Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Svara
Skjámynd

Höfundur
Tiger
Besserwisser
Póstar: 3773
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Staða: Ótengdur

Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af Tiger »

Sælir. Er einhver leið að taka hljóðrás frá einni kvikmynd (avi, mkv, mp4) og seta á aðra? Málið er að ég á myndir með íslensku tali, en gæðin eru alltaf ömurleg á myndinni, myndi vilja setja talið fyir á alvöru 1080p skrá.

Svo sem búinn að google þetta, en ekki fundið neitt svona þægilegt um þetta.
Mynd
Skjámynd

Hrotti
FanBoy
Póstar: 733
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af Hrotti »

ég gerði talsvert af þessu á meðan að krakkarnir minir voru litlir og það var svolítil handavinna. Ég notaði alltaf .mkv sem container þó að íslenska sourceið gæti verið hvað sem er (mkv/avi/mpg/iso - osfr). http://www.bunkus.org/videotools/mkvtoo ... loads.html þetta fór létt með að opna fælana og bæta inní nýjum hljóðrásum.

Það sem að var mest vesen var að breyta framerate-inu frá 25 (pal) yfir í 24 (23.976 oftast) og synca svo hljóð og mynd. Á einhverjum tímapunkti fór ég að nota .wav fyrir íslenskuna þó að það væri leiðinlega stórt því að þegar að ég minnkaði framerate-ið á t.d. .ac3 þá komu stundum skrítnir smellir í hljóðið af og til. Ég lagaði sync-ið yfirleitt bara með að færa um nokkrar millisec fram og til baka þar til að ég var sáttur.
Verðlöggur alltaf velkomnar.
Skjámynd

Höfundur
Tiger
Besserwisser
Póstar: 3773
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af Tiger »

Takk fyrir, ég var eitthvað búinn að skoða MKVtoolnix á sínum tíma. Sjáum hvort ég finni það ekki fyrir mac og nái að klóra mig framúr þessu. Hef nægan tíma í föndur næstu 2 vikur :)
Mynd

haywood
Ofur-Nörd
Póstar: 262
Skráði sig: Fös 03. Sep 2010 12:55
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af haywood »

final cut pro ætti að geta bjargað þér í þessu ef þú ert að nota mac http://www.apple.com/finalcutpro/

SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af SteiniP »

ffmpeg á að geta þetta og til fyrir mac. Getur prófað það ef þú finnur ekkert almennilegt gui tól í þetta.
Skjámynd

Höfundur
Tiger
Besserwisser
Póstar: 3773
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af Tiger »

Thanks guys, ég prufa mig áfram í þessu :)
Mynd
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Taka hjóðrás frá einni kvikmynd og setja á áðra

Póstur af gardar »

Kóði: Velja allt

ffmpeg -i inn.mkv -i nytthljod.aac -map 0:0 -map 1 -codec copy ut.mkv
Svara