3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
https://www.facebook.com/pages/Nova/633 ... 71206a07:0" onclick="window.open(this.href);return false;
Endilega látið í ykkur heyra ef þið eruð óánægðir með 3G sambandið hjá Nova.
Meiri líkur á að þeir geri eitthvað í þessu ef fólk lætur heyra í sér.
Endilega látið í ykkur heyra ef þið eruð óánægðir með 3G sambandið hjá Nova.
Meiri líkur á að þeir geri eitthvað í þessu ef fólk lætur heyra í sér.
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
ég skipti bara í símann, leysti öll mín 3G vandamál og rúmlega það, bý á AK og það er núll samband útá akureyraflugvelli, fæ fullann styrk og mikinn hraða eftir að ég skipti
"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Komið! Lýst vel á þetta, þetta er gjörsamlega óóþolandi
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Ég lenti líka í þessu, var 90% af tímanum á 2g, fór og fékk nýtt kort sem átti að laga þetta, en það batnaði ekki mikið
Fór yfir til símans og er alltaf á 3g þar
Fór yfir til símans og er alltaf á 3g þar
-
- Besserwisser
- Póstar: 3111
- Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Ekki kvarta bara hérna strákar og stelpur, látið kvartanirnar berast til nova
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Kerfið hjá Nova ræður einfaldlega ekki við alla þessa notendur. Eru ekki Vodafone að nota þeirra 3G dreifikerfi líka? Er hjá Nova og er alltaf að detta út. Sætti mig nú bara við þetta þar sem ég hringi frítt í alla sem ég þekki.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Tek undir það... Ég er bara með sér Nova síma sem ég nota til að hringja úr í Nova númer, Svo er ég með minn aðalsíma hjá Vodafone og fer netið í honum í gegnum 3G samband án vandræða. Mæli með Vodafone ef þið eruð að pæla í að skipta um símfyrirtæki útaf þessuSallarólegur skrifaði:Kerfið hjá Nova ræður einfaldlega ekki við alla þessa notendur. Eru ekki Vodafone að nota þeirra 3G dreifikerfi líka? Er hjá Nova og er alltaf að detta út. Sætti mig nú bara við þetta þar sem ég hringi frítt í alla sem ég þekki.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Ég breytti símanum hjá konunni þannig að hann er strictly 2G. Batterísendingin fór úr 1-2 dögum í 5. Notkunin breyttist lítið.
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
3G hjá Nova er drasl og ætla bara ekkert að skafa ofan af því. Ef það væri ekki fyrir að 80% af símaskránni minni sé hjá Nova og símreikningurinn djók lágur, þá væri ég löngu búinn að skipta í Símann.
Have spacesuit. Will travel.
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Ég skipti yfir í Símann borga kannski meira en það er betra að borga slatta fyrir það sem maður vill fá en að borga aðeins minna fyrir eitthvað sem nær því engan vegin. 3g hjá Nova hætti að vera gaman þegar bolurinn af kúnnunum þeirra fóru að nota það...
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
TAL, einhver reynsla?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3737
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Svo má ekki gleyma að þetta eyðir rafmagni hjá manni.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Pandemic skrifaði:Svo má ekki gleyma að þetta eyðir rafmagni hjá manni.
Augljóslega er hún með Nova síma.Daz skrifaði:Ég breytti símanum hjá konunni þannig að hann er strictly 2G. Batterísendingin fór úr 1-2 dögum í 5. Notkunin breyttist lítið.
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Er Vodafone í alvöru að nota 3G kerfi Nova?
Spyr einfaldlega vegna þess að ég er sjálfur hjá Vodafone og er *alltaf* með fínt 3G samband hérna á höfuðborgarsvæðinu og oftast líka þegar ég er að þvælast um landið - en svo heyrir maður endalausar horror sögur um 3G samband hjá Nova.

- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
3G hjá NOVA virkar þegar það er 3G hjá NOVA, en þegar maður er á ferðinni þá kemur VODAFONE E logo á símann og netið dettur út, ekki einu sinni hægt að tékka á tölvupósti. Þá er ráðiði að slökkva á 3G og kveikja aftur til að fá NOVA inn.hagur skrifaði:Er Vodafone í alvöru að nota 3G kerfi Nova?
Spyr einfaldlega vegna þess að ég er sjálfur hjá Vodafone og er *alltaf* með fínt 3G samband hérna á höfuðborgarsvæðinu og oftast líka þegar ég er að þvælast um landið - en svo heyrir maður endalausar horror sögur um 3G samband hjá Nova.
Einni er HUGE munur á batterí endingunni hvor maður er hjá t.d. Símanum eða NOVA, stóri kosturinn við NOVA er að það er frítt NOVA í NOVA og það eru margir þar, stóru gallarnir þrír eru hinsvegar lélegt 3G, léleg rafhlöðuending tækja sem notast við þjónustuna og fáránlega dýrt gagnamagn. Lágmarks gagnamagn er 1GB á þúsundkall og það fyrninst eftir 30 daga! Annars er það 39kr fyrir hver 5MB. Ég nota venjulega tæp 100MB á mánuði og finnst því skrítið að 1GB sé lágmarkið.
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Nú veit ég ekki en það er hægt að bera saman þessar myndir:
Vodafone 3g
Nova 3g
Ekki alveg eins en frekar líkt. Nova geta náttúrulega með QoS stillingum breytt netinu hjá sér þannig að Vodafone hefur X hluta af tengingunni og Nova eitthvað minna. Ef ég man rétt þá á Nova ekki 3g kerfið sitt heldur leigir það af Huawei. Þannig borga þeir bara fyrir notkun sem fer í gegnum kerfið þeirra. Það getur vel verið að Vodafone díllinn sé fyrir utan þann samning og þannig geta þeir gefið Vodafone stærri link án þess að tapa nokkuð á því.
En ég er bara að spekúlera, veit ekkert um Vodafone og Nova. Veit bara að þegar ég beilaði á Nova fór batteríið að endast betur og netið varð betra.

Dittó. Í þau einstaka skipti sem 3G dettur út hjá mér dugar að restarta símanum.hagur skrifaði:Er Vodafone í alvöru að nota 3G kerfi Nova?
Spyr einfaldlega vegna þess að ég er sjálfur hjá Vodafone og er *alltaf* með fínt 3G samband hérna á höfuðborgarsvæðinu og oftast líka þegar ég er að þvælast um landið - en svo heyrir maður endalausar horror sögur um 3G samband hjá Nova.
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
-
- Kóngur
- Póstar: 4270
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Þeir eru reyndar farnir að bjóða 500MB á 490 kr.GuðjónR skrifaði:3G hjá NOVA virkar þegar það er 3G hjá NOVA, en þegar maður er á ferðinni þá kemur VODAFONE E logo á símann og netið dettur út, ekki einu sinni hægt að tékka á tölvupósti. Þá er ráðiði að slökkva á 3G og kveikja aftur til að fá NOVA inn.hagur skrifaði:Er Vodafone í alvöru að nota 3G kerfi Nova?
Spyr einfaldlega vegna þess að ég er sjálfur hjá Vodafone og er *alltaf* með fínt 3G samband hérna á höfuðborgarsvæðinu og oftast líka þegar ég er að þvælast um landið - en svo heyrir maður endalausar horror sögur um 3G samband hjá Nova.
Einni er HUGE munur á batterí endingunni hvor maður er hjá t.d. Símanum eða NOVA, stóri kosturinn við NOVA er að það er frítt NOVA í NOVA og það eru margir þar, stóru gallarnir þrír eru hinsvegar lélegt 3G, léleg rafhlöðuending tækja sem notast við þjónustuna og fáránlega dýrt gagnamagn. Lágmarks gagnamagn er 1GB á þúsundkall og það fyrninst eftir 30 daga! Annars er það 39kr fyrir hver 5MB. Ég nota venjulega tæp 100MB á mánuði og finnst því skrítið að 1GB sé lágmarkið.
-
- /dev/null
- Póstar: 1393
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Þegar ég byrjaði hjá þeim var hægt að vera með 150mb á 490 í áskrift.
Have spacesuit. Will travel.
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Hefur einhver reynslu af Vodafone vs. Símanum? 3G samband/hraði, þjónusta o.þ.h.?
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Skv. þessari síðu er Vodafone að nota 3g kerfi Nova: http://www.siminn.is/einstaklingar/netid/dreifikerfid/" onclick="window.open(this.href);return false;
Enda hefur það alltaf verið þannig ef mig minnir rétt, Nova notar svo 2g kerfi Vodafone.
Það sem hefur alltaf verið vandamál fyrir Nova er að símar eru 'tregir' að flakka á milli 3g kerfi Nova og 2g kerfi Vodafone, lendi af og til í því að síminni minn er að slást við að tengjast inn á 3g kerfi Nova þegar það er lélegt samband við það en gott samband við 2g kerfi Vodafone.
Mig minnir einnig að Nova og Síminn nota mismunandi 3g kerfi, Nova er að keyra á hærri tíðni (held ég) og það ætti því að vera 'hraðara" en á móti dregur það styttra en kerfi Símans sem er að lægrí tíðni og dregur því lengra.
http://www.siminn.is/um-simann/frettase ... item57086/" onclick="window.open(this.href);return false;
En svo þegar ég skoða PFS að þá er Nova líka með leyfi fyrir 900mhz "3g" kerfi en það er spurning hvernig það er nýtt og allt það.
Enda hefur það alltaf verið þannig ef mig minnir rétt, Nova notar svo 2g kerfi Vodafone.
Það sem hefur alltaf verið vandamál fyrir Nova er að símar eru 'tregir' að flakka á milli 3g kerfi Nova og 2g kerfi Vodafone, lendi af og til í því að síminni minn er að slást við að tengjast inn á 3g kerfi Nova þegar það er lélegt samband við það en gott samband við 2g kerfi Vodafone.
Mig minnir einnig að Nova og Síminn nota mismunandi 3g kerfi, Nova er að keyra á hærri tíðni (held ég) og það ætti því að vera 'hraðara" en á móti dregur það styttra en kerfi Símans sem er að lægrí tíðni og dregur því lengra.
http://www.siminn.is/um-simann/frettase ... item57086/" onclick="window.open(this.href);return false;
En svo þegar ég skoða PFS að þá er Nova líka með leyfi fyrir 900mhz "3g" kerfi en það er spurning hvernig það er nýtt og allt það.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
[quote="KermitTheFrog"
Þeir eru reyndar farnir að bjóða 500MB á 490 kr.[/quote]
Var að tékka og þetta er rétt hjá þér, þessi leið var ekki í boði fyrir þremur vikum þegar ég keypti 1GB hjá þeim.
Þeir eru reyndar farnir að bjóða 500MB á 490 kr.[/quote]
Var að tékka og þetta er rétt hjá þér, þessi leið var ekki í boði fyrir þremur vikum þegar ég keypti 1GB hjá þeim.
-
Höfundur - Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Mæli með þessu appi fyrir fólk til að sjá hversu oft og lengi í senn síminn er á 2G/3G. Væri gaman að sjá ef þið allir settuð þetta app upp, leyfðuð því að malla í 1-2 sólarhringa og postuðuð svo mynd hingað inn ásamt því hvar þið eruð búsettir og hvar þið eruð með farsímaþjónustu. Hægt að kveikja á "graph" í stillingunum.
Hérna er mín mynd. Ég er hjá Nova, bý í Grafarvoginum en er mest búinn að vera uppi í HR (hjá Nauthólsvík).
Hérna er mín mynd. Ég er hjá Nova, bý í Grafarvoginum en er mest búinn að vera uppi í HR (hjá Nauthólsvík).
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 993
- Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: 3G samband hjá Nova - Umræðuþráður
Af hverju slökkvið þið ekki á 2G / EDGE? Ég hef aldrei séð neinn tilgang með því eftir að 3G / HSPA kom út.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m