Sælir vaktarar
Nú er ég að higgja á nám í haust og stendur valið milli Tölvunarfræði og Rafmagns- og tölvuverkfræði.
Einhver sem hefur reynslu af öðru hvoru? Öll ummæli vel þegin
Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
er á fyrsta ári í rafmagns og tölvuverkfræði og það er alveg það sem ég vildi gera. Fyrsta árið hjá þessum brautum er nánast eins, fyrir utan að rafmagnsverkfræði(þ.e. rafmagns og tölvuverkfræði er alltaf kallað bara rafmagnsverkfræði) tekur meiri eðlisfræði og sérgreinar tengdar rafrásum. Það skiptir litlu fyrstu önnina hvort þú skráir þig í og ekkert mál að skipta svo snemma. Tölvunarfræðin er einmitt meiri forritun og meira "digital" á meðan rafmagnsverkfræðin er "analog", lærir hluti eins og merkjafræði og greiningu rása og þannig
-
- /dev/null
- Póstar: 1403
- Skráði sig: Þri 09. Nóv 2010 14:23
- Staðsetning: 1101101
- Staða: Ótengdur
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Það sem Domnix segir..
Stærðfræðin er meiri þ.e. laggt meira upp úr henni í verkfræðinni heldur en í tölvunarfræðinni.
Getur skoðað áfangana fyrir verkfræðina hér og fyrir tölvunarfræðina hér.
Stærðfræðin er meiri þ.e. laggt meira upp úr henni í verkfræðinni heldur en í tölvunarfræðinni.
Getur skoðað áfangana fyrir verkfræðina hér og fyrir tölvunarfræðina hér.
Asrock Z68 Pro3-M | i7 2600k | Intel 520 Series 120 GB | GTX 560-Ti | 8GB 1866Mhz | Home made Mahogany case |Custom Water Cooling
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846
Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=47846
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Mæli með Tölvunarfræði í HR, er á öðru ári. Mun meira "hands on" nám og minni stærðfræði heldur en í HÍ.
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Ok takk fyrir innleggin. Væri vel til í tölvunarfræðina í HR, en penginga lega séð á ég lítin möguleika á því. Er búin með kennarann en launin í þeirri starfstétt eru algjört prumb og ætla ég því að róa á önnur mið. Stærðfræðin hefur aldrei verið vanda mál þannig að það skiptir engu máli. Held samt að tölvunarfræðin eigi meira við mig. Hef líka heyrt að maður vaði í atvinnutilboðum við lok náms.
Nú er bara að velja!!!
Nú er bara að velja!!!
-
- Besserwisser
- Póstar: 3697
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Ef magnið af stærðfræði er að hafa áhrif á hvort námið þú velur, þá myndi ég nú segja að þú sért á rangri leið. Annars var nú ekki það mikil stærðfræði í mínu tölvunarfræðinámi, mér þætti ótrúlegt að það hefði breyst mikið. Mig rámar í að það hafi verið 5 eða 6 stærðfræði kúrsar í heildina, meira og minna allt rökfræðitengt hvort eð er.intenz skrifaði:Mæli með Tölvunarfræði í HR, er á öðru ári. Mun meira "hands on" nám og minni stærðfræði heldur en í HÍ.
Re: Tölvunarfræði eða Rafmagns og Tölvuverkfræði?
Eg klaradi BS i HI i rafmagnsverkfraedi og thad var alveg fint
Mér finnst alveg smá munur á þessum fögum, bæði í námi og svo eftir nám svo þar held ég að áhugi þinn verði að ráða
Ég klára MSc í sumar og það er alveg fullt af atvinnumöguleikum fyrir rafmagnsverkfræðinga og lítur út fyrir að það sé ekkert að fara breytast