Þar sem E6850 og Q6600 kosta það sama var ég að spá í hvorum er maður að gera betri kaup ?
Einnig ætla ég að fá mér nýtt móðurborð og var að spá í Gigabyte P35-DS3R, er eitthvað betra á svipuðu verði ?
Og að lokum hvaða örgörvakælingu mælið þið með ? Ég hef verið að skoða Zalman CNPS9700 NT og Thermalright Ultra 120.
Ef þú vilt allra bestu loft örgjörva kælinguna er best að þú fáir þér Thermalright Ultra + 2x 120mm viftur til að festa á hana. Seinni viftan ætti að kæla 3-4°gráður í viðbót, verður sjálfur að meta hvort það sé þess virði.
Sjálfur myndi ég taka quad-core örgjörvann, sérstaklega ef þú ætlar að nota þetta í meira en 1-2 ár. Þróunin í átt að fleiri MHz-um hefur hægt á sér á meðan framleiðendur keppast nú um að fjölga kjörnum á kubb, og ég held að leikjaframleiðsla muni endurspegla það. Og jafnvel þó leikir noti bara tvo kjarna í dag kemur skjákortið til með að minnka þennan 25% hraðamun á 2.4ghz Q6600 og 3ghz E6850 alltöluvert nema þú sért með það dýrasta af því dýra.
Q6600 hefur samt komið betur út almennt eftir því sem ég hef heyrt. Annars eru meðal yfirklukk eftirfarandi:
E6850: 4ghz
Q6600: 3.5ghz
Samkvæmt overclock.net
Arkidas skrifaði:Q6600 hefur samt komið betur út almennt eftir því sem ég hef heyrt. Annars eru meðal yfirklukk eftirfarandi: E6850: 4ghz Q6600: 3.5ghz Samkvæmt overclock.net
Q6600: 3.5ghz meðal yfirklukkun kannski hjá top gaurunum með vatnskælingu.