Kindle Fire til Íslands

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Staða: Ótengdur

Kindle Fire til Íslands

Póstur af capteinninn »

Var að meta að kaupa Kindle Fire og láta senda frá Bandaríkjunum líklega með express sendingu.

Hefur einhver keypt hana og veit hvað tollur/skattur er nákvæmlega hár á þessum græjum.
Er líka að spá hvað það kostar mikið að express senda þetta hingað.

Græjan kostar um 24 þús án toll og skatts og allt það, ég þarf ekki ábyrgð á græjunni því ég hef í 99% tilvika verið fucked þegar kemur að ábyrgð á hlutum á Íslandi. Hef aldrei fengið neitt úr þeim.
Vill frekar bara senda þetta hingað til mín og borga toll og skatt sjálfur, hef pantað hluti frá Amazon í Bretlandi áður og það var einkar einfalt, verst bara að þeir selja ekki Kindle Fire nema í BNA.
Last edited by capteinninn on Þri 13. Mar 2012 15:24, edited 1 time in total.
Skjámynd

PepsiMaxIsti
Gúrú
Póstar: 589
Skráði sig: Þri 18. Ágú 2009 10:41
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af PepsiMaxIsti »

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... ry_id=4510" onclick="window.open(this.href);return false;

Venjulegur kindle hérna á 30.000, þannig að e´g hugsa að 55 sé ekki langt frá því að vera rétt verð, líka með ábyrgð
Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af tlord »

þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af gardar »

tlord skrifaði:þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Þeir eru líka sennilega að fá þetta á heildsöluverði

Blackbone
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Mán 26. Sep 2011 14:28
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Blackbone »

http://www.smartshop.is/is/vara/kindle-fire-7/4592" onclick="window.open(this.href);return false;

veit ekkert um þessa síðu en þarna er hún allavega ódýrari
Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af tlord »

gardar skrifaði:
tlord skrifaði:þeir eru sennilega að bæta ca 20-25% við verðið. finnst þér að þeir eigi að vinna frítt?
Þeir eru líka sennilega að fá þetta á heildsöluverði
þeir eru væntanlega með díl hjá einhverri póstverslun, ætli það sé nema 5 - 10%, svo er líka 2 ára ábirgð í gegnum þá

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af capteinninn »

Breytti postinum mínum þegar ég áttaði mig á því hvað ég hugsaði ekki þegar ég gerði postinn. Buy.is og fleiri vefverslanir standa sig vel að bjóða upp á þessa þjónustu og finnst mér þeir alveg klárlega hafa rétt á því að leggja á vörur.

Margir nenna ekki að standa í veseninu að senda þetta hingað og finnst mér frábært að þeir séu að hjálpa fólki að fá vörur frá útlöndum á betra verði.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Daz »

25.5% vsk og svo tollmeðferðargjald (500 kr eða 3000, fer eftir heildarverðinu). Muna bara að virðisaukinn er á innkaupaverðinu (verð + flutningur) ekki bara á verðinu sem þú borgar söluaðila.
Skjámynd

rattlehead
Ofur-Nörd
Póstar: 246
Skráði sig: Fös 02. Des 2011 11:01
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af rattlehead »

Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Daz »

rattlehead skrifaði:Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Það er ekki hægt að ná í kvikmyndatengt efni í gegnum Amazon storeið í Kindle Fire, það er alveg örugglega hægt að downloada öllu sem þú hefur sjálfur keypt og afritað á tölvutækt form.

Er það nokkuð frekar hægt í gegnum Itunes? Eða nokkra aðra online "löglega" media verslun á netinu (Bandaríska í það minnsta).
Skjámynd

rattlehead
Ofur-Nörd
Póstar: 246
Skráði sig: Fös 02. Des 2011 11:01
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af rattlehead »

Daz skrifaði:
rattlehead skrifaði:Hef heyrt að ekki er hægt að ná í kvikmyndatengt efni á Íslandi gegnum Kindle Fire. Væntanlega út á höfundarrétti.
Það er ekki hægt að ná í kvikmyndatengt efni í gegnum Amazon storeið í Kindle Fire, það er alveg örugglega hægt að downloada öllu sem þú hefur sjálfur keypt og afritað á tölvutækt form.

Er það nokkuð frekar hægt í gegnum Itunes? Eða nokkra aðra online "löglega" media verslun á netinu (Bandaríska í það minnsta).
Það er reyndar rétt hjá þér.
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af gardar »

Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Daz »

gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.
Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1388
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af kubbur »

pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Kubbur.Digital
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Daz »

kubbur skrifaði:pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Amazon sendir ekki Kindle Fire til Íslands.
Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af gardar »

Daz skrifaði:
gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.

Já ég átti við þetta varðandi umræðuna hér að ofan varðandi rafrænar vörur fyrir kindle...
Það er kannski hálf kjánalegt að rukka vsk af rafrænum vörum ef það er svo ekki hægt að kaupa rafrænar vörur frá íslenskri ip

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af capteinninn »

kubbur skrifaði:pff, keypti kindle 4 nt beint frá amazon, kostaði 25 þús komið í hendurnar á mér, tók 2 daga
Hvað borgaðirðu í Express shipping sem þú væntanlega notaðir? Fékkstu frá Amazon.com eða Amazon.co.uk?

Þannig að þetta kostar um 35-40 þús um það bil?

Virkar ekki alveg að kaupa bækur og þannig? þarf ekki að downloada þáttum og bíómyndum í þetta
Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3697
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kindle Fire til Íslands

Póstur af Daz »

gardar skrifaði:
Daz skrifaði:
gardar skrifaði:Voru amazon ekki byrjaðir að rukka íslenskan vsk ofan á vörur hjá sér?
Það var stefnan að þeir leggðu VSK á vörur á rafrænu formi. Ekki Kindle.

Já ég átti við þetta varðandi umræðuna hér að ofan varðandi rafrænar vörur fyrir kindle...
Það er kannski hálf kjánalegt að rukka vsk af rafrænum vörum ef það er svo ekki hægt að kaupa rafrænar vörur frá íslenskri ip
(Vildi bara hafa þetta skýrt, svona fyrir þá sem vita ekkert um málið).

Það er eitthvað við þessa mismunandi miðla, kvikmyndir og bækur. Amazon ætti að leggja vsk á rafbækur sem þeir sannarlega selja Íslendingum. Hitt er síðan varið af allskonar hagsmunarsamtökum, þar sem íslenska ríkið kemst sko ekki með tærnar þar sem þeir hafa hælana í gróða og gjaldahugsjón.
Svara