Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Svara

Höfundur
Premium
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Lau 06. Nóv 2010 20:34
Staða: Ótengdur

Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Póstur af Premium »

Sælir vaktverjar

Ég á Panasonic GT30 plasma sjónvarp. Mér var að áskotnast gervihnattadiskur sem mig langar að setja upp. Ef mér skjátlast ekki er innbyggður móttakari í sjónvarpinu. Er það ekki rétt skilið hjá mér að til eru frístöðvar í þessu battereríu öllu saman? Mig langar bara að auka aðeins við stöðvafjöldann hjá mér fyrst ég eignaðist þennan disk. Ætli snúra milli disks og sjónvarps sé allt sem ég þarf?

Endilega, ef einhver sér að ég er að fara með fleipur að leiðrétta og leiðbeina.

Bestu þakkir.
Skjámynd

Sucre
Ofur-Nörd
Póstar: 280
Skráði sig: Mán 25. Okt 2010 19:46
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Póstur af Sucre »

já ef sjónvarpið er með gervihnatta mótakara, nærð alveg fullt af frístöðvum en það fer bara eftir hvaða tungl þú stillir diskinn á
i7 2600k | Gigabyte P67A-UD4 | Mushkin 4x4 GB DDR3 @ 1333 MHz | Gigabyte 970GTX| HDD 5.75 TB | SSD Mushkin 250gb | W10

brynjarsig71
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Fim 11. Júl 2013 21:27
Staða: Ótengdur

Re: Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Póstur af brynjarsig71 »

Það er mest af frístöðvum í UK.
finnur þær hér: http://www.freesat.co.uk/channels" onclick="window.open(this.href);return false;
Diskurinn þarf að snúa í Suð-austur. þú getur fundið stefnuna hér: http://www.dishpointer.com/" onclick="window.open(this.href);return false; Velur 28.2E ASTRA úr listanum (þú þarft samt alvöru mæli til að stilla þetta rétt.)

Höfundur
Premium
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Lau 06. Nóv 2010 20:34
Staða: Ótengdur

Re: Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Póstur af Premium »

Glæsilegt, takk fyrir þetta. Er einhver séns að hafa þetta þráðlaust milli disks og sjónvarps?
Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 539
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Staða: Ótengdur

Re: Gervihnattadiskur beint í sjónvarp

Póstur af roadwarrior »

Premium skrifaði:Glæsilegt, takk fyrir þetta. Er einhver séns að hafa þetta þráðlaust milli disks og sjónvarps?
Nei
Svara