Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Allt utan efnis
Svara
Skjámynd

Höfundur
techseven
Ofur-Nörd
Póstar: 290
Skráði sig: Lau 02. Des 2006 17:26
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af techseven »

Er einhver hér sem hefur reynslu af IP myndavélum og hugbúnaði fyrir þær? Ætla að byrja að setja upp 2stk HD og 2stk SD til að byrja með. Þessar myndavélar verða allar innanhúss. Ætla að notast við tölvu sem er með Intel Core E8400 örgjörva og 4GB RAM en versla nýja diska fyrir þetta...

Ég er búinn að eyða smá tíma í að kynna mér þetta en þetta er stór heimur og auðvelt að "týnast". Flott væri ef einhver gæti bent mér á góða síðu sem selur IP myndavélar á sanngjörnu verði, svo er spurning með hugbúnaðinn? Ekki væri verra ef þetta væru power-over-ethernet myndavélar (PoE).

Ég var búinn að finna þessa síðu: http://www.lightinthebox.com/c/ip-surveillance_5181

Svo var ég að skoða þennan hugbúnað, frítt fyrir allt að 8 myndavélum: XProtect Go http://www.milestonesys.com/Software/XP ... protectgo/

Allar ábendingar vel þegnar.
Ryzen 7 1700 stock speed
Skjámynd

Xberg
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Sun 12. Feb 2012 02:16
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af Xberg »

Mæli með hugbúnaði sem heitir Ispy. 100% frítt og virkar á USB cam ásamt Ip vélar. Er með 6.vélar í gangi og allar keyrðar á þessu forriti.

En þú þarft ágætis tölvu í að keyra vélarnar á 20-30 römmum/sek , Ég skipti minni vél út um daginn sem var AMD Dual core 2.8Ghz - 4.Gb ram hún átti erfitt með þessa keyrslu. Er núna með 4.Ghz 8-kjarna sem er allt annað líf fyrir þetta. Svona vélar éta örgjörfa í morgunmat og þarf ágætis tölvu í þetta ef þú ert með HD vélar og vilt sjá eitthvað gersat í vélonum án þess að allt laggi í rusl.

http://www.ispyconnect.com/" onclick="window.open(this.href);return false;

Mæli með þvi að þú kynnir þér líka lög og reglur um rafræna vöktun

http://www.personuvernd.is/spurningar-o ... en-voktun/" onclick="window.open(this.href);return false;
Pc 1: CPU: FM1 X4 A6-3650 Quad@2.6.GHz * Cooling: 92.mm 2x4.pipe * Móbo: FM1 GA-A75-D3H * 8GB DDR3 1600MHz 2x4GB * 120GB SSD * 40" FuLL HD
PC 2: CPU: AM3+ X8 FX-8350@4.2.GHz * Cooling: 2x120mm 2x6.pipe * Móbo: AM3 GA-970A-UD3 * 16GB DDR3 1600MHz 2x8GB * 120GB SSD + 4x2.Tb * 5x 120.mm Fans

Skari
spjallið.is
Póstar: 463
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af Skari »

Ef þú ætlar að velja þennan hugbúnað, passaðu þá bara að hugbúnaðurinn styðji myndavélarnar sem þú kaupir, finnur myndavélarnar sem þetta styður hérna: http://www.milestonesys.com/Support/Tec ... tproducts/" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

eriksnaer
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 382
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2012 12:28
Staðsetning: Mosfellsbær
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af eriksnaer »

Hef góða reynslu af Blue Iris 3 og virkar hjá mér með trendnet sem og fosscam vélum

Höfum verið að taka fosscam vélar hjá eirberg http://eirberg.is/Catalog.aspx?CategoryID=1822" onclick="window.open(this.href);return false; höfum verið að taka mini vélina og er með góða upplausn og ekkert vesen
15.6" Lenovo Y700 - 4k skjár, i7, DDR4
Skjámynd

hagur
Vaktari
Póstar: 2917
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af hagur »

Keypti svona um daginn: http://eirberg.is/Product.aspx?ProductID=19539" onclick="window.open(this.href);return false;

Nota hana aðallega sem barnapíu, en fínt að geta stillt henni upp á góðum stað þegar maður fer að heiman. Er svo með app í símanum og get VPN-að mig heim og monitorað hvar sem er.

Þessi myndvél virkar mjög solid og stable. Myndgæðin eru mjög fín og night visionið er brilliant.
Skjámynd

Revenant
vélbúnaðarpervert
Póstar: 992
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af Revenant »

Ég hef einmitt verið að skoða svipað (þ.e. PoE myndavélar + hugbúnað).
Hinsvegar það sem ég hef verið að leita eftir er eftirlitshugbúnaður sem keyrir sem þjónusta (þ.e. það þarf ekki að ræsa eftirlitsforrit ef vélin er endurræst).

Veit einhver um svoleiðis hugbúnað (annaðhvort Windows eða Linux)?
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X
Skjámynd

Cobra
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Lau 10. Ágú 2013 16:28
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af Cobra »

Getur notað XProtect Go Free http://www.milestonesys.com/XProtect-Fr ... -Download/" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er hægt að tengja USB myndavélar við hugbúnaðinn og er hugbúnaðinn keyrður upp sem þjónusta. Gallinn er hins vegar að hugbúnaðurinn er takmarkaður við 8 myndavélar og upptöku í aðeins 5 daga.

Vonandi hjálpar þetta eitthvað. Annars bara forrita þetta :)
Skjámynd

Höfundur
techseven
Ofur-Nörd
Póstar: 290
Skráði sig: Lau 02. Des 2006 17:26
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Val á IP eftirlitsmyndavélum + hugbúnaði?

Póstur af techseven »

Takk fyrir svörin, þetta ætti að duga okkur til að byrja að henda einhverju upp...
Ryzen 7 1700 stock speed
Svara