Ég er með gamlan toyota avensis '99, en hann er bara keyrður eitthvað um 110 k. Ég hef ekkert verið að fara með hann í regluleg tjékk, en langar að láta yfirfara hann aðeins og þá helst vélina. Langar ekkert með hann í toyota umboðið, hef mjög slæma reynslu af því að vera rændur inn að beini þar fyrir "þjónustuskoðanir" sem kosta mann 70 þús fyrir að skipta um rúðuþurrkur.
Hvert fer maður með svona bíl? Hann er ekki beint bilaður, en líklega kominn tími á ýmislegt.
Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Kíktu með hann á skoðunarstöð Umferðarstofu. Ég bara hreinlega man það ekki hvað þessi skoðunarstöð hét.
Hef farið þangað með bíla í 'ýtarlega skoðun' áður en ég hef íhugað kaup.
Hef farið þangað með bíla í 'ýtarlega skoðun' áður en ég hef íhugað kaup.
i7-10700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Frumherji upp á Höfða er með ýtarlega ástandsskoðun fyrir einhvern rúmlega 10þ kall.
Have spacesuit. Will travel.
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Ég á árg. 2000 af Avensis og ég hef tvisvar farið í umboðið þar sem þeir gáfu mér ódýrari tilboð í viðgerð heldur en almennu verkstæðin, kom mér mjög á óvart.
Annars þegar ég keypti minn bíl þá var hann í eigu bílasölu. Þeir höfðu látið fara með hann í einhverja svona ástandsskoðun, þar var gefið upp að skipta þyrfti um bremsuklossa allan hringinn og að einn demparinn væri að leka vökva. Ég gat þar með prúttað hann eitthvað niður. Ég fór svo með hann beint eftir kaupin á verkstæði og ætlaði að láta kippa þessu í liðinn. Fékk svo símtal frá bifvélavirkjanum þar sem hann sagði að klossarnir væru rétt hálfnaðir og það þyrfti ekkert að skipta um þá strax og að hann fann ekkert að demparanum, hann læki engum vökva og væri í fínu lagi.
En eru ekki einhverjir sem sérhæfa sig í vélunum sjálfum, vélastillingum og einhverju svoleiðis? Ertu að leita að einhverju þannig?

Athyglisvert. Kannski auðveldara að fá tilboð ef maður veit nákvæmlega upp á hár hvað þarf að gera. Kannski maður byrji á ástandsskoðun.Hargo skrifaði:Ég á árg. 2000 af Avensis og ég hef tvisvar farið í umboðið þar sem þeir gáfu mér ódýrari tilboð í viðgerð heldur en almennu verkstæðin, kom mér mjög á óvart.
Tja, líklega bara öllum pakkanum. En myndi sennilega byrja á vélinni.Hargo skrifaði:En eru ekki einhverjir sem sérhæfa sig í vélunum sjálfum, vélastillingum og einhverju svoleiðis? Ertu að leita að einhverju þannig?
*-*
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Hef sömu sögu að segja. Hef einmitt farið með mína Toyotu bara beint í umboðið í síðustu tvö skipti sem eitthvað hefur þurft að gera fyrir bílinn og verðið kom á óvart, ekkert hærra en hjá almennu verkstæði. Þeir buðu mér líka að kaupa aftermarket varahlut í staðinn fyrir original til að spara.Hargo skrifaði:Ég á árg. 2000 af Avensis og ég hef tvisvar farið í umboðið þar sem þeir gáfu mér ódýrari tilboð í viðgerð heldur en almennu verkstæðin, kom mér mjög á óvart.
Treysti þeim líka 100% til að skila góðu verki.
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Ef þú ætlar að láta yfirfara bílinn þá mun ástandsskoðun ekki vera nógu fullnægjandi skoðun.appel skrifaði:Athyglisvert. Kannski auðveldara að fá tilboð ef maður veit nákvæmlega upp á hár hvað þarf að gera. Kannski maður byrji á ástandsskoðun.Hargo skrifaði:Ég á árg. 2000 af Avensis og ég hef tvisvar farið í umboðið þar sem þeir gáfu mér ódýrari tilboð í viðgerð heldur en almennu verkstæðin, kom mér mjög á óvart.
Tja, líklega bara öllum pakkanum. En myndi sennilega byrja á vélinni.Hargo skrifaði:En eru ekki einhverjir sem sérhæfa sig í vélunum sjálfum, vélastillingum og einhverju svoleiðis? Ertu að leita að einhverju þannig?
Fór með Golf 2004 árg í kúplingsskipti og hjólalegu skipti með varahlutum og vinnu var þetta 120 þús
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Hvernig er það ef maður færi þangað með bíl sem maður veit að er orðinn svoldið illa farinn og slitinn, búnir bremsuklossar/diskar ofl, henda þeir þá ekki bara akstursbanni á bílinn eða endurskoðun?audiophile skrifaði:Frumherji upp á Höfða er með ýtarlega ástandsskoðun fyrir einhvern rúmlega 10þ kall.
Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- 1+1=10
- Póstar: 1165
- Skráði sig: Þri 30. Nóv 2010 17:18
- Staðsetning: 192.168.1.254
- Staða: Ótengdur
Re: Annar bílaþráður... láta yfirfara vélina og annað
Nei, þeir mega það ekki.Glazier skrifaði:Hvernig er það ef maður færi þangað með bíl sem maður veit að er orðinn svoldið illa farinn og slitinn, búnir bremsuklossar/diskar ofl, henda þeir þá ekki bara akstursbanni á bílinn eða endurskoðun?audiophile skrifaði:Frumherji upp á Höfða er með ýtarlega ástandsskoðun fyrir einhvern rúmlega 10þ kall.
i7 9700K - Asus ROG Strix Z390-I Gaming- Corsair Vengeance 2x16GB 3200MHz - GeForce 2070 Super
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL
Asus 24.5" XG258Q 240hz - Glorious GMMK white ice - HyperX Cloud Alpha - Glorious Model-D - The Glorious 3XL