Hafa einhverjir hérna verið að horfa á þessa þætti? Ég varð hooked frá fyrsta þættinum og var að klára seríuna.
Þetta eru sennilegast með betri þáttum sem ég hef horft á! Mæli algjörlega með því að horfa ekki á trailerinn eða lesa ykkur til heldur horfa bara á fyrsta þáttinn
Þetta er thriller með smá sci-fi ívafi.
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Samt doldið svona formúlukenndir. Ég hugsaði að þetta væri doldið einsog sambræðingur af ýmsum myndum. En samt ágætlega vel útfært.
En ég samt skil ekki hvert Netflix eru að fara með þessu. Þetta er klárlega PG16 horror þættir, en samt eru þeir hálfpartinn einsog ævintýra/fjölskyldu.
[spoiler]
Svolítið einsog blanda af E.T. og Silent Hill
[/spoiler]
Ég rétt sá eins og tvær mínútur úr einum þætti hjá frænda mínum í vikunni sem er að líða.
Ég fékk kjánahroll þegar ég gat lýst næstu 5 mínútum með ágiskunum þar sem ég hef séð alveg heilan helling af myndum.
Ég held mig við Mr. Robot (2. sería er byrjuð btw), Orange is the new black ofl.
i7-10700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|
Fantagóðir þættir, með skemmtilegri og öðruvísi þáttum sem ég hef horft á undanfarin ár. Kom mér líklega hvað mest á óvart hvað ungu leikararnir voru góðir.
Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".
AntiTrust skrifaði:Fantagóðir þættir, með skemmtilegri og öðruvísi þáttum sem ég hef horft á undanfarin ár. Kom mér líklega hvað mest á óvart hvað ungu leikararnir voru góðir.
Eleven hefur leikið í öðrum svona Mystery Thriller þáttum og var mjög góð þar þó þættirnir væru ekkert meira en meðal góðir http://www.imdb.com/title/tt3552166/
Var að taka eftir því að tveir þættirnir eru leikstýrðir af Shawn Levy, en hann er ábyrgur fyrir pink panther remakið, night at the museum og date night og helling af direct to tv ömurlegheitum. Ég veit ekki hvaða 2 þætti hann leikstýrði en ég á 2 eftir og hef mikklar áhyggjur af þeim núna. Sérstaklega miðað við það sem hagur sagði um síðasta þáttinn.
hagur skrifaði:Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".
Var að klára seríuna, veit ekki alveg hvað þú átt við, mér fannst þetta einn besti þátturinn í seríunni.
Sjónvarp: Samsung UE49KS8005TXXE Blu-ray spilari: Samsung UBD-K8500XE Magnari: Onkyo TX-NR515 Hátalarar: Jamo S 626 HCS Bassabox: Jamo J 12 SUB Hljóðkerfi: 5.1
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
hagur skrifaði:Við urðum hooked strax og kláruðum alla þættina frekar fljótt. Síðasti þátturinn olli okkur þó smá vonbrigðum, var svona svolítið eins og það væri verið að flýta sér að "wrappa þessu upp".
Algerlega sammála, endirinn var ekki á pari við restina af þáttunum.
Ein spurning með þessa þætti: Ég sé alltaf screen af einhverjum börnum þegar ég heyri minnst á þessa þætti, eru börnin stór partur af þáttunum? Er leikurinn þeirra alveg skítsæmilega áhorfandi? Finnst svo oft þegar börn eiga við svona leik þá er leikurinn hjá þeim alveg god awful. Fæ oftar en ekki bara kjánahroll þegar ég sé börn leika eitthvað svona, sérstaklega þegar þau eru major partur af allri þáttaröðinni.
Bara svona að pæla hvort þessir þættir séu í raun og veru fyrir mig, því ég nenni ekki að vera með kjánahroll út heila þátta seríu.
Eru þetta bara krakkar í þáttunum? Hvað mynduði segja að krakka screen time'ið væri á móti fullorðnu fólki í prósentum? Eða jafnvel stærðar kvarðanum sem mér finnst svo gaman að misnota... X:XX....
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.