Flakkari með upptökumöguleika?

Svara

Höfundur
hundur
Nörd
Póstar: 112
Skráði sig: Sun 30. Maí 2004 01:31
Staða: Ótengdur

Flakkari með upptökumöguleika?

Póstur af hundur »

Sælir kæru vaktarar. Gamla liðið var loksins að uppfæra sjónvarpið yfir í flatskjá og því fannst þeim (lesist: mér) tilvalið að reyna að tengja einhvern media server við þetta. En þau vilja að hægt sé að taka upp sjónvarpsefni og ég vil að það sé hægt að spila flestallar gerðir videofæla og jafnvel streyma í aðrar tölvur heimilisins.

Er til einhver flakkari sem gerir þetta? Og hvernig er með media server tölvur, er hægt að sleppa ódýrt með þær?

Við erum með Amino 140 afruglara frá Vodafone ef það skiptir einhverju máli.

Skari
spjallið.is
Póstar: 463
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Staða: Ótengdur

Re: Flakkari með upptökumöguleika?

Póstur af Skari »

Ef ég væri að kaupa mér meda server í dag þá myndi ég kaupa : http://buy.is/product.php?id_product=1812" onclick="window.open(this.href);return false; (Western digital WD TV Live).. lítill, nettur og spilar allt saman. Hef því miður svo ekkert kynnt mér það að taka upp, seinast þegar ég tók upp eitthvað var á vhs.

Major Bummer
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 21:58
Staðsetning: ísland
Staða: Ótengdur

Re: Flakkari með upptökumöguleika?

Póstur af Major Bummer »

Hef verið að skoða þetta líka. Upptökuflakkarar virðast vera á leiðinni út. Tölvutek eru nýlega hættir með Argosy HV-359T og sá eini sem ég hef fundið hérlendis er ACryan playon dvr, http://tolvulistinn.is/vara/23279" onclick="window.open(this.href);return false; en er full dýr.

Fann þessa úti:

http://www.amazon.com/Noah-Company-Medi ... 53&sr=8-11" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.mvixusa.com/shop/index.php?d ... ct_id=1610" onclick="window.open(this.href);return false;

lítið um reviews um flakkara og review á síðum búða eru oftast neikvæð, sennilega nennir fólk ekki að reviewa ef þetta virkar.
Sjálfsagt væri best að vera með htpc en er að skoða þetta fyrir afa sem er ekki mjög tæknilega sinnaður.

endilega láttu vita hverju þú endar á.
Svara