Smá spurningar um framtíðarvélbúnaðarkaupshugleiðingar...

Svara
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Smá spurningar um framtíðarvélbúnaðarkaupshugleiðingar...

Póstur af appel »

Ok, ég er með hundgamla vél heima og er að pæla að fara endurnýja hana. Liggur reyndar ekkert á því, þannig að ég er ekki að pæla í tölvukaupum á næstu vikum. Hinsvegar e.t.v í lok sumars, eða í haust, langar mig að kaupa nýja vél. Vil þó byrja að plana snemma, enda stór ákvörðun! :D

Langt síðan ég hef verið í hardware pælingum og þekki ég ekki mest af þessu dóti, X9100, Extreme PCI3000 pro... allt þvættingur í mínum heila. Nokkrar spurningar:

1. Hvað er málið með þessi heiti á örgjörvum? Getur einhver útskýrt fyrir mér hver munurinn á "Duo E6XXX", "Duo Q6XXX" og "Extreme X6XXX" er? Allt tveggja kjarna örgjörvar right? og 64 bita?

2. Á maður að halda sig frá AMD? Afhverju?

3. Ég er spenntur fyrir Quad-Core. Hvenær verður hægt að kaupa slík fyrirbæri hér á Íslandi á viðráðanlegu verði? Eru þeir ekki nánast á leiðinni með skipi til landsins?

4. Einhver móðurborð (eða tegund) umfram annað?

5. 1 tb diskar að koma?

Er nokkuð sama um allt annað, mikilvægasta er að hafa: gott móðurborð, góðan örgjörva, og svo góðan hljóðlátan kassa.
*-*

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá spurningar um framtíðarvélbúnaðarkaupshugleiðingar..

Póstur af kristjanm »

appel skrifaði:Ok, ég er með hundgamla vél heima og er að pæla að fara endurnýja hana. Liggur reyndar ekkert á því, þannig að ég er ekki að pæla í tölvukaupum á næstu vikum. Hinsvegar e.t.v í lok sumars, eða í haust, langar mig að kaupa nýja vél. Vil þó byrja að plana snemma, enda stór ákvörðun! :D

Langt síðan ég hef verið í hardware pælingum og þekki ég ekki mest af þessu dóti, X9100, Extreme PCI3000 pro... allt þvættingur í mínum heila. Nokkrar spurningar:

1. Hvað er málið með þessi heiti á örgjörvum? Getur einhver útskýrt fyrir mér hver munurinn á "Duo E6XXX", "Duo Q6XXX" og "Extreme X6XXX" er? Allt tveggja kjarna örgjörvar right? og 64 bita?

2. Á maður að halda sig frá AMD? Afhverju?

3. Ég er spenntur fyrir Quad-Core. Hvenær verður hægt að kaupa slík fyrirbæri hér á Íslandi á viðráðanlegu verði? Eru þeir ekki nánast á leiðinni með skipi til landsins?

4. Einhver móðurborð (eða tegund) umfram annað?

5. 1 tb diskar að koma?

Er nokkuð sama um allt annað, mikilvægasta er að hafa: gott móðurborð, góðan örgjörva, og svo góðan hljóðlátan kassa.


1. Core 2 Duo E6xx eru tvíkjarna með 4MB Cache, Qxx eru fjögurra kjarna með 2x4MB Cache, X6xxx og QX6xx eru Extreme Edition örgjörvar sem eru klukkaðir aðeins hærra og með ólæstan multiplier.

2. AMD eru ekki með samkeppnishæfa örgjörva þessa stundina nema kannski í alódýrasta flokknum. Barcelona, nýir örgjörvar frá AMD, eiga að birtast fyrir jól á þessu ári.

3. Það er hægt að kaupa fjögurra kjarna Intel örgjörva í dag.

4. Fullt af góðum móðurborðum fyrir Intel til úti núna, og svo eru móðurborð með nýju Intel chipsetti, P35, að fara að líta dagsins ljós.

5. Terabyte diskar eru til, veit ekki hvar þeir fást á Íslandi, en þeir eru dýrir.
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Smá spurningar um framtíðarvélbúnaðarkaupshugleiðingar..

Póstur af appel »

kristjanm skrifaði:1. Core 2 Duo E6xx eru tvíkjarna með 4MB Cache, Qxx eru fjögurra kjarna með 2x4MB Cache, X6xxx og QX6xx eru Extreme Edition örgjörvar sem eru klukkaðir aðeins hærra og með ólæstan multiplier.


Ok, takk fyrir góð og fljót svör. :D

Eitt sem hefur ruglað mig í þessum örgjörvahugleiðingum eru þessi nöfn! "Duo" hef ég skilið sem "tveir", eða einsog "Duett". Og svo "Core 2" sem ég hef líka skilið sem "örgjörvi með tvo kjarna".

"Core 2 Duo QuadCore" meikar ekki neitt sense!
"Tveggja kjarna tveggja gjörva fjögurra kjarna" bla.. :) gátu intel menn nú ekki fundið upp á einhverju sniðugra heiti.

En takk, skil þetta núna aðeins betur.
*-*
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Póstur af ManiO »

Core 2 duo er sem sagt önnur kynslóð af Core duo, sem er vissulega silly.
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

Enda heita þeir "Core 2 Quad" en ekki "Core 2 Duo Quadcore"
"Give what you can, take what you need."
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af GuðjónR »

gnarr skrifaði:Enda heita þeir "Core 2 Quad" en ekki "Core 2 Duo Quadcore"

Af hverju ekki Core 4
Skjámynd

Höfundur
appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Póstur af appel »

Eða bara eitthvað annað en "Core", hægt að rugla því svo saman við "multicore".

Svo heita þeir "Duo Q6600 OEM" og "Duo Q6600 Retail" á vaktin.is. Held að það valdi ákveðnum ruglingi.

Kannski er ég bara svona vitlaus, en þetta hefur alltaf ruglað mig í ríminu :) greyið fólkið sem veit nákvæmlega ekkert um tölvur.
*-*

Stebet
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fös 25. Jún 2004 22:15
Staða: Ótengdur

Póstur af Stebet »

Fyrst kom Core Duo (Yonah, 32 bita)
svo kom Core 2 Duo (Conroe, 64bita)
svo kom Core 2 Quad (Kentsfield, 64bita)

sáraeinfalt :P
Skjámynd

Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Heliowin »

appel skrifaði:Svo heita þeir "Duo Q6600 OEM" og "Duo Q6600 Retail" á vaktin.is. Held að það valdi ákveðnum ruglingi.


Ef þú veist ekki það þegar þá er OEM í einföldum umbúðum (hörðu plasti). Ég hef heyrt að það fylgi stundum ekki vifta með en ég veit ekki hvað er til í því, en ég hef allavega alltaf fengið viftu með OEM pakka.

Retail er meira stílað inn á neytendur með neytendavænni pakkningu, leiðarvísi og alveg örugglega viftu.
Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1784
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Póstur af emmi »

Quadcore er til hérna heima, Q6600 en kostar 50k. DDR3 kemur svo í haust en það kemur til með að vera í dýrari kantinum til að byrja með.

Persónulega ætla ég að fá mér Gigabyte GA-P35-DQ6 móðurborðið og Q6600.

Hitachi eru komnir út með 1TB diska, veit ekki hvort að einhverjir séu komnir með hann í sölu hér, en eflaust lítið mál að láta sérpanta ef þú átt 40-50k til að spreða í harðan disk. :)
Skjámynd

audiophile
/dev/null
Póstar: 1393
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Staða: Ótengdur

Póstur af audiophile »

OEM = Bara örgjörvi í litlu plasthulstri

Retail = örgjörvi og vifta í stærri kassa
Have spacesuit. Will travel.
Skjámynd

Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af Heliowin »

audiophile skrifaði:OEM = Bara örgjörvi í litlu plasthulstri

Retail = örgjörvi og vifta í stærri kassa


Þetta er víst tilfellið. Hringdi til að vera viss. Hef fengið viftu með Intel Celleron OEM örgjörvum áður en það er víst ekki tilfellið lengur.

Axolotl
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 14:32
Staða: Ótengdur

Póstur af Axolotl »

Örgjövar eru seldir frá framleiðenda í þremur flokkum:

1) Bulk; Örgjövum er hrúgað í poka og seldir hundrað saman til framleiðenda low budget véla. Einn af hverjum hundrað er testaður.

2) OEM; Örgjövar eru seldir stakir í plastkössum í verslanir og til framleiðenda medium budget véla. Einn af hverjum tíu er testaður.

3) Retail; örgjövar eru seldir stakir í kassa og með áfastri viftu í verslanir og til framleiðenda merkjavéla. Allir hafa verið testaðir.
Last edited by Axolotl on Fim 26. Júl 2007 15:24, edited 2 times in total.
Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Póstur af ManiO »

Axolotl skrifaði:Örgjövar eru seldir fr


Öhm, vantar ekki eitthvað þarna?
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
Svara