Hita vandamál

Svara

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Hita vandamál

Póstur af Gestir »

Jæja, núna er vélin mín alltof oft í svona rugli.

Idle.. við erum að tala um að hún er nánast idle allan tímann ( amk engir leikir eða enginn hljóð né myndvinnsla )


og samt er hitinn alveg rosalegur..

hvað er málið



p.s Örrinn er í bullandi vinnslu eða 60% en samt er ekkert í gangi

og annað REMOTE 2 = örrinn !! ekki CPU
Viðhengi
hiti.JPG
hiti.JPG (57.67 KiB) Skoðað 933 sinnum

Mencius
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Fös 24. Sep 2004 02:03
Staðsetning: 221 hfj
Staða: Ótengdur

Póstur af Mencius »

Hef ekki hugmynd hvað gæti verið að með örran, en gæti verið að "grillið" fyrir aftan örgjafaviftuna sé fullt af ryki? átti í sömu vandræðum með mína shuttle, þurfti að hafa hana stöðugt opna til að hún byrjaði ekki a ofhitna.
ASUS PRIME Z490M - Intel Core i5-10600 - 16gb CORSAIR Vengeance LPX 16GB 3600mhz - Kingston Digital 240GB SSDNow V300 - Samsung 840evo 500gb ssd - EVGA 1070gtx FE - 24" ASUS VG248QE 1ms 144Hz Gaming - Evga 750w - Phanteks
Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1629
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Stutturdreki »

60% load á örgjörvanum er ekki idle! Þar af leiðandi er tölvan þín alltaf heit.

Kíktu í Task Manager til að sjá hvaða process er að valda þessu.
Skjámynd

audiophile
/dev/null
Póstar: 1393
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Staða: Ótengdur

Póstur af audiophile »

Tölvan þín á ekki að sitja á 60% vinnslu, það er eitthvað forrit sem er annaðhvort læst eða eitthvað í gangi sem þú veist ekki af. Ctrl+Alt+Del til að sjá hvað er í gangi, skelltu kannski screenshot af því hingað inn.

Svo er annað, mér finnst þetta töluvert heitt þó svo að örrinn sé að vinna, en þar sem þú ert með Shuttle er það kannski eðlilegt, ég veit ekki.

Mín AMD vél keyrir Idle á 27-30°c og full load í mesta lagi 40°c, en það er stór kassi með Zalman kælingu, ekki Shuttle.
Have spacesuit. Will travel.
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

settiru nokkuð of mikið af hitaleiðandi kremi? ég mæli með að þú prófir að taka kælinguna af örgjörfanum og þrífir bæði hana og örgjörfann með hreinsuðu bensíni og setja svo nýtt hitaleiðandi krem og passa að það sé rétt magn og vel dreift.
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Nenn´ekki !!

Það er bannsett vesen að fikta í shuttle ;)


ég setti alls ekki mikið krem á gaurinn..

og ég var búinn að kíkja í task man. og það er ekkert þar sem veldur þessu .. :S

*edit*

sjá mynd.. ( þarna er eitthvað sem heitir system idle process sem er í 80-99 )
Viðhengi
hiti2.JPG
hiti2.JPG (62.89 KiB) Skoðað 863 sinnum
Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2599
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Staða: Ótengdur

Póstur af SolidFeather »

43 processes x_x

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kristjanm »

Þú ert með allt of mörg forrit í gangi í minninu.

Notaðu msconfig til að hreinsa úr startuppinu :)
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

ÓmarSmith skrifaði:sjá mynd.. ( þarna er eitthvað sem heitir system idle process sem er í 80-99 )
Ómar minn... þú þarft ekkert að sanna fyrir okkur að það sé ekki hægt að vera gáfaður og fallegur á sama tíma :lol:

Hinsvegar er eitthvað virkilega í fokki í tölvunni hjá þér. Örgjörfinn er í 58% þótt hann sé ekki að vinna í neinum þræði :?
"Give what you can, take what you need."

Höfundur
Gestir
Staða: Ótengdur

Póstur af Gestir »

Hey,

ekki fella tár boyz ;)


Hvernig haldiði að mér líði .. haldið þið að það sé auðvelt að vera fallegur, gáfaður og skemmtilegur alla daga 24/7 - 365

:8)

kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af kristjanm »

Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1629
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Staða: Ótengdur

Póstur af Stutturdreki »

Hægri smella á "System Idle Process' og velja 'End Process' :) (sem er ekki hægt btw.. að hægri smella á þetta image)

Veit ekki hvort það breytir einhverju að haka við 'show processes from all users' þar sem ég geri ráð fyrir að það sé bara einn notani á þessari vél. Btw, fer CPU usage strax í 60% þegar þú ræsir vélina eða kemur þetta eftir að þú ert búinn að keyra eitthvað forrita drasl?

Loggaðu þig inn í Safe Mode og sjáðu hvort þetta er svona þar líka. Vel hugsanelgt að þú sért með einhverja óværu.. eða Windows er komið í einhverja steypu hjá þér (mjög algengt vandamál hjá 'fallegu' fólki)
Svara