Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Svara

Höfundur
eliassig
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 10. Des 2008 20:22
Staða: Ótengdur

Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af eliassig »

Gott kvöld,

Nú er fyrirtækið mitt með vef hjá fyrirtækinu Hugsandi Menn og erum við gríðarlega ósátt við þjónustuna hjá þeim.
Er einhver hérna sem getur aðeins frætt mig um hvort að það sé mikið mál að færa vefinn til annars fyrirtækis og hvort að það sé kostnaðarsöm aðgerð?
Takk takk.
Skjámynd

trausti164
Geek
Póstar: 854
Skráði sig: Lau 13. Okt 2012 23:43
Staðsetning: 271 Mosfellssveit
Staða: Ótengdur

Re: Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af trausti164 »

Hugsandi Menn eru leiðinda fyrirtæki, bróðir minn vann þar og hann er ekki ennþá búinn að fá öll launin sín greidd 2 árum eftir að hann hætti.
Annars ætti ekki að vera of mikið vesen að færa vefinn ykkar, þið þurfið bara að fara með gögnin til annars fyrirtækis.
Ryzen 5 2600x - Gtx 1060 6GB - Asus B350M TUF - 8GB Corsair Vengeance 2133Mhz DDR4 - Corsair CX550W
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af rapport »

Ef þið eruð að nota vefumsjónarkerfið þeirra = þá yrði það hýst annarstaðar en þjónustan þyrfti að koma frá þeim og það yrði alltaf leyfiskostnaður.

Best er að ræða þetta við þá beint og fá að vita hvaða möguleikar eru í boði fyrir ykkur.

Ef þeir hafa ekki hryggjarsúlu til að taka gagnrýi og veita þjónustu allt til loka samningsins, þá eru þeir bara jerks...

Mátt svo pósta reynslusögunni hingað inn ...

Höfundur
eliassig
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Mið 10. Des 2008 20:22
Staða: Ótengdur

Re: Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af eliassig »

Já þetta er leiðinda fyrirtæki og því miður var farið út í viðskipti við þá fyrir nokkrum árum. Haukur sem að sér um þetta er náttúrulega dæmdur glæpamaður sbr. http://www.skattrann.is/um-srs/frettasafn/nr/372" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af appel »

eliassig skrifaði:Já þetta er leiðinda fyrirtæki og því miður var farið út í viðskipti við þá fyrir nokkrum árum. Haukur sem að sér um þetta er náttúrulega dæmdur glæpamaður sbr. http://www.skattrann.is/um-srs/frettasafn/nr/372" onclick="window.open(this.href);return false;
Vá, hafði ekki heyrt af þessu. En kemur mér ekki á óvart miðað við hvernig ég þekkti Hauk þegar ég þekkti hann. Sem betur fer hef ég ekki heyrt í honum síðan 2007, þegar hann var að reyna finna nýja starfsmenn.
*-*
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vefur hjá Hugsandi Mönnum

Póstur af GuðjónR »

Ég tók að mér vinnu fyrir Hauk sumarið 2008, skemmst frá því að segja að þetta var verk upp á 5-6 milljónir og hann átti ekki krónu.
Þegar ég pakkaði saman þá var skuldin hans við mig um 2.6 milljónir en með herkjum náði ég til baka 1.2 milljón á tveimur árum.
Ef eftirstöðvarnar yrðu vaxtareiknuð þá er hún líklegast um 3 milljónir.
Hugsandi menn ehf voru lýstir gjaldrþota í fyrra, Haukur er þarna með dóm fyrir stórfelld VSK brot.

" Samkvæmt öllu framanrituðu verður ákærði Haukur Helgason dæmdur til að greiða 62.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, þar af 13.500.000 krónur óskipt með ákærða Hugsandi Mönnum ehf."

Núna er hann að byggja risastórt einbýlishús á Álftanesi í 200 metra fjarlægð frá tveggja hæða raðhúsinu sem hann skeit á sig með og tekið var af honum.
Réttast væri að gefa einhverjum brútal handrukkara reikninginn, leyfa honum að eiga millurnar þrjár nái hann að innheimta þær.
Svona mönnum á að refsa, þeir eiga ekki að komast upp með svona níðingsskap og fá að halda áfram eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Svara