Keypti Sony Z5 í nóvember, og fyrir svona mánuði þá byrjaði hann að crasha reglulega, hef ekki haft tök á að láta hann í viðgerð, biluninn lýsir sér þannig að hann frýs og restartar sér, nema áðan þá fór skjárinn í fokk allt hristist á skjánum og síminn dó í smá stund kveikti svo á sér aftur. Ég náði screenshoti áður en hann slökkti á sér. Hvað ætli sé að hrjá hann
Ef ég fer með hann og segjum að þeir opni hann og skipti um einhvað ætli síminn sé þá ennþá jafn rakaheldur og rykvarinn eftir það? https://m.imgur.com/QyzlMZl
Sony Z5 vesen
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2277
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Sony Z5 vesen
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:Asus 1080ti strix | RAM: 16gb 3200 Corsair | PSU: RM650x | Case:Corsair 275R |
Re: Sony Z5 vesen
Eitt get ég amk sagt þér ef það skyldi ekki vera augljóst: Þetta er ekki skjárinn, heldur síminn sjálfur - gæti verið skjástýring, CPU, móðurborð eða eitthvað.
Annað: Þó að síminn sé opnaður til að gera við hann þá á það ekki að hafa nein áhrif á þéttinguna á honum.
Annað: Þó að síminn sé opnaður til að gera við hann þá á það ekki að hafa nein áhrif á þéttinguna á honum.
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 326
- Skráði sig: Mið 28. Maí 2014 13:57
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Sony Z5 vesen
Þeir hafa ekki verið að opna Sony síma hér á landi vegna einmitt þess að þeir eru ryk og rakaþéttir heldur skipta þeir gölluðum tækjum út ef þetta er staðfest bilun.
Vertu búinn að taka afrit af gögnunum þínum því flest umboðsverkstæðin eru lítið í gagnabjörgunum eða rukka hátt í 10.000kr fyrir það.
Vertu búinn að taka afrit af gögnunum þínum því flest umboðsverkstæðin eru lítið í gagnabjörgunum eða rukka hátt í 10.000kr fyrir það.
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2277
- Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
- Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
- Staða: Ótengdur
Re: Sony Z5 vesen
Fór með hann,Sá sem tók við honum fannst strax líklegt að skjákjarninn væri að klikka í honum.Fékk fínan nokia takkasíma að láni frá Elko, til að nota næstu vikurnar.
CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:Asus 1080ti strix | RAM: 16gb 3200 Corsair | PSU: RM650x | Case:Corsair 275R |
Re: Sony Z5 vesen
og þú sættir þig við það??? þetta er klárlega brot á lögum um neytendakaup..Black skrifaði:Fór með hann,Sá sem tók við honum fannst strax líklegt að skjákjarninn væri að klikka í honum.Fékk fínan nokia takkasíma að láni frá Elko, til að nota næstu vikurnar.
að kaupa rándýran snjallsíma, hann bilar og meðan maður er að bíða eftir viðgerð, að fá NOKIA TAKKASÍMA í staðinn er bara fyrir neðan allar hellur! átt að fá SAMBÆRILEGT tæki á meðan.30. gr. Framkvæmd úrbóta og nýrrar afhendingar.
Úrbætur og ný afhending skulu fara fram án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir neytanda, innan hæfilegs tíma og þannig að neytandinn fái bætt útgjöld sín úr hendi seljanda.
Seljandi á ekki rétt á að bæta úr sama galla eða afhenda nýjan söluhlut vegna sama galla oftar en tvisvar sinnum nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi sem réttlæta frekari úrbætur eða afhendingu.
Ef úrbætur eða ný afhending seljanda hafa það í för með sér að neytandi getur ekki notað söluhlut í meira en eina viku getur neytandi krafist þess að fá sambærilegan hlut til umráða á kostnað seljanda. Þetta á þó aðeins við ef krafan telst sanngjörn með hliðsjón af þörfum neytandans og þeim kostnaði og óhagræði sem það hefur í för með sér fyrir seljanda.
t.d ef kaupir ferðatölvu sem er titluð leikjaferðatölva og er útúrspekkuð, hún bilar, ferð með hana í viðgerð og fyrirtækið lætur þig fá vél sem er rétt svo að slefa yfir að vera nothæf á facebook.. það er ekki sambærileg vél

AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB