hvernig ætti ég að snúa viftunni

Svara

Höfundur
biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

hvernig ætti ég að snúa viftunni

Póstur af biturk »

hvort er betra að láta viftuna blása inn eða út....ég er bara með eina 80mm viftu (ekki í boði að hafa fleiri) og mig langar að ná hraðanum á örgjörvaviftunni niður svo það verði minni hávaði, hún fer í hvínandi botn þegar ég loka kassanum :x
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

JohnnyX
/dev/null
Póstar: 1442
Skráði sig: Sun 04. Jan 2009 18:25
Staða: Ótengdur

Re: hvernig ætti ég að snúa viftunni

Póstur af JohnnyX »

getur stýrt í BIOS (smart fan minnir mig), hvenær viftan fer á fullt (t.d. 50°C). Gæti það leyst þetta hjá þér eða ert búinn að prófa það?

SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Staða: Ótengdur

Re: hvernig ætti ég að snúa viftunni

Póstur af SteiniP »

JohnnyX skrifaði:getur stýrt í BIOS (smart fan minnir mig), hvenær viftan fer á fullt (t.d. 50°C). Gæti það leyst þetta hjá þér eða ert búinn að prófa það?
Þetta

annars verðurðu bara að prófa að snúa viftunni á báða vegu og mæla hitann
ef þetta er lítill lokaður kassi þá held ég að það sé betra að snúa henni út en ef hann er stór og með mikið af loftgötum þá myndi ég snúa henni inn.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: hvernig ætti ég að snúa viftunni

Póstur af rapport »

biturk skrifaði:hvort er betra að láta viftuna blása inn eða út....ég er bara með eina 80mm viftu (ekki í boði að hafa fleiri) og mig langar að ná hraðanum á örgjörvaviftunni niður svo það verði minni hávaði, hún fer í hvínandi botn þegar ég loka kassanum :x
Spurning um að fá sér nýtt kælikrem á örgjörvann og jafnvel nýja örgjörvakælingu...

En mig minnir að ATX staðallinn miði við að draga loft inn að framan og blása því út að aftan
Svara