Sjónvarp Símans - Mörg sjónvörp?

Svara

Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Staða: Ótengdur

Sjónvarp Símans - Mörg sjónvörp?

Póstur af GTi »

Góða kvöldið.

Við vorum að skipta út Digital Ísland fyrir Sjónvarp Símans.

Við vorum með þetta tengt með gamaldags loftnetssnúrum í sjónvarpið og með T-stikki inn í önnur herbergi hússins.
En nú virðist þessi myndlykill símans ekki senda í gegnum loftnetstengið. En hann býður uppá það að senda í gegnum RCA/Scart og HDMI.

Hvernig er best fyrir mig að fá sendinguna inn í önnur herbergi hússins?

Er hægt að fá snúru sem breytir annaðhvort:
HDMI -> Loftnet.
Scart/RCA -> Loftnet.

Eða þarf ég bara að fá mér HDMI Splitter og draga HDMI í öll herbergi hússins?
( Það eru samt ekki öll sjónvörpin með HDMI )

Takk fyrir,
Gleðileg jól.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp Símans - Mörg sjónvörp?

Póstur af appel »

Algengasta lausnin er margir myndlyklar.

Ég veit ekki hvað þú þarft að tengja í mörg sjónvörp, en þú getur fengið allt að 5 myndlykla á Ljósnetinu. Gjald fyrir hvern aukamyndlykil er einhver 400-500 kr. á mánuði, en færð sömu áskriftir á alla. Þannig getur hver og einn í sínu herbergi verið að horfa á mismunandi stöð og/eða VOD.

Svo einhverskonar ethernet í router, hægt er að nálgast wireless ethernet eða rafmagns-ethernet, til að sleppa við snúrurnar. Eða ef þú ert duglegur að draga, að draga ethernet kapla.
*-*
Skjámynd

BugsyB
</Snillingur>
Póstar: 1072
Skráði sig: Mán 19. Nóv 2007 22:51
Staða: Ótengdur

Re: Sjónvarp Símans - Mörg sjónvörp?

Póstur af BugsyB »

Símvirki.
Svara