...


Höfundur
deniro55
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 14. Jan 2013 09:16
Staða: Ótengdur

...

Póstur af deniro55 »

...
Last edited by deniro55 on Sun 24. Nóv 2019 13:03, edited 2 times in total.

playman
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af playman »

Settirðu kælikrem á milli?
hverninn settirðu það á?
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af worghal »

ertu ekki örugglega með kælinguna á örgjörfanum ? :catgotmyballs
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Skjámynd

demaNtur
1+1=10
Póstar: 1165
Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
Staðsetning: 192.168.1.254
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af demaNtur »

Annaðhvort var hitakrem/kælihrem hrikalega illa sett á, eða hreinlega ekkert.. Þas. á milli örgjörva kælingar og örgjörva..




Horfðu á þetta og notaðu "pea method", mun breyta miklu!
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL

Höfundur
deniro55
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 14. Jan 2013 09:16
Staða: Ótengdur

...

Póstur af deniro55 »

...
Last edited by deniro55 on Sun 24. Nóv 2019 13:03, edited 1 time in total.
Skjámynd

Xberg
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Sun 12. Feb 2012 02:16
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af Xberg »

deniro55 skrifaði:
playman skrifaði:Settirðu kælikrem á milli?
hverninn settirðu það á?
það var kælikrem á örgjöfanum þegar ég tók hann úr kassanum... passar það ekki annars?

Nei það er ekki kælikerm á honum í kassanum. Þarna er vandinn þinn leystur
Pc 1: CPU: FM1 X4 A6-3650 Quad@2.6.GHz * Cooling: 92.mm 2x4.pipe * Móbo: FM1 GA-A75-D3H * 8GB DDR3 1600MHz 2x4GB * 120GB SSD * 40" FuLL HD
PC 2: CPU: AM3+ X8 FX-8350@4.2.GHz * Cooling: 2x120mm 2x6.pipe * Móbo: AM3 GA-970A-UD3 * 16GB DDR3 1600MHz 2x8GB * 120GB SSD + 4x2.Tb * 5x 120.mm Fans
Skjámynd

rickyhien
spjallið.is
Póstar: 496
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af rickyhien »

ertu að nota stock kælingu eða ekki neitt? ef stock kæling fylgir þá er búið að setja kælikrem á kælingunni
Antec P280 kassi | Z370 AORUS Gaming 3 móðurborð | i5-8600K örgjörvi | Corsair H100i örgjörvakæling | PNY GTX 1080 Founder's Edition skjákort | 1 TB HDD | 120 GB SSD | 240 GB SSD | 24GB RAM | Cooler Master V750 aflgjafi | Corsair K65 LUX lyklaborð | ZOWIE FK1 mús | Sennheiser GSP 370 heyrnartól | BenQ XL2420T 24" 120hz skjár | Asus XT8 router | DJI Mavic Air 2 dróni
Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af I-JohnMatrix-I »

Það var allaveganna kælikrem á stock kælingunni sem fylgdi mínum 3570k örgjörva.

playman
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af playman »

deniro55 skrifaði:
playman skrifaði:Settirðu kælikrem á milli?
hverninn settirðu það á?
það var kælikrem á örgjöfanum þegar ég tók hann úr kassanum... passar það ekki annars?
Það er aldrey kælikrem á örgjafanum, en það ætti að vera kælikrem á kælingunni, sé hún stock.
Ég hef allaveganna ekki séð stock kælingar annars en að þær hafi kælikrem á sér.
Vinur minn lenti í þessu nákvæmlega sama einusinni, og þegar að ég tók kælinguna af örgjafanum
þá kom í ljós að hann hafi ekki tekið plastið undan kælingunni ](*,) ](*,) ](*,)
Ertu viss um að ekkert svoleiðis sé að hjá þér?
Notabene, ef þú tekur kælinguna af þá verðuru að skipta um kremið og setja nýt krem á.

Er kælinginn ekki örugglega vel fest?

Svo er annað, þar sem að þú ert ekkert með 100þ vél
afhverju ertu með stock kælingu? (Sá allaveganna ekki kælingu í listanum þínum)
afhverju færðu þér ekki h100 t.d. eða góða loftkælingu, þessir i7 eiga víst til að hitna soldið.
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

siggik
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 393
Skráði sig: Mið 07. Feb 2007 18:53
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af siggik »

og almennilegt power supply :D er ekki hrifinn af inter-tech
Skjámynd

jonolafur
Fiktari
Póstar: 67
Skráði sig: Fim 14. Apr 2011 14:56
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af jonolafur »

Er það bara ég eða stendur "CPU Fan Speed 0 Rpm " ???
Hmm...
Skjámynd

vikingbay
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 363
Skráði sig: Lau 01. Okt 2011 03:07
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af vikingbay »

jonolafur skrifaði:Er það bara ég eða stendur "CPU Fan Speed 0 Rpm " ???
hann er örugglega með það tengt í cpu optional
Skjámynd

jonolafur
Fiktari
Póstar: 67
Skráði sig: Fim 14. Apr 2011 14:56
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af jonolafur »

vikingbay skrifaði:
jonolafur skrifaði:Er það bara ég eða stendur "CPU Fan Speed 0 Rpm " ???
hann er örugglega með það tengt í cpu optional
Ahh.. Ofc
Hmm...

Höfundur
deniro55
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 14. Jan 2013 09:16
Staða: Ótengdur

...

Póstur af deniro55 »

...
Last edited by deniro55 on Sun 24. Nóv 2019 13:04, edited 2 times in total.

Arnarmar96
spjallið.is
Póstar: 431
Skráði sig: Sun 04. Nóv 2012 05:21
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af Arnarmar96 »

þrystu vel á pinnana og læstu þeim, lenti í þessu með þessa tölvu sem ég er með núna, drap alltaf á sér og hátt hitastig, en 2 pinnarnir voru lausir og kælingin ekki þrýst nógu vel á. vonandi hjálpar þér þetta eitthvað.. (leiðinlegar þessar stock kælingar)
Mobo: MSI B85M-E33 CPU: Intel Core i5 4670k Ram: 8gb 1600mhz Graphics: GTX 650 ti 1gb
Skjámynd

demaNtur
1+1=10
Póstar: 1165
Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
Staðsetning: 192.168.1.254
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af demaNtur »

Miðað við þetta, þá er viftan á kælingunni ekki að virka, ert með tengt í CPU Fan, enn á myndinni í fyrsta póst er hún ekki að snúa neitt.

Og líka þá er kælikremið ekki að snerta allan örgjörvan, bara 1/5 af honum.

Farðu út í næstu tölvubúð og kauptu þér kælikrem, fylgdu myndbandinu sem ég póstaði hérna fyrir ofan, litla "baun" í miðjuna og láta síðan kælinguna á, þá ættiru að vera golden :)
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL

Höfundur
deniro55
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mán 14. Jan 2013 09:16
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af deniro55 »

demaNtur skrifaði:Miðað við þetta, þá er viftan á kælingunni ekki að virka, ert með tengt í CPU Fan, enn á myndinni í fyrsta póst er hún ekki að snúa neitt.

Og líka þá er kælikremið ekki að snerta allan örgjörvan, bara 1/5 af honum.

Farðu út í næstu tölvubúð og kauptu þér kælikrem, fylgdu myndbandinu sem ég póstaði hérna fyrir ofan, litla "baun" í miðjuna og láta síðan kælinguna á, þá ættiru að vera golden :)
já er með viftuna tengda nuna í cpu-fan.. en já ættla að prófa þetta sem þú ert að segja með að bæta kælikremi ofaná örgjöfan :)

playman
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af playman »

Það virðist eins og að kælinginn hafi ekki verið full spent í, ef að þú skoðar undir kælinguna þá lítur kremið út eins og s í laginu, en ekki eins og hringur.
Sem að myndi seygja mér að annað hvort er alltof lítið krem eða að kælinginn hafi ekki verið nógu vel spent í.

þú hefur þessa valkosti
#1 Setur kælinguna aftur á og passar að hún spennist pottþétt vel niður í gegnum móðurborðið, þar sem að kremið virðist ver nær ónotað,
og tjekkar svo hverninn hitin er. (gætir sloppið við að þrífa og setja nýtt krem á)
(gott er að snúa örlítið fram og til baka kælingunni rétt áður en að þú festir kælinguna, það hjálpar til með að dreyfa kreminu)
#2 þrífur kremið af og setur svo nítt krem á eins og var sínt í myndbandinu hér rétt fyrir ofan, það VERÐUR að vera krem á milli, og alls ekki of mikið, eins og eitt hrísgrjón er gott.
#3 þrífur kremið af og færð þér betri viftu eða vatnskælingu og setur nítt krem á.

Ég mæli með #3
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

playman
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af playman »

deniro55 skrifaði:
demaNtur skrifaði:Miðað við þetta, þá er viftan á kælingunni ekki að virka, ert með tengt í CPU Fan, enn á myndinni í fyrsta póst er hún ekki að snúa neitt.

Og líka þá er kælikremið ekki að snerta allan örgjörvan, bara 1/5 af honum.

Farðu út í næstu tölvubúð og kauptu þér kælikrem, fylgdu myndbandinu sem ég póstaði hérna fyrir ofan, litla "baun" í miðjuna og láta síðan kælinguna á, þá ættiru að vera golden :)
já er með viftuna tengda nuna í cpu-fan.. en já ættla að prófa þetta sem þú ert að segja með að bæta kælikremi ofaná örgjöfan :)
Nei þú verður að fjarlægja gamla kremið alveg, alls ekki blanda þeim samann.
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
Skjámynd

demaNtur
1+1=10
Póstar: 1165
Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
Staðsetning: 192.168.1.254
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af demaNtur »

playman skrifaði:
deniro55 skrifaði:
demaNtur skrifaði:Miðað við þetta, þá er viftan á kælingunni ekki að virka, ert með tengt í CPU Fan, enn á myndinni í fyrsta póst er hún ekki að snúa neitt.

Og líka þá er kælikremið ekki að snerta allan örgjörvan, bara 1/5 af honum.

Farðu út í næstu tölvubúð og kauptu þér kælikrem, fylgdu myndbandinu sem ég póstaði hérna fyrir ofan, litla "baun" í miðjuna og láta síðan kælinguna á, þá ættiru að vera golden :)
já er með viftuna tengda nuna í cpu-fan.. en já ættla að prófa þetta sem þú ert að segja með að bæta kælikremi ofaná örgjöfan :)
Nei þú verður að fjarlægja gamla kremið alveg, alls ekki blanda þeim samann.
Og ef þú treystir þér ekki í að setja þetta á sjálfur, farðu þá bara með tölvuna þar sem þú keyptir hana og biddu þá um að setja nýtt kælikrem á fyrir þig. :happy
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL

playman
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af playman »

Þetta hérna er ein mesta snilld sem ég kynnst þegar að ég hef verið að fjarlægja annað hvort krem eða "pads" af skjákortum
http://tolvutek.is/vara/arctic-silver-h ... em-2x-30ml" onclick="window.open(this.href);return false;
Mynd

Bara tveir dropar á hlutin dreyfa því vel með einhverju þæginnlegu (notaði einhvern fínan bursta úr málningar settinu frá konunni sem hún var hætt að nota)
bíður í 2-4mín og stríkur svo bara af, ekkert vesen.
Svo náttúrulega þrífurðu hlutin með vökvanum úr brúsanum merktur 2 eftir á og þá ertu tilbúin fyrir nýtt kælikrem.

Annars er bara að nota spritt, bara meyri vinna og tekur aðeins lengri tíma.
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af chaplin »

Áður en þú skemmir tölvuna þína og ferð í fýlu út í verslunina þar sem þú keyptir vélbúnaðinn af því þeir neita að taka hlutina inn í ábyrgð, farðu með hana til þeirra og láttu þá klára verkið, þú ert nú þegar búinn að fyrna ábyrgðinni þinni á örgjörvanum þar sem hann fór algjörlega langt yfir leyfileg hitamörk.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2037
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af Yawnk »

chaplin skrifaði:Áður en þú skemmir tölvuna þína og ferð í fýlu út í verslunina þar sem þú keyptir vélbúnaðinn af því þeir neita að taka hlutina inn í ábyrgð, farðu með hana til þeirra og láttu þá klára verkið, þú ert nú þegar búinn að fyrna ábyrgðinni þinni á örgjörvanum þar sem hann fór algjörlega langt yfir leyfileg hitamörk.
fyrna ábyrgðinni? hitamörk? hvernig á tölvuverslunin að vita hvort hann hafi farið í einhvern ákveðinn hita...
Hvað eru 'leyfileg' hitamörk?
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af chaplin »

Hann sendi inn mjög sannfærandi mynd að hann hafi farið í 89°C og hámarkshitinn er eitthvað í kringum 80°C ef ég man rétt, svo ef örgjörvinn myndi allt í einu hætta að virka að væri það ótrúlega létt að tengja það við þá staðreynd að örgjörvinn hefur verið að malla í 90°c.

Ég er ekki að segja það að tölvuverslunin myndi nýta sér, en þetta er vara sem hefur litla sem enga bilunartíðni.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: GLÆNÝ TÖLVA DREPUR Á SÉR 89°!!!

Póstur af I-JohnMatrix-I »

chaplin skrifaði:Áður en þú skemmir tölvuna þína og ferð í fýlu út í verslunina þar sem þú keyptir vélbúnaðinn af því þeir neita að taka hlutina inn í ábyrgð, farðu með hana til þeirra og láttu þá klára verkið, þú ert nú þegar búinn að fyrna ábyrgðinni þinni á örgjörvanum þar sem hann fór algjörlega langt yfir leyfileg hitamörk.
Sammála að hann eigi að fara með hana en ég veit nú ekki alveg með algjörlega langt yfir leyfileg hitamörk. Intel segja að þú sért öruggur meðan örgjörvin fer ekki yfir 72 gráður en það er talað um á OC forums að þessir nýjustu kynslóðar örgjörvar(Ivy og Haswell) þoli allt að 105 gráður áður en að þeir fara skemmast. Stendur meðal annars hjá mér í Coretemp að max hiti á mínum i5 3570K sé 105 gráður.
Svara