TS Sennheiser HD 595

Hér má kaupa og selja allt svo lengi sem það er löglegur varningur.
Svara

Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 446
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

TS Sennheiser HD 595

Póstur af Some0ne »

Sælir,

Er með ca. 3 ára Sennheiser HD 595 heyrnatól í mjög góðu standi

Mynd

Týpan sem tók við af þeim heitir HD 598 og kostar 39.900 hjá Pfaff, en annars eru þetta held ég að mestu leiti nákvæmlega sömu heyrnatól

Technical Details
Frequency Response 12-38,500 Hz
Transducer Principle Open, dynamic
THD < 0.1%
Max. SPL 112 dB (1 kHz, 1V)
Ear Cupling Around-the-ear
Cable Length 9.8 ft (3m)
Nominal Impedance 50
Weight (without cable) 270g
Connector 6.3 mm stereo (3.5mm adapter)

Þetta eru með bestu heyrnatólum sem ég hef átt, nota þau bara voðalega lítið í dag þar sem ég á líka Sennheiser PC360.

Uppsett verð - 15.000

Áhugasamir geta sent mér pm, eða hringt/sms í 847-9353 - Óli
Last edited by Some0ne on Mið 30. Jan 2013 00:44, edited 1 time in total.
Skjámynd

MatroX
Besserwisser
Póstar: 3496
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af MatroX »

sry en þegar þú getur fengið 380pro á 22þús þá ertu aldrei að fara fá 20þús fyrir þessi
http://tl.is/product/sennheiser-hd-380-pro-heyrnartol" onclick="window.open(this.href);return false;
Intel i7 8700k | Corsair H100i | ASROCK z370 PRO4m | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |
Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af oskar9 »

MatroX skrifaði:sry en þegar þú getur fengið 380pro á 22þús þá ertu aldrei að fara fá 20þús fyrir þessi
http://tl.is/product/sennheiser-hd-380-pro-heyrnartol" onclick="window.open(this.href);return false;
verst er bara hvað þau eru ólík, sá sem leytast að þeim hljóm og þægindum sem 595 gefa verður kanski ekki heillaður af 380PRO

Ég á bæði 595 og 380PRO bara útaf því hvað þau eru ólík, 595 sitja létt á hausnum, anda vel og gefa mjög flott hljóð á öllum tíðnum, þau hinsvegar hleypa hljóði út og inn alltof auðveldlega
380PRO eru svo hinum megin á skalanum, Allveg lokuð, sitja mjög þétt á hausnum sem veldur smá svitamyndun, þykk og chunky gormasnúra er ekki fyrir alla, en hljóðgæðin eru líka rosaleg, bassinn og "kickið" úr þeim er rosalegt og ef maður er með fínt hljóðkort og jafnvel magnara líka þá ertu í toppmálum með þau.
Þau leka engu hljóði út nema allveg í botni og kemst lítið af utanaðkomandi hávaða inn í þau.

Ég myndi segja að ég noti 380Pro svona 70-80% og 595 rest.
Nota 595 þegar ég horfi t.d á david attenborough eða hlusta á Ambient tónlist í EVE online, 380 fara svo í allt annað, hasarmyndir, BF3 og þannig hasar þá valta þau yfir 595.

20 þús er full mikið bara útaf því hvað 380 eru hrikalega solid og opin headset eru svo takmörkuð, hefur þau ekkert með í t.d. flug eða rútu eða þannig á meðan 380 angra engann og eru samanbrjótanleg með nettri ferðatösku
"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"

Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 446
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Some0ne »

MatroX skrifaði:sry en þegar þú getur fengið 380pro á 22þús þá ertu aldrei að fara fá 20þús fyrir þessi
http://tl.is/product/sennheiser-hd-380-pro-heyrnartol" onclick="window.open(this.href);return false;
Já sæll,

Þetta eru náttúrulega ekki sambærileg heyrnatól, ég hef persónulega alltaf hatað lokuð heyrnatól, sérstaklega þegar að ég er að nota þau lengi, eins og Óskar bendir á að þá byrjar maður að svitna undan þeim og ég fæ miklu oftar hausverk af svona þéttum heyrnatólum. Allavegana er minn smekkur þannig að ég kýs alltaf þessa týpu af hönnun fyrir svona stór heyrnatól sem ég nota heima.

Vitaskuld hleypa þau hljóði inn og út, enda open ear, hönnuð til að gera það.

Ég er ekki nægilega mikill hljóðperri til að geta farið útí einhvern rosalegan samanburð á HD 595 og 380 HD, en allavegana eru þetta ekki beint sambærileg að því leitinu til.

Ég var bara að vitna í síðuna hjá pfaff.is með hitt, þar kostar 380 HD 25þúsund sem er aðeins meira en hjá tölvulistanum, en miðað við að HD 598 sé beinn arftaki 595, þá miða ég frekar við það.

Er alveg opinn fyrir tilboðum en ég held frekar áfram að eiga þau frekar en að selja þau á eitthvað klink, takk samt fyrir athugasemdirnar :)
Skjámynd

MatroX
Besserwisser
Póstar: 3496
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af MatroX »

í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Intel i7 8700k | Corsair H100i | ASROCK z370 PRO4m | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Jónas Þór
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 11:40
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Jónas Þór »

MatroX skrifaði:í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Það er bara ekki rétt hjá þér kallinn. Pælingin um að nenna ekki að fara í eitthvað tæknilegt á "tækni" spjallborði er bara hlægileg. Hef prufað bæði heyrnatólin og átt önnur, og þau bjóða upp á tölvuert mismunandi hljóm-karakter. Það er því notandin sem þarf að velja hvað hann fýlar ef velja ætti milli þessara tveggja heyrnatóla.

Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 446
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Some0ne »

MatroX skrifaði:í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Því miður er það ekki svo einfalt, lokuð heyrnatól treysta meira á þrýsting til að búa til bassa, svona svipað og earplugs gera.

Fyrir utan það að þegar að ég hraðrenndi yfir speccana á þessum heyrnatólum þá er 595 með stærra tíðnisvið en 380 :)

Þetta er eins og að segja að hver sem er færi og keypti sér nýja Hondu Accord í staðinn fyrir að kaupa 3 ára BMW eða whatever, einhver svona fáránleg samlíking. :)
Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3773
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Tiger »

Keypti mér svona notuð fyrir c.a. 3 árum á 15.000kr. Sonur minn komst í þau og eyðilagði og hef allaf ætlað að kaupa mér önnur því Bose Quietcomport hennta ekki alltaf.

En finnst 20þús of mikið fyrir þau í dag. Fyrir c.a.3 árum þegar enn var hægt að kaupa þau ný og 598 ekki komin var gangverðið 15þús.
Mynd

Magni81
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Mið 11. Feb 2009 16:51
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Magni81 »

ég keypti mér HD 555 hérna um daginn, notuð á 7þús. Og upgrade-aði þau uppí 595.
Skjámynd

audiophile
/dev/null
Póstar: 1393
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af audiophile »

Ég keypti mín 595 árið 2006 á 16.995 og þau enduðu ú um 30þ áður en þau hættu í sölu eftir hrun. Myndi segja að 15.000kr sé sanngjarnt fyrir þau.

En sá sem sagði að 380Pro sé betri en 595 er ekki nógu upplýstur. =; Þetta er algjörlega ólík tól þar sem 380Pro eru eins lokuð og einangruð og þau gerast og HD595 eru opin. Það fer algjörlega eftir hvernig tónlist hlustað er á, við hvernig aðstæður og hvernig fólk vill heyra tónlistina sem segir til um hvað hentar best.

380Pro eru góð lokuð tól og 595 eru góð opin tól. Hvor tólin séu betri er afstætt.
Have spacesuit. Will travel.

Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 446
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Some0ne »

Tiger skrifaði:Keypti mér svona notuð fyrir c.a. 3 árum á 15.000kr. Sonur minn komst í þau og eyðilagði og hef allaf ætlað að kaupa mér önnur því Bose Quietcomport hennta ekki alltaf.

En finnst 20þús of mikið fyrir þau í dag. Fyrir c.a.3 árum þegar enn var hægt að kaupa þau ný og 598 ekki komin var gangverðið 15þús.

Þessi sem að þú keypti notuð fyrri 3 árum voru væntanlega X gömul á þeim tíma, verðið á þessum heyrnatólum hækkaði líka í gegnum tiðina, þ.a.s nýjum. Man að árið 2006 kostuðu þau ný rétt rúmlega 20.000, svo 2009 voru þau komin vel yfir 30.000

Voðalega erfitt að vera miða við verð, á notaðri vöru, sem kostaði eitthvað x mikið árið þetta, þegar að verðlag á íslandi er síhækkandi :)

@Magni81

Þú ert væntanlega að tala um að þú hafir þá skipt um báða hátalarana/driverana hvað sem þetta heitir, veit svosem ekki hvað það kostar stykkið, en ég allavegana myndi sjálfur ekki leggja í að græja það :)

Magni81
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Mið 11. Feb 2009 16:51
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Magni81 »

Some0ne skrifaði:

Það var nú ekki alveg svo flókið né dýrt.. bara taka þunna svampinn úr eins og sýnt er hér :) http://www.youtube.com/watch?v=PvQ8PzBrHXE" onclick="window.open(this.href);return false;

KristinnK
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af KristinnK »

MatroX skrifaði:í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Þetta er hlægileg staðhæfing. Hd 595 er með miklu betra sound stage og separation. Kannski setur þú samasemmerki milli bassamagns og hljómagæða, en það getur ekki kallast annað en sorglegur misskilningur.
Clevo P170EM | Intel i7-3720QM @ 3.6GHz | 4x4GB DDR3 @ 1600MHz | 256GB SSD + 1TB HDD | GeForce GTX 680M @ 855MHz/2300MHz
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Gúrú »

Magni81 skrifaði:Það var nú ekki alveg svo flókið né dýrt.. bara taka þunna svampinn úr eins og sýnt er hér :) http://www.youtube.com/watch?v=PvQ8PzBrHXE" onclick="window.open(this.href);return false;
:lol: Já það að fjarlægja svampinn eykur tíðnisviðið úr 15-28000 Hz í 12-38500 Hz og helmingar THD :lol:

Heimskulegar staðhæfingar á ferli hjá ykkur hérna kappar.
Modus ponens
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Sallarólegur »

MatroX skrifaði:í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Frekar leiðinlegt að sjá svona comment á söluþræði.

Þetta eru gerólík heyrnatól, þetta er eins og að segja 'Benz eru betri bílar en BMW'.

HD 595 - 27.199 kr.
http://www.elkofrihofn.is/frihofn/produ ... oryid=2203" onclick="window.open(this.href);return false;

Myndi þó setja 10-15k á þau ef þau eru 3 ára.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

Haxdal
Tölvutryllir
Póstar: 640
Skráði sig: Lau 14. Apr 2007 18:58
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Haxdal »

Gúrú skrifaði:
Magni81 skrifaði:Það var nú ekki alveg svo flókið né dýrt.. bara taka þunna svampinn úr eins og sýnt er hér :) http://www.youtube.com/watch?v=PvQ8PzBrHXE" onclick="window.open(this.href);return false;
:lol: Já það að fjarlægja svampinn eykur tíðnisviðið úr 15-28000 Hz í 12-38500 Hz og helmingar THD :lol:

Heimskulegar staðhæfingar á ferli hjá ykkur hérna kappar.
Skrítið, þar sem það er sami driver í báðum heyrnatólum.

Mynd

En annars upp fyrir góðum heyrnatólum :)
Atvinnunörd - Part of the 2%
> FX8350 | Gigabyte 990FXA-UD3 | Nvidia GTX 760 | 8GB Somethingsomething | Corsair Graphite 600T <

Magni81
has spoken...
Póstar: 186
Skráði sig: Mið 11. Feb 2009 16:51
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Magni81 »

Gúrú skrifaði:
Magni81 skrifaði:Það var nú ekki alveg svo flókið né dýrt.. bara taka þunna svampinn úr eins og sýnt er hér :) http://www.youtube.com/watch?v=PvQ8PzBrHXE" onclick="window.open(this.href);return false;
:lol: Já það að fjarlægja svampinn eykur tíðnisviðið úr 15-28000 Hz í 12-38500 Hz og helmingar THD :lol:

Heimskulegar staðhæfingar á ferli hjá ykkur hérna kappar.
Jamm kynntu þér málið áður en þú ferð að tala um heimskulegar staðhæfingar... Sami driverinn eins og kemur frama hérna fyrir ofan
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Gúrú »

Gerir þau ekki að nákvæmlega sömu heyrnatólunum. (Leyfi mér að bumpa þetta fyrir OP þar sem að hann mætti fáránlegu rugli upphaflega)

Heimskulegu staðhæfingarnar eru síðan þessar:
"enginn muni kaupa sér [opin] heyrnatól með [mögulega betri hljómgæðum] vegna þess að [lokuð] heyrnatól kosta [varla] meira."
Modus ponens
Skjámynd

MatroX
Besserwisser
Póstar: 3496
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af MatroX »

Sallarólegur skrifaði:
MatroX skrifaði:í stuttum orðum þá eru hd380 pro mun betri heyrnatól hvort þau séu opin eða lokuð. ég nenni ekki að fara í eitthvað tæknilegt en það fer hver sem er og kaupir hd380 ef þau kosta það sama og eru ný:)
Frekar leiðinlegt að sjá svona comment á söluþræði.

Þetta eru gerólík heyrnatól, þetta er eins og að segja 'Benz eru betri bílar en BMW'.

HD 595 - 27.199 kr.
http://www.elkofrihofn.is/frihofn/produ ... oryid=2203" onclick="window.open(this.href);return false;

Myndi þó setja 10-15k á þau ef þau eru 3 ára.
jájá alveg svkalega leiðinlegt þar sem ég veit nátturulega ekkert um þetta hahahah ](*,) . ég var í vinnunni og hafði ekki tíma til að skrifa almenninlegan póst.

tíðna sviðið er mun betra á hd380pro enda eru 380pro notuð sem monitor heddphones útum allan heim og koma úr pro línunni hjá sennheiser. ástæðan afhverju ég bar þessi 2 verð saman er sú að það ósanngjært að bera saman við 598 hjá paff þar sem fyrir 3 árum borgaði ég 18.990kr fyrir 595 í tölvulistannum og ég fann nótuna yfir það.

eina sem ég var að reyna koma framfarir að verðið væri of hátt og þótt 380 séu lokuð og 595 opin þá er samt mun betri hljómur úr 380pro en i don't care hann má alveg reyna fá 20þús fyrir 3ára gömul heyrnatól þegar þú getur fengið mun betri heyrnatól á sama pening ný
Intel i7 8700k | Corsair H100i | ASROCK z370 PRO4m | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 446
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af Some0ne »

MatroX skrifaði: tíðna sviðið er mun betra á hd380pro enda eru 380pro notuð sem monitor heddphones útum allan heim og koma úr pro línunni hjá sennheiser. ástæðan afhverju ég bar þessi 2 verð saman er sú að það ósanngjært að bera saman við 598 hjá paff þar sem fyrir 3 árum borgaði ég 18.990kr fyrir 595 í tölvulistannum og ég fann nótuna yfir það.

eina sem ég var að reyna koma framfarir að verðið væri of hátt og þótt 380 séu lokuð og 595 opin þá er samt mun betri hljómur úr 380pro en i don't care hann má alveg reyna fá 20þús fyrir 3ára gömul heyrnatól þegar þú getur fengið mun betri heyrnatól á sama pening ný
Fyrir 3 árum gastu líka keypt bensín á 146 krónur líterinn, í dag borgaru 250~ krónur fyrir sama líter.

Varðandi tíðnisviðið, þá er það eftirfarandi:

HD380 PRO - 8 - 27,000 Hz
HD595 - 12-38,500 Hz

Þannig að ég get ekki séð betur en að 595 dekki tíðnisvið uppá sirka 22,500 Hz, vs 19,000 hjá 380 Pro? :)

Annars er þetta orðinn afar áhugaverður þráður með skemmtilegum umræðum, í tilefni ábendinga þá lækka ég verðið í 15.000,

Gleymdi að það var skipt um driver öðru meginn fyrir ca. ári því að ég heyrði smá skruðninga þeim meginn.
Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2010
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Staða: Ótengdur

Re: TS Sennheiser HD 595

Póstur af tdog »

Ég nota mín 595 mikið í mixi, bæði FOH og í monitorworld – elska það að þau séu opin.
MacBook Pro, Late 2011. 2.2 Ghz i7, 8GB 1333Mhz
rafvirki/hljóðmaður/IP-gúrú
Svara