Hefur einhver hérna reynslu af heyrnatólum sem henta vel til útivistar og líkamsræktar þ.e þola raka og svita þar sem ég hef náð að skemma öll heyrnatól sem ég hef átt vegna þess að þau endast ekki lengi í svitabaði
Getið þið mælt með einhverjum sérstökum sem búa yfir endingu og góðum hljómgæðum. Þá er ég að tala um svona in ear unit eða sambærilegt sem hentar við hlaup og annað.
Vona að það sé í lagi að pósta þessu á koníakið, ég fann allavega ekki umræðuborð fyrir þetta.
Ég er búinn að nota eldri týpuna af þessum http://pfaff.is/Vorur/4456-cx-300-ii.aspx" onclick="window.open(this.href);return false; í ræktinni og hlaupum í 5 ár eflaust. Sviti og chalk sem fer á þau reglulega og þau svínvirka og svo er fínn hljómur í þeim.
SolidFeather skrifaði:Ég er búinn að nota eldri týpuna af þessum http://pfaff.is/Vorur/4456-cx-300-ii.aspx" onclick="window.open(this.href);return false; í ræktinni og hlaupum í 5 ár eflaust. Sviti og chalk sem fer á þau reglulega og þau svínvirka og svo er fínn hljómur í þeim.
Ég á akkurat þessi, virka alveg suddalega vel, en bara leiðinlegt að ég kem þeim ekkert hærra en maxið
Ég er búin með 2x cx-300 (eldri týpan af þeim sem var póstað hér að ofan), hljómuðu frábærlega en þau voru ónýt eftir rúman mánuð í báðum tilfellum sem mér þótti grátlegt þar sem þau hljómuðu svo vel og kostuðu smá aur.
Ég átti CX-300 mjög lengi og notaði þau mikið (daglega í útivinnu 2 sumur o.fl.). Var ekkert að passa of vel uppá þau en þau klikkuðu aldrei. Helsti gallinn við þau er hvað þau eru lítil enda týndi ég mínum alltof fljótt.
Fyrst hann spurði um in-ear headphones í byrjun langar mig að benda á að SPORT serían hjá sennheiser/adidas inniheldur fleiri valmöguleika en höfuðspöngina. Hérna eru tildæmis "in-ear" úr þeirri seríu. Líka til önnur svipuð apple heyrnatólunum og svo geturu fengið "i" útgáfur af þessu fyrir örlítinn auka aur sem bjóða upp á góða "samvinnu" við Ipod, Iphone o.s.frv.+
Á ekki svona sjálfur en hef fulla trú á þessu og er að skoða að fá mér svona, annars mæli ég með því að þú fáir þér ekkert annað en sennheiser! Besta performance/price ratio sem ég veit um hjá þeim.
CM 690 II Adv | i5 2500K @ 3,3 Ghz | GA-Z68XP-UD4 | GTX 560 Ti Twin Frozr II | 2x4 GB Corsair Vengeance | Corsair HX750 |128GB Samsung 830 SSD | 500GB HDD - CurlyWurly//HB
Í báðum tilvikum dó hljóðið í öðrum hátalaranum en þá var ég að hlaupa, þau höfðu dottið úr og sviti lekið inn í eyrað.
Ég er samt rosalega hrifin af Sennheiser og það kemur sterklega til greina að fá mér svoleiðis aftur, ætli það verði ekki sport serían þar sem þessir buds hafa ekki reynst mér vel.