Vesen með hljóðkort í fartölvu

Svara

Höfundur
Leeds
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 20. Des 2004 14:56
Staða: Ótengdur

Vesen með hljóðkort í fartölvu

Póstur af Leeds »

Ég fékk mér nýja tölvu um daginn þar að segja dell latitude d810 (sona spec http://www.trs.is/?a=368)

Ég ætla að nota þessa tölvu mest í leiki, netið og þegar ég eignast meiri pening nota hana með usb hljóðkorti til að taka upp fyrir hljómsveit/mig sjálfan.

En sona þangað til ég hef efni á usb hljóðkorti þá ætlaði ég að nota mæk innputið til að vinna með tónlistina mína en alltaf þegar ég reyni að taka eitthvað upp með því að setja í það þá kemur bar eitthvað þvílíkt surg og vesen.

Þess má til gamans geta að ég gat tekið upp svona á eldgamalli vél frá 2000 en get ekki notað hana þar sem hún er hreynlega bara of hæg í þessa vinslu og ég hef ekki aðganga að henni lengur.

Er einhver þarna úti sem kann að laga þetta eða getur reynt að hjálpa mér á einhvern hátt??

Höfundur
Leeds
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 20. Des 2004 14:56
Staða: Ótengdur

Póstur af Leeds »

set bara úr line out úr magnaranum og í mic inputtið, það ner ekkert spes sound sen samt hægt að nota í vinslu fyrir mig

hilmar_jonsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 357
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 16:03
Staðsetning: 200 Kóp
Staða: Ótengdur

Póstur af hilmar_jonsson »

Ertu með Micraphone Boost á?
i5-2500K - 16GB vinnsluminni og eitthvað skjákort
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

Leeds: þú getur ekki losnað við þetta surg. Innbyggð hljóðkort, sérstaklega í fartölvum, eru algjört drasl.
"Give what you can, take what you need."

hilmar_jonsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 357
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 16:03
Staðsetning: 200 Kóp
Staða: Ótengdur

Póstur af hilmar_jonsson »

Ef suðið er stöðugt á tíðni í kringum 50-60 hz er ég með góða lausn fyrir þig.


Skerðu plastið utan af snúrunni nálægt tölvunni. Þá finnurðu líklega bláa snúru, rauða og koparþræði á víð og dreif. Skerðu á alla koparþræðina og límdu snúruna aftur. Passaðu þig á því að skera hvorki í bláu né rauðu snúruna.

Þú gerur líka keypt svona snúru, en þá verðurðu að fara í Íhluti eða Rradíóbæ og biðja um óskermaða snúru. Ég lofa því samt ekki að hún sé til.

Það væri svo gaman að vita hvernig þér tekst til ef þú reynir þetta.
i5-2500K - 16GB vinnsluminni og eitthvað skjákort
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

mic-in tengin eru bara jörð og signal. ef hann sker jörðina, þá fær hann ekkert hljóð.

Fyrir utan að ég held að fólk færi seint að kalla ground hum "surg". Og ground hum er alltaf 50Hz á íslandi.
"Give what you can, take what you need."

hilmar_jonsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 357
Skráði sig: Lau 22. Jan 2005 16:03
Staðsetning: 200 Kóp
Staða: Ótengdur

Póstur af hilmar_jonsson »

gnarr skrifaði:mic-in tengin eru bara jörð og signal. ef hann sker jörðina, þá fær hann ekkert hljóð.
Af hverju ætti hann ekki að fá neitt hljóð?

Edit.
Ég hef stundað svipaða iðju með góðum árangri.
i5-2500K - 16GB vinnsluminni og eitthvað skjákort
Svara