Vantar að losna við eitt stykki miða á Zoolander 2, miðinn gildir í Egilshöll klukkan 22:20 í kvöld og hann fer að sjálfsögðu á kostnaðarverði sem er 1.450 kr. Fyrstur kemur fyrstur fær, sendi kaupanda reikningsnúmer til að leggja inná og sendi svo pdf skjal af miðanum til baka um leið og greiðsla berst til mín
Vantar ekki einhverjum miða?
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
GunZi skrifaði:Hefði verið skynsamlegra að gefa smá afslátt... einfaldara að kaupa sinn eigin miða á sama verði.
Já, klikkaði á því, hafði svo stuttan tíma til að henda upp auglýsingu að ég pældi ekkert í því. Svosem ekki mikið tap en ég hef það bakvið eyrað næst að gefa smá afslátt
lukkuláki skrifaði:Ef þetta er ekki einhver gjafamiði þá er hann ekki glataður þó þú hafir ekki notað hann.
þú átt að geta fairið með hann og fengið nýjan miða.
Því miður þá var þetta bara venjulegur miði sem ég keypti á midi.is. En ég tapaði svosem ekki miklu á þessu, svo ég er bara góður
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
DoofuZ skrifaði:Því miður þá var þetta bara venjulegur miði sem ég keypti á midi.is. En ég tapaði svosem ekki miklu á þessu, svo ég er bara góður
Þú notaðir ekki miðann þannig að þú óskar bara eftir endurgreiðslu. Ferð í bíóið og færð miðann endurgreiddan.
kvikmyndahús og leikhús sjá sjálf alfarið um endurgreiðslur á miðum á þá atburði sem eru í þeirra húsum. https://midi.is/hjalp
If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.
lukkuláki skrifaði:
Þú notaðir ekki miðann þannig að þú óskar bara eftir endurgreiðslu. Ferð í bíóið og færð miðann endurgreiddan.
kvikmyndahús og leikhús sjá sjálf alfarið um endurgreiðslur á miðum á þá atburði sem eru í þeirra húsum. https://midi.is/hjalp
Þó svo að það saki ekki að spyrja, og vonandi eru bíóin líbó með þetta, en ég get ekki séð að hans réttur sé nokkur í þessu máli
Eftir að þú hefur keypt miða hjá midi.is, í gegnum veraldarvefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá midi.is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.
Var einmitt búinn að fletta þessari klausu upp Svo gæti ég ekki sýnt fram á að hinir miðarnir sem ég keypti hafi verið notaðir því þeir voru ekki skannaðir á leiðinni inní bíóið sem væri mér að vísu í hag ef ég gæti á annað borð leitast eftir að fá endurgreitt því þá gæti ég eflaust logið því að enginn af miðunum hefði verið notaður og fengið þannig bara allt endurgreitt.
En eins og ég sagði þá er þetta svosem ekki mikið tap og ég læri bara af þessu að gefa afslátt næst (nema miðarnir séu á viðburð sem sé uppseldur, þá er kostnaðarverð í lagi)