Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent

Það er skemmtilegt hvað Ísland trónir á toppnum á þessum lista. Þetta er bilun og ekkert annað
http://www.visir.is/verd-a-tolvuleikjum ... 7170229578

Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Tjah, þetta kemur mér ekki á óvart og finnst þetta í raun ekki skrítið né ósanngjarnt... þú greiðir virðisaukaskatt af allri vöru og þjónustu hér heima og átt að gera það við vöru og þjónustu sem þú kaupir erlendis frá. Eina ástæðan fyrir því að þetta hefur ekki viðgengist er að það þarf að koma á samstarfi einmitt við miðlarana líkt og nú er búið að gera við Steam.
Að því sögðu, þá held ég nú bara áfram að kaupa leiki af Kinguin.net, ódýrara en Steam og mjög ólíklegt að þeir muni nokkru sinni taka þátt í einhverju þessu líkt.

www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Best að vera bara útrásarvíkingur og borga 0% skatt. Og fá sér bankareikning í Antigua Barbuda eins og sum stórfyrirtæki hérna á klakanum.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Það sem þarf að gera er að fara í gegnum alla peningaflutninga erlendis og athuga hvort það sé verið að svindla á VSK.
T.d. borgar Netflix ekki VSK til Íslands.
Þetta er náttúrulega meiriháttar bjögun á samkeppnisumhverfi að það séu þjónustur erlendis sem eru alveg skattfríar og svo ef þú ert með sömu þjónustu á Íslandi þá ertu skattpíndur og lagapíndur.

*-*
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
"Innflutningur" í gegnum internetið er að færast í þetta horf og þetta er talin eðlileg þróun.
Í upphafi var internetið einn staður þar sem allir voru "eins" og sáu það sama, fengu sömu leitarniðurstöður o.þ.h. en í dag þá er búið að sérsníða ofaní þig síður, auglýsingar og efni m.t.t. hvað er löglegt í þínu landi, hver þín menning er og jafnvel er upplifun á netinu persónulegri en nokkurstaðar annarstaðar því að það er búið að greina þig í þaula.
Hvaða leitarvél er t.d. enn í dag "hrá"?
#offtopicsorry
Í upphafi var internetið einn staður þar sem allir voru "eins" og sáu það sama, fengu sömu leitarniðurstöður o.þ.h. en í dag þá er búið að sérsníða ofaní þig síður, auglýsingar og efni m.t.t. hvað er löglegt í þínu landi, hver þín menning er og jafnvel er upplifun á netinu persónulegri en nokkurstaðar annarstaðar því að það er búið að greina þig í þaula.
Hvaða leitarvél er t.d. enn í dag "hrá"?
#offtopicsorry
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Þetta er í langfæstum tilvika þannig að þú borgar vsk af rafrænni vöru. Ég hef allnokkrum sinnum keypt rafræna vöru og held aldrei þurft að borga VSK af henni. T.d. eru bara held ég örfá ár síðan amazon byrjaði að rukka vsk, fyrst allra, eftir að hafa verið í starfssemi í rúmlega 20 ár. Sama á við Google, og youtube, reyndar bara líklega um 2 ár síðan þeir byrjuðu að rukka vsk... veit ekki hvort það sé fyrir allt sem þeir selja.rapport skrifaði:"Innflutningur" í gegnum internetið er að færast í þetta horf og þetta er talin eðlileg þróun.
Í upphafi var internetið einn staður þar sem allir voru "eins" og sáu það sama, fengu sömu leitarniðurstöður o.þ.h. en í dag þá er búið að sérsníða ofaní þig síður, auglýsingar og efni m.t.t. hvað er löglegt í þínu landi, hver þín menning er og jafnvel er upplifun á netinu persónulegri en nokkurstaðar annarstaðar því að það er búið að greina þig í þaula.
Hvaða leitarvél er t.d. enn í dag "hrá"?
#offtopicsorry
Svo eru engin erlend lénafyrirtæki né hýsingafyrirtæki sem rukka íslenska virðisaukaskattinn og skila honum til Íslands, hef ekki orðið var við slíkt þegar ég hef notað slíkar þjónustur.
Steam hefur verið í starfssemi síðan 2003 og eru ekki enn byrjaðir að greiða VSK til Íslands.
Þótt sumir hérna finnist flott að fá þetta á lágu verði og sleppa við VSK, þá er það þetta sem heldur uppi velferðakerfinu, menntakerfinu, næst þegar foreldri þitt þarf á skurðaðgerð að halda þá eru það fyrirtæki einsog þessi sem taka ekki þátt í slíkum kostnaði. Svo þegar þú verður hrumur og þarft á aðstoð að halda, heldur þú að eitthvað alþjóðlegt fyrirtæki komi þér til aðstoðar?
*-*
-
- spjallið.is
- Póstar: 496
- Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
mæli með https://www.g2play.net/
Antec P280 kassi | Z370 AORUS Gaming 3 móðurborð | i5-8600K örgjörvi | Corsair H100i örgjörvakæling | PNY GTX 1080 Founder's Edition skjákort | 1 TB HDD | 120 GB SSD | 240 GB SSD | 24GB RAM | Cooler Master V750 aflgjafi | Corsair K65 LUX lyklaborð | ZOWIE FK1 mús | Sennheiser GSP 370 heyrnartól | BenQ XL2420T 24" 120hz skjár | Asus XT8 router | DJI Mavic Air 2 dróni
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
En nú spyr ég án þess að skoða þetta af viti en ef við gefum dæmi um leik sem kostar 60$ og borgum við sama verð á steam hér heima og í USA, en núna á að koma 24% hækkun hjá okkur.
Nú býst ég við því að það er vsk þar eins og hér og miðað við að þau borga 60$ með sínum sköttum ættum við þá í raun og veru að vera að fá 24% hækkun? Eða er ég að rugla.
Skrifa þetta úr símanum án þess að hafa googlað eða athugað eitt eða neitt

massabon.is
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
appel skrifaði:Þetta er í langfæstum tilvika þannig að þú borgar vsk af rafrænni vöru. Ég hef allnokkrum sinnum keypt rafræna vöru og held aldrei þurft að borga VSK af henni. T.d. eru bara held ég örfá ár síðan amazon byrjaði að rukka vsk, fyrst allra, eftir að hafa verið í starfssemi í rúmlega 20 ár. Sama á við Google, og youtube, reyndar bara líklega um 2 ár síðan þeir byrjuðu að rukka vsk... veit ekki hvort það sé fyrir allt sem þeir selja.rapport skrifaði:"Innflutningur" í gegnum internetið er að færast í þetta horf og þetta er talin eðlileg þróun.
Í upphafi var internetið einn staður þar sem allir voru "eins" og sáu það sama, fengu sömu leitarniðurstöður o.þ.h. en í dag þá er búið að sérsníða ofaní þig síður, auglýsingar og efni m.t.t. hvað er löglegt í þínu landi, hver þín menning er og jafnvel er upplifun á netinu persónulegri en nokkurstaðar annarstaðar því að það er búið að greina þig í þaula.
Hvaða leitarvél er t.d. enn í dag "hrá"?
#offtopicsorry
Svo eru engin erlend lénafyrirtæki né hýsingafyrirtæki sem rukka íslenska virðisaukaskattinn og skila honum til Íslands, hef ekki orðið var við slíkt þegar ég hef notað slíkar þjónustur.
Steam hefur verið í starfssemi síðan 2003 og eru ekki enn byrjaðir að greiða VSK til Íslands.
Þótt sumir hérna finnist flott að fá þetta á lágu verði og sleppa við VSK, þá er það þetta sem heldur uppi velferðakerfinu, menntakerfinu, næst þegar foreldri þitt þarf á skurðaðgerð að halda þá eru það fyrirtæki einsog þessi sem taka ekki þátt í slíkum kostnaði. Svo þegar þú verður hrumur og þarft á aðstoð að halda, heldur þú að eitthvað alþjóðlegt fyrirtæki komi þér til aðstoðar?
Ég hef verið fylgjandi því að borga skatta og skyldur.
En eftir síðustu snúninga þar sem lið hjá hinu opinbera hefur verið að fá 30 til 40% launahækkun sem er margfalt það sem ég hef séð í mínu launaumslagi.
Þá er best fyrir hvern og einn að meta hvað hentar honum best.
Því bruðl og spilling hjá hinu opinbera er orðið alvarlegt þjóðfélagsmein á þessu landi.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 356
- Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Er svosem ekkert sem maður ætti ekki að kippa sér upp við en finnst 24% andskoti hátt.
Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX

- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Takk fyrir ábendinguna!rickyhien skrifaði:mæli með https://www.g2play.net/
Ég var að prófa að versla þarna, keypti DLC fyrir Goat Simulator, Payday, borgaði 250 isk. fyrir en hafði keypt fyrir viku síða annað DLC sem kostaði það sama en þá keypti ég beint af Steam og borgaði 580. isk. fyrir. Það borgar sig greinilega að kaupa retail lykla þarna.
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Microsoft Store gat selt nýja leiki með VSK á sambærilegu verði og Steam og nýja 1st party leiki eins og Forza Horizon 3 á mun ódýrara verði en nýjir leikir á Steam voru að seljast. Steam hafa því líklega verið að notfæra sér þessa glufu til þess að græða meira en eðlilegt þykir og hafa vel svigrúm til að lækka hjá sér verð.
Kóði: Velja allt
"There's an adapter for that"
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
GuðjónR skrifaði:keypti DLC fyrir Goat Simulator
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
vá ég skellti uppúrchaplin skrifaði:GuðjónR skrifaði:keypti DLC fyrir Goat Simulator
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
hahaha ... já fyrir minn 7 ára ... hann elskar þetta.
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Var búinn að steingleyma þessari umræðu og var að versla mér leik á Steam núna og sá á kvittuninni VAT og mundi eftir þessu.
Það virðist vera að Steam hafi tekið þessa hækkun að mestu leyti á sig sjálfa. Sé allavega ekki neina augljósa verðhækkun á neinum af þeim leikjum sem að ég hef verið að spá í nýlega.

- Vaktari
- Póstar: 2260
- Skráði sig: Sun 06. Sep 2009 18:19
- Staðsetning: Árbærinn
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Skaz skrifaði:Var búinn að steingleyma þessari umræðu og var að versla mér leik á Steam núna og sá á kvittuninni VAT og mundi eftir þessu.
Það virðist vera að Steam hafi tekið þessa hækkun að mestu leyti á sig sjálfa. Sé allavega ekki neina augljósa verðhækkun á neinum af þeim leikjum sem að ég hef verið að spá í nýlega.
i5 3570K - Gigabyte z77x - GTX 1070 OC - Crucial M4 128 GB - 16GB DDR3 - Toughpower XT 675W - BenQ GW2450HM - Antec-P180
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Sömu verð á Steam og áður, svona lítur sundurliðunin út:
- Viðhengi
-
- age on steam.JPG (29.87 KiB) Skoðað 1818 sinnum
-
- steam reikn.JPG (22.41 KiB) Skoðað 1818 sinnum
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Ég kaupi mikið á "grey market" og spara fullt af pening.
Þið getið prófað þetta, hefur ekki klikkað hjá mér ennþá.
Þá leita ég bara að titlinum á eBay og finn "Steam gift" eða "Steam code" seljanda.
Keypti líka Windows 10 leyfi á 2$ og það virkar fínt hingað til.

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
Kaupa á G2A.
Lenti í smá veseni með ME andromeda, og service repanum (EA) var slétt sama þegar ég hafði samband.
Lenti í smá veseni með ME andromeda, og service repanum (EA) var slétt sama þegar ég hafði samband.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Verð á tölvuleikjum á Steam mun hækka um 24 prósent
steamtrades.com líka. Á fullt af steam keys og tradea reglulega þar. flestir selja fyrir csgo lykla, steam gems, trades o.f.l svo er líka hægt að kaupa beint hjá flestum í gegnum Paypal.Sallarólegur skrifaði:Ég kaupi mikið á "grey market" og spara fullt af pening.