Ég er að setja saman eina tölvu og er meðal annars með viftustýringu sem heitir Explorer FX-3 og er hún víst frá EZ-Cool (sjá hér) en ég get engan vegin fundið neinar almennilegar upplýsingar um unitið á netinu Þetta er í fyrsta sinn sem ég nota viftustýringu svo ég er ekki alveg nógu klár á uppsetningunni (þó hún sé líklega mjög einföld) og er það þá aðallega varðandi snúrurnar og hvar ég á að tengja þær ásamt skynjurunum Ég er líka með móðurborð sem hefur enginn plögg fyrir þær snúrur sem eiga líklega að tengjast við það svo ég þarf örugglega að redda mér öðru móðurborði (er sko með MS-7046 sem var áður í Medion tölvu ), það þarf þá helst að vera með socket 775 og styðja bara DDR minni svo ég geti endurnýtt örgjörvann og minnið en svoleiðis hef ég ekki fundið í tölvubúðunum þannig að ég þarf þá væntanlega eitt svoleiðis notað. Einhver sem lumar á einu?
Viðhengi
Fara þessar snúrur í móðurborðið?
8.jpg (5.7 KiB) Skoðað 266 sinnum
Þetta er viftustýringin sem ég er með
740_big.jpg (40.21 KiB) Skoðað 266 sinnum
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Þekki þessa stýringu ekki neitt en.....
Miðað við að hún er gefin upp 3/4 pinna ættirðu bæði að geta tengt hana við móðurborðið eða í molex tengi úr aflgjafanum og þannig gætirðu haft hana og vifturnar óháðar móðurborðinu.
Tengin eru væntanlega staðlaðar karlar og kerlingar þannig þetta ætti nú bara að komast saman á einn veg
Skynjarana þarftu svo að tengja við hvern hlut ef þú vilt hafa þetta sjálfvirkt.
En ef þér finnst þetta flókið þá ættirðu bara að koma við í dalnum og fá að kíkja á leiðbeiningarnar á einni nýrri
Gigabyte Z390 Aorus Pro | I9 9900K | Corsair Vengeance 32GB | Asus RTX 2080 Ti | Samsung 970 Evo Plus 250 GB | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15