Steam dílar eiga til að detta inn aftur á lokadegi, svo það er alveg séns. Ég keypti Orcs must die, en ekki Portal 2 (Meðal annars af því að hann á eftir að komaf aftur á þessu verði, ef ekki eftir jólin, þá næsta sumar).
Jæja náði að grípa GTA:3, Liberty City og San Andreas, ætlaði að kaupa complete pack (átti GTA:4 + stories) en þá sá ég að maður fær
ekki auka eintök til að gefa frá sér, þar sem ég á GTA 1 og 2 á PS þá verslaði ég bara leikina sem mig vantaði sér og sparaði $4
ég keypti ekkert þarna, sá ekkert sem ég hafði áhuga á, annars er ég sáttur atm með Eve, nýtt expansion að koma á þriðjud. og svo er það náttla Battlefield 3
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Bjóst nú við því samt að sjá eitthvað meira til sölu á Black Friday sjálfum Núna er bara að vona að Oddbox detti inn aftur
fyrir útsölulok
Ég keypti Overlord pakkann einhverntíman á útsölu, fínn leikur til að dunda sér í, en ekki nógu góður til að ég hefði það af að klára hann (hvað þá að ég hefði af að spila nr 2). En fyrir 5 $ þá er þetta no brainer.
Ég er að spá í The Witcher og Splinter Cell Chaos Theory (SC serían er öll á 75% tilboði).
MMMM gamlir leikir. Afhverju uppfæra tölvuna þegar það er til svona mikið af hlutum sem virka enþá fínt?
Jæja 55min eftir og ég veit hreinlega ekki hvort maður eigi að fá sér dead space 1 og 2 hmmm
Ætli maður splæsi í Oddbox eða skoði hvað gerist í Christmas sale'inu hmmm...
Fractal Design: Define S - Aerocool Strike-X 1100W - ASRock 990FX Extreme9 AM3+ ATX - FX-9590 Vishera w/BeQuiet Silent Loop 360mm - G.Skill 16GB (2x8GB) Sniper 1866MHz DDR3 - Sapphire Fury X - 480GB SSD OS + 2TB DATA Kísildalur.is þar sem nördin versla
Dead space kemur örugglega aftur á útsölu. Ég var einmitt að stoppa mig af, ekki kaupa meira fyrr en ég klára eitthvað af þessu sem ég á nú þegar (sem var t.d. ástæðan fyrir að ég tók ekki Civ V, sem var á gjafverði, ég er bara rétt byrjaður í Civ 4, bara búinn með ca 40 hours played )