*Edit: Var búinn að gera slatta svar en fattaði síðan að þú ert að tala um Almeru en ekki Primeru eins og ég skrifaði um. Get ekki hjálpað með það
En hvaða bita ertu annars að tala um? Bitinn sem heldur mótornum uppi boltast á miðjan frambritann og fer undir mótorinn og hinn endinn boltast í body-ið undir mælaborðinu.
Frambitinn er sá sem vatnskassinn og ljósin festast á og hann er skiptur í tvennt, efri og neðri bitann.
Hvað er það nákvæmlega sem þig vantar? Ef þetta er vélarbitinn er það svona hálftíma verk að skipta um hann en ef þetta er frambiti þá er það bara mikið maus að skipta um!