Vantar driver fyrir mini DV

Svara

Höfundur
Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Vantar driver fyrir mini DV

Póstur af Birkir »

Málið er að ég á ekki þessa digital video camer-u og mig vantar driver til að geta notað hana. Eftir árangurslausa leit ákvað ég að biðja ykkur að redda þessu fyrir mig. Hér fyrir neðan skrifa ég allt sem stendur á vélinni þar sem ég veit ekki hvað hún heitir (í rauninni er það eina sem ég veit um hana það að hún er frá SHARP). :oops:

Digital Camcorder
Viewcam Z
CG Silicon
miniDV

Ég leitaði á http://www.sharp.co.uk og það eina sem ég fann er það að ég held að product name-ið sé VL-Z500H þó svo að ég sé ekki viss um það einu sinni.

Endilega reynið að redda þessu fyrir mig og vera hetjur í leiðinni! :D
Ef þið finnið eitthvað þá væri fínt að fá að vita síðuna líka (ekki bara beint url á dl).

Btw. ég er að nota USB ef það breytir einhverju máli.

hahallur
Staða: Ótengdur

Póstur af hahallur »

Hvað með að vera "Pro" og spóla þessu inn með videotæki :D

Höfundur
Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

hahallur skrifaði:Hvað með að vera "Pro" og spóla þessu inn með videotæki :D
Var nú ekki búinn að láta mér detta það í hug, en það er samt svo mikið vesen. Geri það ef enginn reddar mér driver fyrir þetta.

EDIT: Það er víst ekki möguleiki fyrir mig þar sem ég er ekki með réttu snúrurnar fyrir það.

TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Staða: Ótengdur

Póstur af TechHead »

Besta leið sem ég hef fundið til að finna allt um "unbranded" raftæki er að leita að fcc-id númerinu á netinu.....

https://gullfoss2.fcc.gov/prod/oet/cf/e ... Search.cfm

Fcc-id er svona barcode sem öll raftæki þurfa að fá sem skráir þau í risastórann gagnabanka til að bera kennsl á þau :wink:

Finnur fcc-id númerið alltaf einhversstaðar á hlutnum. Líka frábær leið til að finna drivera fyrir hitt og þeta pc dót sem er erfitt að finna á netinu :D

hahallur
Staða: Ótengdur

Póstur af hahallur »

Það er ekkert mál að tengja video tæki ef þú er með video inn - video out á skjákortinu.
Eða sjónvarpskort.

Svo ef þú villt vera "Pr0" kaupri klippikort á 200.000 kr :wink:

Höfundur
Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

hahallur skrifaði:Það er ekkert mál að tengja video tæki ef þú er með video inn - video out á skjákortinu.
Eða sjónvarpskort.

Svo ef þú villt vera "Pr0" kaupri klippikort á 200.000 kr :wink:
Eins og ég sagði áðan þá er ég ekki með réttu snúrurnar til þess, þ.e. mig vantar snúrur úr vélinni í video tækið. :wink:

TechHead ég finn ekkert á þessari síðu :oops:

EDIT: Held núna að product name-ið sé vl z5s

haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Staða: Ótengdur

Póstur af haugur »

Sko, það eru engir driverar fyrir mini dv vélar, ef þú ert með uppsett gott klippiforit fyrir mini dv vélar, t.d pinnacle 9 eða sambærilegt, þá á forritið að detecta vélina og nota universaldirver til að sækja efni. Mini dv er bara mini dv, sama hver framleiðandinn er.

kk

Haugur
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

hann er að nota USB. vélarnar eru allar með mismunandi usb drivera.
"Give what you can, take what you need."

haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Staða: Ótengdur

Póstur af haugur »

USB tengin á DV velum eru eingöngu til að ná út af þeim kyrrmyndum sem gætu hafa verið teknar eða lágupplausnarmyndböndum sem sumar vélar bjóða upp á.

Svo framalega sem mér er kunnugt um verður þú ða nota Firewire til að ná efninu út.

1 mínúta af DV efni er um 200 MB þannig að straumurinn verður að vera nokkuð hraður til a tapa ekki römmum

kk
Haugur
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

það er rétt hjá þér. oftast hægt að taka video sem eru 160x120 gegnum usb.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Staða: Ótengdur

Póstur af Birkir »

Já ég reddaði þessu bara með því að redda mér firewire snúrunni :D
Svara