áskriftarleið sem viðskiptavinur 365 miðla hefur valið sér. Hér er um töluverða kjarabót að ræða hjá viðskiptavinum í þeim löndum þar sem reikið nær til.

Ekki er lengur nauðsynlegt að skrá sig sérstaklega í ferðapakka eða fylgjast með aukagjöldum við notkun. Skráning á reiki gerist sjálfkrafa þegar notandinn kveikir á símanum í viðkomandi landi. Þeir sem huga að ferðalagi til Evrópu á næstunni og eru óvissir um hvernig reiki virkar er velkomið að hafa samband við þjónustuver okkar í síma 1817.
Tekið af https://365.is/tilkynningar
Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3525
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Islensk farsimanotkun i evropu?

Póstur af urban »

ég var að koma úr 16 daga ferð um evrópu, 3 lönd.

Er semsagt hjá Þrennu og notaði bara símann einsog ég væri hérna heima :)
búið að fella niður reikigjöld (eða á að vera búið samkvæmt lögum) en það má setja fair use á gagnamagn.

https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=73&t=73290
Hérna eru umræður um þetta.

Nánari upplýsingar ættu að vera hérna fyrir þig :)
https://365.is/system/comfy/cms/files/f ... simtol.pdf
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Svara