Ég er harð ákveðinn í því að versla mér mp3 spilara á næstunni og er að hugsa um að fara ekkert langt yfir 15þúsund kr ég fæ þetta frá BNA án toll/vsk.
Helst að pæla í eikkeru litlu með góðu plássi 4-6gíg kannski svona stóran spilara.
Ég hef mikið verið að pæla í Creative Zen micro og hann fær rosalega góða dóma á lang flestum stöðum og er frábærlega lítill og lookar vel ásamt því að vera pakkaður fídusum. Hvað mælið þið með?
p.s Enga spilara frá apple s.s ipod mini,ipod,ipod shuffle
Nei það er alveg ástæða fyrir að ipod er svona vinsæll... Góð markaðsetning, nafn sem er auðvelt að muna, hann er tískuvara og vinsælasti ránsfengurin í dag.
Það er gersamlega búið að heilaþvo heiminn að ipod sé eini mp3 spilarinn.
Ipod er með lang lang minnst af fídusum af öllum spilurum ásamt því að hafa lélegt batterý líf og ipod mini er hræðilega ílla hannaður fyrir t.d vasa auk þess að vera með ljótt look.
VÁ! Djöfull er ég sammála Pandemic fólk virðist bara sjá iPod og ekkert annað..
ég myndi frekar fá mér Creative Jukebox Zen eða eitthvað.. mun betri batterísending og meira pláss fyrir minni pening
Mér líst rosalega vel á nýja Creative Zen spilaran hann er víst 20gíg og er ekkert mikið stærri en micro ég held að hann sé meira að segja nákvæmlega jafn stór
gnarr skrifaði:næstum því allir MP3 spilarar eru DAP
Ég veit nú að þú ert að meina það að næstum því allir MP3 spilarar spili líka WMA eða annað format, og séu þessvegna DAP.
En þar sem að MP3 er stafrænt hljóðform, og „digital audio player“ felur ekkert í sér að spilarinn þurfi að spila fleira en eitt format, mætti þá ekki segja að allir MP3 spilarar séu DAP?
Ertu að fara nota spilarann í ræktina eða eitthvað álíka? Ef svo er þá mæli ég ekki með spilara sem er með harðan disk. Lenti í því að minn iPod krassaði illilega einmitt útaf svoleiðis En kosturinn var að ég fékk nýjan mjög fljótlega... eða réttara sagt næst þegar einhver sem ég þekki fór til USA
Pandemic skrifaði:ÉG ætla að geta unnið með hann og væntanlega hlaupið annars þolir Creative Zen micro ræktina rækilega vel að sögn fólks sem ég er búinn að tala við.
fá sér bara ipod, fm sendinn og svo lítið vasaútvarp sem þú getur fengið í einhverjum leik hjá olís:D