Internettenging

Svara
Skjámynd

Höfundur
bizz
Nörd
Póstar: 134
Skráði sig: Fim 07. Ágú 2003 23:19
Staða: Ótengdur

Internettenging

Póstur af bizz »

Góðann daginn!

Nú fer ég hugsanlega að flytja og þá fer maður að pæla í hvaða nettengingu maður á að vera með.
Ég er núna með breiðbandstengingu sem ég er bara ánægður með en breiðbandið er ekki til staðar í nýju íbúðinni.
Ég nota ekki heimasíma og hef ekki hugsað mér að gera það!
Þar með er ADSL úr sögunni í bili en ég var að velta fyrir mér hvað væri þá í boði fyrir mig.
Hefur einhver reynslu af Emax eða einhverju álíka??
Langar að heyra einhverjar rosalegar reynslusögur sko!!! :lol:
Skjámynd

Nemesis
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Nemesis »

Af hverju hefuru ekki hugsað þér að nota ADSL, er ekki símalína í húsið?

Fox
Staða: Ótengdur

Póstur af Fox »

ADSL er besta lausnin.
Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Staða: Ótengdur

Re: Internettenging

Póstur af MezzUp »

bizz skrifaði:Ég nota ekki heimasíma og hef ekki hugsað mér að gera það!
vill ekki heimasíma og getur þar með ekki notað ADSL

Fox
Staða: Ótengdur

Póstur af Fox »

Afhverju viltu ekki heimasíma?
Hann þarf ekki að vera skráður, og þú þarft ekki símtæki.
Skjámynd

Höfundur
bizz
Nörd
Póstar: 134
Skráði sig: Fim 07. Ágú 2003 23:19
Staða: Ótengdur

Póstur af bizz »

já ég veit..en það sem símafyrirtækin gleyma alltaf að telja með þegar þeir eru að bjóða lægstu verðin á tengingum er þetta helv. línugjald sem er held ég 1300 kall :evil:
þannig að mér bara finnst óþarfi að henda þessum pening þegar það er hægt að fá annað ódýrara!!
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

Af hverju ætlarðu ekki að vera með heimasíma?
Finnst þér svona ódýrt að tala í GSM?
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Pandemic »

GuðjónR sló botnin úr flöskuni með þessum brandara
Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Póstur af kemiztry »

Kannski eru flestir/allir vinir hans með GSM og þar að leiðandi er ódýrara að hringja úr GSM -> GSM heldur en heimasími -> GSM. Til hvers að eyða þá pening í að vera með heimasíma? :) Ég man ekki eftir því þegar ég hringdi seinast í heimasíma hjá einhverjum :P

En annars er ADSL besti kosturinn í dag fyrir utan leigulínu/ljósleiðara sem er talsvert dýrara en allt annað. Annars hef ég heyrt að örbylgju dæmið sé ágætt fyrir utan svartíma sem gerir það frekar leiðinlegt að spila netleiki.
kemiztry
Skjámynd

Höfundur
bizz
Nörd
Póstar: 134
Skráði sig: Fim 07. Ágú 2003 23:19
Staða: Ótengdur

Póstur af bizz »

Ok kannski maður skoði hvað þeir eru að bjóða með þessu þráðlausa.
Annars veit ég líka að ADSL-ið er langbest, því ég hef verið að setja þetta mikið upp.
Varðandi heimasímann, þá borgar vinnan fyrir mig GSM-inn og svo eins og kemiztry sagði, þá hringi ég aldrei í heimasíma.
Hef verið með solleis og finnst það bara ekki borga sig.
Var bara í smá pælingum sko því að mér finnst breiðbandstengingin nokkuð góð miðað við t.d. orkuveitutenginguna.

Bjössi
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Lau 15. Nóv 2003 00:53
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

...

Póstur af Bjössi »

Fáðu þér bara svona rafmagnstengingu í gegnum OR :)
y0
Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Staða: Ótengdur

Póstur af Voffinn »

Já, og þurfa að slökkva öll ljósin í íbúðinni þegar þú ætlar að spila? Held ekki... :)
Voffinn has left the building..

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Það eru nú ekkert allir sem spila Counter-Strike, sumir vilja bara komast á netið.
Svara