Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Upphafið: Nova kvartaði til Samkeppniseftirlitsins gruns um markaðsmisnotkunar
Næsta skref: Framkvæmd var húsleit í höfuðstöðvum Símans.
Það sem fannst við húsleit: listar með upplýsingum um mörg þúsund viðskiptavini annarra fjarskiptafyrirtækja.
Tilgangur þessarar upplýsingaöflunar: Að ná til sín mikilvægum viðskiptavinum frá öðrum símafyrirtækjum.
Hvernig fór Síminn að því að ná þessum upplýsingum: Síminn notaði samtengiupplýsingar um aðra viðskiptavini en sína og samkeyrðu þær við aðrar skrár, þannig gátu þeir séð allt um notkun viðskipta vina samkeppnisaðilans, Njósnir?
Hvað sagði forstjóri Símans um málið: Við erum 104 ára gamalt fyrirtæki og leggjum mikla áherslu á að fara eftir lögum og reglum, starfsfólki okkar er brugðið við þessar ásakanir.
Hvað segir Póst og Fjarskiptastofnun: Málatilbúnaður Símans er veikur og fjarstæðukenndur.
Hvað segir Persónuvernd: Síminn braut gegn ákvæðum laga nr. 77/200
Hvað verður gert: Persónuvernd hefur kært Símann til lögreglu.
Heimild, visir.is

- Bara að hanga
- Póstar: 1519
- Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
- Staðsetning: Á sporbaug sólar
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
hvað eru þeir búnir að vera kærðir oft núna ?
CPU: Intel i9 9900K | MB: Asus ROG Maximus XI Hero (Z390) | GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair Carbide 400c | PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Corsair Vengeance RGB Pro DDR4 3200mhz 32gb |Storage: 1x Samsung 1tb 970 Evo Plus SSD, 3x Samsung 500gb 970 Evo Plus SSD RAID-0 | OS: Windows 10 Enterprise E5 64bit
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Svo segja þeir núna að þeim finnist þetta voða leiðinlegt og biðjast afsökunar. Mér finnst þetta alveg sanna að einkafyrirtæki sé ekki treystandi fyrir grunnnetinu. Stór mistök að hafa látið það fylgja með í sölunni á símanum, það hefði átt að halda rekstri grunnnetsins hjá ríkinu.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Einu sinni. Þetta er fyrsta kæran.benzmann skrifaði:hvað eru þeir búnir að vera kærðir oft núna ?
Öll málin sem hafa komið upp eru allt þetta mál. Fyrst var það Samkeppniseftirlitið, svo Persónuvernd og núna þetta.
Bara mismunandi stofnanir að taka fyrir sama málið.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Já og ekki með neina samkeppni í 90 ár.Hvað sagði forstjóri Símans um málið: Við erum 104 ára gamalt fyrirtæki og leggjum mikla áherslu á að fara eftir lögum og reglum, starfsfólki okkar er brugðið við þessar ásakanir.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Þeir fengu sekt upp á 50M í fyrra líka. --> http://www.pressan.is/Vidskipti/Lesavid ... arleg-brot" onclick="window.open(this.href);return false;
Mistök að eiga einhver viðskipti við þetta fyrirtæki.
Mistök að eiga einhver viðskipti við þetta fyrirtæki.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Farinn frá símanum, spá í að prófa Hringdu.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Það er sama málið.IvarMr skrifaði:Þeir fengu sekt upp á 50M í fyrra líka. --> http://www.pressan.is/Vidskipti/Lesavid ... arleg-brot" onclick="window.open(this.href);return false;
Mistök að eiga einhver viðskipti við þetta fyrirtæki.
Fjölmiðlar á Íslandi virðast aldrei lesa þessa úrskurði, bara skippa beint í niðurstöðuna.
Þetta er allt sama málið. Síminn nýtir CDR gögn og virðist samkeyra þau við já.is og þannig búa til úthringilista. Það ætlar engin að segja mér að símafélögin öll stundi þetta ekki.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Hringdu notar kerfi Símansdaanielin skrifaði:Farinn frá símanum, spá í að prófa Hringdu.

Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Ég vissi af því, en samt helmingi ódýrara en það sem ég er að borga fyrir núna..wicket skrifaði:Hringdu notar kerfi Símansdaanielin skrifaði:Farinn frá símanum, spá í að prófa Hringdu.Bara FYI.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Lög 99/2001 banna samtengingu gagna/gagnagrunna óskyldra aðila til vinnslu persónuupplýsinga án leyfis Persónuverndar.
Persónuvernd gaf ekki leyfi = kæra, sérstaklega vegna þess að upplýsingarnar voru hagnýttar í markaðssókn fyrirtækisins.
Nova, Vodafone o.f.l. geta svo kært Símann, höfðað skaðabótamál vegna stulds á gögnum þeirra og að þessar ólöglegu upplýsingar hafi verið notaðar til að skaða þau fyrirtæki á markaði.
Fólk getur kært Símann og í raun ætti Persónuvernd að senda því fólki sem er á listanum tilkynningu um að gögnum um það hafi verið unnin í leyfisleysi.
Þetta verður spennandi...

Nova,Vodafone og Tal munu ekki þora því. Einfaldlega vegna þess að það hafa allir gert þetta.rapport skrifaði:Lög 99/2001 banna samtengingu gagna/gagnagrunna óskyldra aðila til vinnslu persónuupplýsinga án leyfis Persónuverndar.
Persónuvernd gaf ekki leyfi = kæra, sérstaklega vegna þess að upplýsingarnar voru hagnýttar í markaðssókn fyrirtækisins.
Nova, Vodafone o.f.l. geta svo kært Símann, höfðað skaðabótamál vegna stulds á gögnum þeirra og að þessar ólöglegu upplýsingar hafi verið notaðar til að skaða þau fyrirtæki á markaði.
Fólk getur kært Símann og í raun ætti Persónuvernd að senda því fólki sem er á listanum tilkynningu um að gögnum um það hafi verið unnin í leyfisleysi.
Þetta verður spennandi...
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Það hafa ekki allir sama aðgang að gögnum Mílu eins og Síminn...wicket skrifaði:Nova,Vodafone og Tal munu ekki þora því. Einfaldlega vegna þess að það hafa allir gert þetta.rapport skrifaði:Lög 99/2001 banna samtengingu gagna/gagnagrunna óskyldra aðila til vinnslu persónuupplýsinga án leyfis Persónuverndar.
Persónuvernd gaf ekki leyfi = kæra, sérstaklega vegna þess að upplýsingarnar voru hagnýttar í markaðssókn fyrirtækisins.
Nova, Vodafone o.f.l. geta svo kært Símann, höfðað skaðabótamál vegna stulds á gögnum þeirra og að þessar ólöglegu upplýsingar hafi verið notaðar til að skaða þau fyrirtæki á markaði.
Fólk getur kært Símann og í raun ætti Persónuvernd að senda því fólki sem er á listanum tilkynningu um að gögnum um það hafi verið unnin í leyfisleysi.
Þetta verður spennandi...
Hvernig ættu annars Vodafone og Nóva að ná gögnum frá Símanum?
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Afhverju ertu að blanda Mílu inn í þetta ?? Míla á ekkert GSM kerfi og kemur ekki nálægt þessu á nokkurn hátt.rapport skrifaði:Það hafa ekki allir sama aðgang að gögnum Mílu eins og Síminn...wicket skrifaði:Nova,Vodafone og Tal munu ekki þora því. Einfaldlega vegna þess að það hafa allir gert þetta.rapport skrifaði:Lög 99/2001 banna samtengingu gagna/gagnagrunna óskyldra aðila til vinnslu persónuupplýsinga án leyfis Persónuverndar.
Persónuvernd gaf ekki leyfi = kæra, sérstaklega vegna þess að upplýsingarnar voru hagnýttar í markaðssókn fyrirtækisins.
Nova, Vodafone o.f.l. geta svo kært Símann, höfðað skaðabótamál vegna stulds á gögnum þeirra og að þessar ólöglegu upplýsingar hafi verið notaðar til að skaða þau fyrirtæki á markaði.
Fólk getur kært Símann og í raun ætti Persónuvernd að senda því fólki sem er á listanum tilkynningu um að gögnum um það hafi verið unnin í leyfisleysi.
Þetta verður spennandi...
Hvernig ættu annars Vodafone og Nóva að ná gögnum frá Símanum?
Síminn nýtti CDR gögn og hringdi í þá sem eru með viðskipti sín annarsstaðar en hringja mest inn í kerfi Símans. Þegar viðkomandi hringir í kerfi Símans verða þessi CDR gögn til.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
er það þessvegna sem þeir hringdu í mig fyrir svona 2-3 mánuðum?
skiptir yfir í nova fyrir hálfu ári, fékk síðan símhringingu fyrir 2-3 mánuðum frá símanum, "viltu heyra um nýja þjónustu sem heitir Ring?" og eitthvað blah.
Samt er ég á bannlista þjóðskrár og þannig! Viss um að númerið mitt hefur verið á einhverjum gömlum lista hjá þeim sem að þeir notuðu...
skiptir yfir í nova fyrir hálfu ári, fékk síðan símhringingu fyrir 2-3 mánuðum frá símanum, "viltu heyra um nýja þjónustu sem heitir Ring?" og eitthvað blah.
Samt er ég á bannlista þjóðskrár og þannig! Viss um að númerið mitt hefur verið á einhverjum gömlum lista hjá þeim sem að þeir notuðu...
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
En ertu á bannlista já.is ? Sitthvor listinn.dodzy skrifaði:er það þessvegna sem þeir hringdu í mig fyrir svona 2-3 mánuðum?
skiptir yfir í nova fyrir hálfu ári, fékk síðan símhringingu fyrir 2-3 mánuðum frá símanum, "viltu heyra um nýja þjónustu sem heitir Ring?" og eitthvað blah.
Samt er ég á bannlista þjóðskrár og þannig! Viss um að númerið mitt hefur verið á einhverjum gömlum lista hjá þeim sem að þeir notuðu...
Þeir gætu hafa búið til lista þaðan.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Veit ekki hversu oft Síminn hringir í mig að reyna að fá mig yfir til þeirra. Þetta var orðið virkilega pirrandi á tímabili, var oft að fá símhringingu á ca. 3-4 mánaða fresti þar sem þeir voru að reyna að fá mig til sín. Þetta hefur hinsvegar minnkað núna finnst mér, hef allavega ekki heyrt í þeim lengi.
Annars er ég á bannlista hjá ja.is, það virðist ekki breyta neinu varðandi þessi sölu símtöl sem maður fær. Ekki bara Síminn sem hunsar þennan bannlista.
Annars er ég á bannlista hjá ja.is, það virðist ekki breyta neinu varðandi þessi sölu símtöl sem maður fær. Ekki bara Síminn sem hunsar þennan bannlista.
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Það er nú ekki bara síminn sem hringir í viðskiptavini hjá öðrum símafélögum. Ég er hjá símanum og er búinn að vera fá símtöl frá Tal á 2-3 mánaða fresti í bráðum ár ... síðasta var í síðustu viku.
Sá sami listi hefur sennilega gengið milli dótturfélaga því var hringt á mánaðar fresti að reyna selja mér öryggiskerfi en hafa hætt því sem betur fer.

- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn kærður til lögreglu fyrir njósnir.
Cikster skrifaði:Það er nú ekki bara síminn sem hringir í viðskiptavini hjá öðrum símafélögum. Ég er hjá símanum og er búinn að vera fá símtöl frá Tal á 2-3 mánaða fresti í bráðum ár ... síðasta var í síðustu viku.
Sá sami listi hefur sennilega gengið milli dótturfélaga því var hringt á mánaðar fresti að reyna selja mér öryggiskerfi en hafa hætt því sem betur fer.
Fékk nánast samdægurs símtal frá Símanum þegar ég fór yfir í Nova og reynt var að múta mér með 500kr inneign í 6mánuði og eitthvað internet dót.
Held ég hafi fengið svipuð símtöl frá flestum ef ekki öllum fyrirtækjunum.
massabon.is